
Elsku Helgi frændi innilega til hamingju með nýja heimilið, ekkert smá flott herbergið þitt!!
Knús á línuna,
kv. Vesturbæjargengið
Hæ hæ,
ég var ekki að fatta fyrr en núna að það væru komin ný myndbönd og vá hvað ég hló þegar Helgi Sigurður tók tryllinginn í lokin á laginu á leikskólanum. Hann verður góður á böllunum í framtíðinni.
með kveðju,
Anna
Hæ sæti frændi, vorum að kíkja á allar fallegu myndirnar af þér og vildum bara að kvitta fyrir okkur. Þú ert auðvitað bara mesta krútt í heimi:) Hittumst vonandi fljótlega!
Risa knús og koss frá Hönnu og Estellu xoxoxo
jeminn þetta var algjör snilld-ég hló mig máttlausa :D
Sælt verið fólkið vildi bara sýna smá mynd af Helga Sigurði á dans æfingu fyrir brúðkaupið
http://www.carmex-kiss.de/index.php?meintanz=264899850934
Hæ hæ,
líst líka svakalega vel á Krókavað, bíð spennt eftir fleiri myndum. Mikið væri ég til í knúsa hann Helga Sigurð (og mömmuna) aðeins, hann er orðinn svo stór og alltaf jafnsætur.
kveðja frá Lundi,
Anna
Hæ, hæ sæti
Rosalega eru fínar nýju myndirnar af þér og fjölskyldunni:) Við finnum nú samt alveg til með þér með allar þessar bólur... það hefur örugglega klæjað soldið mikið í þær. En elsku Gummi, Helga og Helgi innilega til hamingju með íbúðina, lítur rosalega vel út það sem við náum að sjá af henni á myndunum, hlökkum til að koma og kíkja á hana hjá ykkur næst þegar við komum heim:)
Ykkar vinir Diddi, Kristín og Ísak Leó
Hae saeti vinur
Vodalega varstu flottur a leikskolamyndunum og mikid varsu mikid krutt med hlaupaboluna :)
Nyja husid litur mjog vel ut dad sem vid saum af dvi. Annars hlokkum vid mikid til ad hitta ykkur i sumar og ad sja muttuna dina og pabba ganga i dad heilaga.
Luv i bili,
JF, LM og P.
Elsku fjölskylda.
Til hamingju með nýja húsið. Við hlökkum svo til að koma og heimsækja ykkur þótt það verði ekki fyrr en 5. maí n.k. Flottar myndir af leikskólanum og það var nú ekki annað hægt en að brosa af "skó-kokteilnum".
sí jú sún.
Arnór Atli og múttan.
Var að detta í marsalbúmið, geggjuð skó-drekku-myndin! Tilvalin til stækkunar.
Kveðjur úr hitanum loksins.
Magga og Bostonstrákarnir
Halló elsku fjölskylda,
það er aldeilis að drengurinn hefur stækkað og einmitt sammála Möggu með hárið, ótrúlega flottur strákur!!
Til hamingju með nýju íbúðina, vona að það fari vel um ykkur.
Verð að segja frábært framtak í leikskólanum með leikritið, sé hann alveg fyrir mér í action!! upprennandi stjarna á ferð :) og æðislegar hlaupabólu myndirnar, hann er svo mikið krútt!
Hafið það nú gott,
Kær kveðja
Ósk og Markús
Ohh en gaman fullt af nýjum myndum!
Ekkert smá sem hárið er búið að vaxa, þú ferð bara að ná í tagl.
Til hamingju með nýju íbúðina aldeilis gaman að geta horft svona mikið út um gluggann.
Kveðjur úr rigningunni,
Magga, Hrafnkell og Gummi í skólanum
hæ og hó
jújú það er heldur betur kominn mars en enginn tími fyrir myndadúllerí eins og stendur. Lofa að gera eitthvað í málunum eftir flutninginn :) Knús mommí
Hallo fraendi,
vildi bara lata tig vita ad tad er kominn mars..
Saknadarkvedjur,
Fraendi og fjolskylda
hae kuturinn okkar
Vid vorum nu bara ad tekka hvort dad vaeru komnar einhverjar nyjar myndir sidan sidast.
Kvedjur fra Amsterdam,
Tjallarnir 3
Hæ frændi,
innilega til hamingju með mömmsu þína þann 8.mars. DVD diskurinn sem ég lofaði ykkur er í póstinum og kemur öruggleg í vikunni vonandi hefurðu gaman af honum, ég hafði allavega skratta gaman af honum sjálfur.
En rosalega ertu flinkur að borða með hnífi og gaffli og já svo bara farinn að klæða þig í sjálfur ekkert smá sem þú ert duglegur og sjálfstæður strákur.
Jæja best að fara í háttin svo maður geti rifið sig frammúr með litla orkuboltanum honum frænda þínum.
Knús í krús,
Magga, Gummi og Hrafnkell Árni
heyrðu nú mig, maður skreppur til úgglanda í mánuð og svo þegar maður kemur heim er einhver lítill strákur sem mér fannst bara vera tiltölulega nýfæddur orðinn 2ja ára!!!!! djísús kræst þetta líður hratt! en helga þú ert snillingur þvílíku kræsingarnar úff maður fær vatn í munninn. til hamingju elsku gæja kappi með daginn þinn um daginn!
knús og kossar
Selma, og allir gemlingarnir ;)
Elsku vinur.
Takk fyrir síðast, þar var meiriháttar að fá að rústa herberginu þínu, setja köku á gólfið og elta Míu ;-) Hlakka til að sjá þig aftur.
kv.
Arnór Atli og Co.
p.s. spurning hvort við endurtökum morgunverðarboðið góða einhvern laugardag?
Hæ, hæ,
Vildum bara óska Helga Sigurði innilega til hamingju með afmælið... og ykkur með hann. Vorum að skoða myndirnar úr afmælinu og það hefur greinilega verið mikið stuð og fullt af girnilegum kræsingum...Mmmm :)
Takk fyrir kveðjuna, við fylgjumst alltaf reglulega með ykkur hérna, erum bara ekki nógu dugleg að skrifa í gestabókina.
En vonandi hafi þið það bara rosalega gott og heyrumst fljótlega.
Kær kveðja Kristín, Diddi og Ísak Leó
Hae saeti okkar. Vid vildum oska der aftur til hamingju med daginn. Nuna erum vid buin ad skoda allar skemmtilegu myndirnar ur afmaelinu dinu. Vid hefdum skooooo viljad vera i veislunni dinni. Luv,
Linda og Jakob Felix
Hæ frændi,
Innilega til hamingju með afmælið í gær, kannski þegar þú verður 3ára get ég hringt í þig og óskað þér til hamingju með afmælið en því miður er ég sú eini sem skil sjálfan mig í dag.
rosalega var þetta flott veisla hjá þér, ég hefði haft svo gaman af pó kökunni, ekkert smá sem mamma þín er flink að baka og halda veislu. Verð að vera sammála síðasta ræðumanni því ég fékk rosalegt vatn í munninn við að horfa á kræsingarnar.
Obboslegar saknaðarkveðjur,
Sjáumst eftir 2 og 1/2 mánuð.
Hrafnkell Árni
Nammi nammi namm, ég fæ alveg vatn í munninn við að skoða allt gúmmelaðið úr afmælinu.
Frábært að sjá myndir svona fljótt.
Þú átt svo inni hjá mér flottan pakka næst þegar ég kem frá Svíþjóð.
með knúskveðju,
Anna
Elsku Helgi Sigurður.
Innilega til hamingju með 2 ára afmælið ;)
Sendi kveðju til mömmsu og pabba
Gerður
Hæ elsku Helgi ammælismús..
Takk f skemmtilegt boð í dag, rosalega gaman að hitta þig..
þú ert náttlega endalaust hress og sætastur í fínu afmælisfötunum.
Og vá hvað mamma þín var myndaleg að gera allar þessar kræsingar f okkur, við komum heim með bumbu og bros á vör..heppinn að eiga svona flinka mömmu:)
kær kveðja og njóttu vel það sem eftir er dagsins snúður
Harpa og Tara
Halló skalló og til hamingju með 2 ára afmælið. Ég kíkti í gær á myndirnar frá því þú varst nýfæddur og ég man hvað þú varst einstaklega fallegur fyrst þegar ég sá þig. Síðan hefur þú bara stækkað og stækkað og fríkkar með hverjum deginum. Ég vildi óska þess að ég gæti komið í afmælið til þín í dag og ekki síður út af öllu góðgætinu hennar mömmu þinnar. Ég hef sjaldan farið í jafn glæsilegt afmæli eins og 1 árs afmælið þitt fyrir ári síðan.
Góða skemmtun í dag og borðaðu yfir þig af súkkulaðiköku.
Kær kveðja frá Lundi,
Anna
Hæ flotti strákur.
Innilega til hamingju með daginn. Þú ert alltaf jafn flottur.Hafðu það dúndur gott í dag. Biðjum alveg voða vel að heilsa gamla settinu.
Kossar og knús,
Sigrún, Garðar, Emma Kolbrún og Guðni Dagur. (úff þetta er orðin ansi stór fjölsk.)
Til hamingju með afmælið sæti strákur. Eigðu skemmtilegan dag. Koss og knús, Rebekka og fjölskylda.
Elsku kútur, til hamingju með 2 ára afmælið - hlökkum til að sjá þig í dag sæti strákur :)
Afmælisknús Arna, Siggi & Karlotta Ósk
Hlökkum til að sjá þig á morgun afmælisstrákur!!
Stubbaknús,
Hinrik Valur og Erla frænka
Hæ sæti frændi minn. Nú ætla ég að skoða síðuna. Það er orðið langt síðan síðast svo ég er viss um að sjá eitthvað nýtt. Hafðu það gott á afmælisdaginn þinn og skemmtu þér nú vel. Hlakka til að sjá þig við tækifæri.
Knús frá Hveragerði.