
halló fallega fjölskylda, innilega til hamingju með fallega nafnið, okkur fannst mjög leiðinlegt að geta ekki kíkt í gær á ykkur, Ási bara búin að vera svo lasin og svo tók ég mamman við í gærkvöldi. En um leið og pestarnar eru farnar héðan komum við og kíkjum á þig fallega stelpa. knús til ykkar allra
Elsku Helga mín og familí..
Innilega til hamingju með yndisfagra nafnið á sætustu prinsessuna,
Ása Líf passar strax rosalega vel við hana og Ása amma hlýtur að vera voða stolt;)
Hlakka til að knúsa ykkur öll fyrr en varir..
Knús og kossar frá Tallinn
Harpa og co.
Hamingju með prinsessuna, hún er gullfalleg eins og mamma sín og pabbi!! Nú er bara að halda áfram Gummi minn, bara tvö í viðbót og þá ertu kominn í rútupakkann eins og ég... :)
Bestu kveðjur frá Norge,
Gylfi & co
Hæ fallega vísitölufjölskylda og takk fyrir síðast ;) Mikið eru nýju myndirnar fínar af ykkur öllum, prinsessan svoo sæt og stóri bróðir svoo stoltur og sætur. Takk fyrir að deila líka fallegu fæðingarsögunni. Knús :*
Ohh, ég vissi að ég fengi myndir ef ég bæði fallega. Hún er svo fullkomin að það er engu lagi líkt. Það var líka gaman að sjá að Helgi Sigurður hélt á sverðinu frá okkur innan um allar gjafirnar. Fæðingarsagan er fallega skrifuð og alveg nauðsynlegt að skrifa hana niður svo þetta gleymist ekki.
Bestu kveðjur frá Lundi,
Anna og co
Halló kæra fjölskylda!
Innilega til hamingju með hana litlu ljúfu! Var að lesa fæðingarsöguna og bara táraðist! þetta er nú bara frábært þegar gengur svona vel! og vá hvað hún er fullkomin, eins og stóri bróðir hennar sem stendur sig vel í nýja hlutverkinu.
Ótrúlega skrítin tilfinning að heyra svona marga andardrætti á nóttunni undir sama þakinu...
knús í kotið og hafið það nú rosa gott, ég óska ykkur gleðilegs árs og vona að mjólkin streymi!
kveðja
Ósk og co
Hæ hæ,
bara að láta vita að ég kíki daglega til að tékka hvort það séu komnar inn nýjar myndir. Ég bíð spennt eftir fleiri myndum (en skoða þessar bara aftur og aftur á meðan) og líka að vita hvenær á að skíra.
Bestu kveðjur úr hörkugaddi í Lundi,
Anna
Hæ elsku fjölskylda! Innilega til hamingju með nýju dúlluna og gleðilega hátíð:) Við kíkjum yfir þegar fer að róast í janúar, hlökkum til að sjá ykkur!
Jólaknús frá Önnu og lillunni
Elsku fjölskylda,
mikið afskaplega samgleðst ég ykkur yfir fjölguninni. Hún er alveg guðdómlega falleg prinsessan og mér sýnist á þér Helga mín að þetta hafi gengið vel og af tímasetningum að dæma þá hefur þetta gengið eins og í sögu, bara komin heim sama dag, algört æði.
Helgi Sigurður er svo greinilega stoltur og ánægður með litlu systur, ég bjóst við því að sterki ættarsvipurinn kæmi fram á prinsessunni en ég sé það nú ekki. Það verður því spennandi að sjá hverjum hún mun líkjast.
Elsku besta fjölskylda, hafið það sem allra best um jólin og ég hlakka til að heyra í þér elsku Helga mín. Ég kasta boltanum bara yfir á þig og leyfi þér að hafa samband þegar vel liggur á.
Hérna er allt ready fyrir jólin og við erum boðin í skötu á morgun, svo verður sænsk skinka á aðfangadag, íslensk lambalæri á jóladag og íslenskt hangikjöt á annan. Svo það má segja að þetta séu meira íslensk jól heldur en sænsk.
Bestu jólakveðjur frá Lundi,
Anna og fjölskylda
Hæ hæ, Til hamingju með sætu prinsessuna hún er algjört bjútí og stóri bróðir ekkert smá stoltur :)
Helga þú lítur ekkert smá vel út!!
Kv Óli, Sigga, Brynjar og Patrekur
Elsku Fjölskylda
Innilegar hamingjuóskir með litlu sætu prinsessuna :) Hún er yndisleg, sætar myndir :)
kv.Ragga á Heiðarborg
Hún er æðisleg, til hamingju öll!! En vá hvað litlu systur líður vel hjá stóra bróðir, þau eru bara sætust saman!!
Jólaknús á ykkur öll!!
Elsku fjölskylda, til hamingju með nýja fjölskyldumeðlimin, hún er svo dásamlega falleg litla frænka mín. Það er svo yndislegt að sjá hvað Helgi Sigurður nýtur sín vel með litlu systur sinni. Gangi ykkur rosalega vel. Srórt knús og hamingjukossar frá frænku í Hveragerði.
yndi, yndi, yndi!
hún er algjört yndi :) og þú Helga mín lítur svo vel út.
Enn og aftur til hamingju litla vísitölufjölskylda ;)
Innilega til hamingju með litlu dömuna, hún er nú meiri dúllan. Ótrúlega sæt myndin af þeim systkyninum þegar hún liggur ofan á bringunni á stóra bróðir. Hlakka rosalega til að fá að sjá ykkur.
Kveðja, Íris, Gummi, Tara Sól og Hera Björk
Jiminn eini hvað maður er falleg :) Elsku Helgi Sigurður, Gummi og Helga! Innilega til hamingju með fallegu prinsessuna - hún er æði. Hlökkum til að sjá hana í eigin persónu.
Knús til ykkar fallega fjölskylda.
Kv, Arna, Siggi, Karlotta Ósk og Óttarr Andri
Innilega til hamingju með litlu skvísuna. Mikið er hún falleg og stóri bróðirinn ekkert smá flottur. Hafið það rosalega gott.
knús Gunnhildur
þetta var semsagt frá mér, Gerði, - nafnið gleymdist ;) knúússs
Jii hvað maður er mikið krútt, alveg yndisleg :)
Innilega til hamingju öll sömul.
Stóri bróðir er greinilega alsæll með að vera búin að fá prinsessuna og foreldrarnir mega vera stoltir.
Gangi ykkur vel og hafið það rosa gott.
Bestu kveðjur frá mér og Jónsa.
Rosalega er litla systir falleg, mér finnst hún svo lík mömmu þinni og þér þegar þú varst lítill. Ég sé það alveg greinilega á myndunum að þú ert mjög stoltur stóri bróðir :)
Hlakka til að sjá fleiri myndir af ykkur systkinunum!
Skilaður kveðju til mömmu og pabba XOXOXOX
Innilega til hamingju með fallegu stelpuna, hlakka mikið til að koma í rólegheitunum eftir jól og sjá þessa fallegu stelpu. Knús til ykkar allra, Rebekka og co
Til hamingju með krúttið elsku fjölskylda! Hlakka mikið til að sjá myndir =)
Velkomin í heiminn litla frænka :)
Til hamingju með prinsessuna þína Helgi Sigurður, það verður sko gaman á jólunum hjá þér að dekra við litlu prinsessuna !!!
Hæ elsku fjölskylda og takk fyrir kveðjuna inn á barnaland;) Var að lesa hérna í gestabókinni hjá ykkur að þið eruð komin upp á fæðingadeild... vonum að allt gangi vel hjá ykkur og hlökkum til að heyra fréttir af litla bumbubúa;)
Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.
Koss og knús Kristín, Diddi, Ísak Leó og Emilia
Hæ skvísa. Allt fréttir maður nú, þó svo að maður búi langt í burtu ;) Bara komin upp á fæðingadeild. Helga mín ég vona að allt eigi eftir að ganga vel. Þetta á sko eftir að vera yndisleg stund. Knús til ykkar allra
Hlakka til að heyra að prinsesan sé komin í heiminn (humm kanski er hún bara nú þegar komin í heiminn??)
Frétti af skvísu með bumbu upp á fæðingardeild.... ætli minn spádómur rætist og litla daman komi núna 18 des???? ;)
Knús Erla
Hæ elsku familía
Guð hvað þetta eru sætar myndir og beljan lítur nú alveg rosalega vel út. Jæja núna hlýtur litlan að fara að láta sjá sig. Allavega við bíðum svaka spennt eftir dömunni eins og fleiri :)
Kossar og knús,
Linda, Palli, Jakob Felix og Andrea Arna
Hæ! Helgi Sigurður er svo KNÚSILEGUR á þessum myndum - þvílíkt englahár og prakkarasvipur alltaf :-) En nú fylgjumst við vel með og hlökkum til að heyra fréttir...
Kær kveðja, Inga og co.
Maður má til með að kvitta fyrir sig eftir að hafa skoðað flottu myndirnar ykkar. Ég spái því að litla frænka verði komin í heimin áður en Gummi stóribróðir á afmæli :o) við skulun nú rétt vona það! En gangi þér rosalega vel og ég hugsa til ykkar.
Knús frá Hveragerði.
Gaman að sjá nýjar myndir og alveg frábær frú Belja :)
knúsíkrús frá Gerði