

Velkomin á síðuna okkar 
Við erum þrír bræður með þessa síðu og vonandi verða mamma og pabbi dugleg að setja inn myndir af okkur öllum hér inn ásamt fréttum af okkur.
Við læstum síðunni en ef þig vantar lykilorð þá getur þú sent póst á mömmu (helgamariaf@gmail.com) eða pabba (soberrider@gmail.com).
Ég heiti Heiðar Darri og kom í heiminn 26.mars 2007 kl. 19:04. Ég var rúm 16 merkur (4135 gr) og 51,5 cm. Frekar stór strákur. Ég var með mikið, dökkt hár, blá augu og risa pétursskarð.
Núna er ég orðinn 5ja ára og er á leikskólanum Velli. Ég er svo nýorðinn stoltur stóri bróðir í annað sinn.

Ég heiti Finnbjörn Orri. Ég fæddist í Keflavík 7. apríl 2010 kl. 18:30. Ég fæddist 17 merkur og 53 cm. Ég er stór strákur og svolítið mikið líkur stóra bróður mínum. Ég fæddist með mikið dökkt hár, blá augu og er líka með ættarskarðið í hökunni :)