
Velkomin á heimasíðuna mína
Um Mig:
Ég heiti Friðrik Heiðdal.
Ég kom í heiminn 28. maí 2008, á Fæðingardeild Landspítalans. Þegar ég fæddist var ég 13 merkur (3.300 gr.) og 50 sentimetrar.
Ég var ekkert að flýta mér í heiminn. Mamma mín og pabbi, Inga Björk og Ágúst fóru á spítalann kl 22:00 þann 26. maí og þá var byrjað að hjálpa mér að komast út en ekkert fór að gerast fyrr en kl 09:00 morguninn eftir. Þá fóru hlutirnir aðeins að ganga betur og allt gekk vel þangað til ég kom í heiminn kl 02:08 þann 28. maí. Ég fór svo heim með mömmu og pabba strax um kvöldið.

21.maí - 21.júní
Barn í tvíburamerkinu er snöggt í hreyfingum eins og svipu sé veifað, þó svo að flestar hreyfingar séu uppávið. Þetta barn er alltaf á leiðinni upp á eitthvað. Talandi um orku og virkni! Þetta barn fer létt með að gera 3 hluti í einu og er líklegt til að gera þá alla vel. Hægt er að segja um barn í tvíburamerkinu að það sé mjög klókt og komi sífellt á óvart. Það er einnig ósvífið og gæti komið heim með kettling með slaufu um hálsinn (sem það fann) og fært mömmu sinni að “gjöf”. Sætt, ekki satt? Það sem þessu barni leiðist er að hafa ekkert að gera, svo vertu viss um að stundatafla þess sé alveg þétt skipuð (íþróttir, klúbbar, útivist o.s.frv.) Vegna þess hve barnið er upptekið og hefur margt fyrir stafni þá eignast það marga vini. Tvíburanum líkar að vera trúðurinn í bekknum og gerir í því að gretta sig og segja brandara. Tvíburinn er fyndinn og býr yfir góðum húmor. Hugur hans ferðast á ógnarhraða og auðvelt að örva. Vertu viss um að hann hafi alltaf nóg að lesa. Fyrir utan lestur þá hefur barn í tvíburamerkinu einnig mikla unun af því að tala, segja brandara og taka þátt í íþróttum, og það vill gera þetta allt núna strax. Þegar þú reynir að sjá fyrir þér barn í tvíburamerkinu þá skaltu hugsa um Línu Langsokk. Hallaðu þér aftur, dragðu andann djúpt og taktu þátt í fjörinu.

Þetta er gamla settið, Ágúst og Inga Björk