
það var ekkert smá gaman að fá að passa hann helga um daginn þó svo að það hafi ekki verið lengi en þá skemmtum við okkur alveg ágætlega. Það væri ekki leiðinlegt að fá að passa hann aftur við tækifæri og ekki vera feimin við að hringja.
Frábært að heyra að strákurinn sé kominn inn á Rauðhól, vona að hann skemmti sér þar.
Gangi þér svo vel á lokasprettinum Helga, ég segi að hún komi 17.des
Þið eruð nú meiri krúttin :) Helgi ekkert smá flottur í bakstrinum og þú, Helga mín, í grímubúningnum . Knús til ykkar.
Oooohhh hvað er gaman að skoða myndir. Helga þú lítur ekkert smá vel út. Gangi þér vel með framhaldið.
Hæ, ég sé að það gengur allt vel hjá ykkur.
Ég get trúað því hvað næstu dagar og jólin verða
spennandi tímar fyrir ykkur og Helga Sigurð, eiginlega
eins og tvöföld hátíð.
Kv, Gyða, Jóel Berg og Mikael Jón.
Fallegar myndir af þér Helga mín - þú lítur stórglæsilega út. Gaman að sjá að Helgi er kominn inn í leikskólann hjá ykkur, þetta er allt saman að smella, nú vantar bara litlu prinsessuna.
Hæ, var að skoða bumbumyndir! Ekkert smá glæsileg kúla og flott... verð að segja að Helga Valdís lítur mjög vel út á meðgöngunni. Helgi Sigurður er greinilega algjör grallari, þvílíkt skemmtilegt að skoða myndirnar :) Bestu kveðjur í Krókavaðið.
Hæ hæ,
vil byrja á að þakka fyrir frábært spilakvöld.
Ofsalega gaman að skoða nýju myndirnar, ég varð voða hissa á að sjá hvað kisan hans Einars Áskels var lítil. Hrafnkell skemmti sér alveg konunglega, það líður varla dagur án þess að hann minnist á þessa ferð þeirra frændna. Annars er ég mega spennt að fá prinsessuna í heiminn, löngu orðið tímabært á smá jöfnunarorku í frændsystkina gengið, spái henni á svæðið vel fyrir jól;)
Hvernig væri svo að reyna við Ásvallalaugsferð "taka 2" sem fyrst.
Knús í kotið,
Magga and the guys..
Váááá, hvað þú lítur vel út Helga, gjörsamlega blómstar. Ég verð að finna mér svona sundnámskeið, það virkar greinilega vel.
Helgi, alltaf jafnmikill töffari. Ótrúlegt hvað það er orðið stutt í skvísuna, verð að ná alla vega einu góðu símtali áður en hún mætir í heiminn.
Bestu kveðjur úr Lundi, loksins kominn snjór og frost,
Anna
Gaman að skoða nýjar myndir. Þú lítur svo vel út Helga =)
Frábærar myndir og gaman að lesa gullkornin ;)
Knús Gerður
Halló yndislega familía...
Bara aðeins að kvitta fyrir innlitið... Helga þú lítur alveg rosalega vel út... með stóra og sæta kúlu:) Gangi ykkur vel og hafið það sem best.
Ykkar vinir Kristín, Diddi, Ísak Leó og Emilía
Æðislegar myndir eins og alltaf :)
knús
Vá, ekkert smá fjölbreyttar og skemmtilegar myndir og takk fyrir að verða við bón minni um bumbumynd. Þú lítur ekkert smá vel út, Helga mín, en bumban er stór ég viðurkenni það.
Svo sá ég að það er búið að breyta í stofunni, greinilega nóg að gera hjá ykkur.
Bestu kveðjur frá Lundi,
Anna
Algjör dúlli strákurinn þinn Helga mín!! Kröftugur og flottur :) mér sýnist litla skvísan vera eitthvað lík honum!! Það verður stuð á bænum :)
kv, N
Hæ elskurnar, æðislegar þrívíddar myndir, ohhh hlakka til að sjá þessa litlu prinsessu. Vona að allt gangi vel og þú sért orðin góð af þessari flensu. Bara takk yndislega fyrir síðast elskurnar :)
Koss og knús, Rebekka og co
Alltaf gaman að skoða myndir af þér elsku sæti Helgi Sigurður, þú átt alveg pottþétt eftir að verða rosa góður stóri bróðir.
Bið að heilsa mömmu og pabba
Ætla að bæta einu við: Pant fá fleiri bumbumyndir.
tjúttítjú,
Anna
En frábærar þrívíddarmyndirnar Helga :) maður sér alveg svipinn, og þetta virðist ætla að verða lítil bjútíkvín með bollukinnar veiii!
kveðjur úr hlíðunum ;)
Selma
Ekkert smágaman að sjá þrívíddarmyndirnar, hún hefur það greinilega gott þarna inni. Ofsalegar bollukinnar og kyssulegar varir, vil ekki hugsa út í það hvað það er langt þangað til ég fæ að kjassa hana.
Bestu kveðjur frá Lundi,
Anna
Jimminn eini greinilegt að þónokkuð er síðan ég hitti litla töffarann hann Helga Sigurð, því hann er barasta ekki svo lítill lengur thíhí.
Knús,
Lísa
Hæ og hó
Vildi bara kvitta fyrir mig og segja til hamingju med nýja fjölskyldumedliminn. Hef náttúrulega ekki séd tig sídan sídasa sumar. Meiriháttar 3D myndirnar, ekkert smá skýrar og fínar.
Gangi ykkur sem allra best med litla jóla barnid..... vonandi sé ég ykkur sídan adeins um jólin.
Knús Ella
Hæ hæ sæti gaur!
Þú ert með svo sætan grallarasvip og ert örugglega mikill grallaraspói ;) og bráðum að verða stóri bróðir.
Biðjum að heilsa skvísu mömmu þinni og pabba þínum
Sigga, Óli, Patrekur og Brynjar
Hæ familia
Æðislega gaman að sjá þrívíddar myndirnar.
Eg alveg viss um að litlan eigi eftir að líkjast brodur sinum dalitid..
Blessó,
Linda og Andrea
Sæl öllsömul:) Rosalega fínar myndir! Helgi Sigurður er orðin svakalega stór strákur:-) Hlökkum til að sjá ykkur öll í desember.Hafið það sem allra best!
Bestu kveðjur, Helga Lind,Gylfi og grísirnir
Hæhæ sæti strákur! Rosa gaman að skoða flottu myndirnar af þér :) vildum bara kvitta fyrir innlitið.
Knús til ykkar, Króksararnir
Æðislegar myndirnar af Helga Sigurði og co :) Fallegar bumbumyndir af þér Helga :) Æðislega gaman að sjá hvað Helgi stækkar hratt, hann verður yndislegur stóri bróðir :)
Gaman að fá að fylgjast með ykkur :)
Hafið þið það gott
Knús*
kveðja
Ragga
Til hamingju enn og aftur með brúðkaupið... þetta lítur út fyrir að vera besti dagur í lífi ykkar... mikið gleði mikið grín :)
Og Helgi Sigurður er alltaf jafn sætur!
kv frá Köben
.
Frábært að sjá nýjar myndir. Helgi Sigurður orðinn svo stór og mikill gæi ;) mamman lítur líka ekkert smá vel út með bumbuna!
Knús GG
Skemmtilegar myndir og flott kúla.
Vonandi hafid þid þad sem allra best.
Kv, frá Reydarfirdi.
Æ vá hvað þetta eru hressandi sumarmyndir :)
prinsinn bara flottur og bumban Helga mín, vá hvað hún er flott!
langar að sjá hana sem fyrst í beinni.
knúsar frá okkur til ykkar
Selma