
Hann er náttúrulega algjör dúlla.
Gerist fallegri og frískari með hverjum mánuðnum sem líður.
Gaman að geta farið að spjall meira við þig Heimir minn, þótt þú hafir alltaf hlustað á mig þegar ég hef verið að tala við þig, þá er gaman að fá svar til baka. Gangi þér allt í haginn áfram, elsku ömmukallinn minn. Gísli Afi er líka voða spenntur að fylgjast með þér svo og Sigga langamma sem er nú að fara að kaupa viðbótar myndaalbún til að koma fyrir öllum fallegu myndunum af þér. Elsku Bryndís og Halli, þið megið vera stolt af þessum yndislega dreng - hann er algjör gleðigjafi.
Kveðja
Amma Inga
Til hamingju með litlu sætu frænkur þínar, þetta er ofursæt mynd af þeim! Þið verðið alveg sérstaklega sæt frændsystkin!
Ég verð nú að fara að kíkja á ykkur litlu familíuna aftur!
þú ert nú meiri krúttsprengjan!
Hittumst vonandi fljótlega aftur í næsta aprílmúttuhitting!
kv.Linda og IH
Sæl kæru mæðgin og takk fyrir kveðjuna! Heimir er enginn smá töffari og sá dafnar aldeilis vel. Held ég hafi ekki verið búin að óska ykkur til hamingju með fallega nafnið hans og nota því tækifærið núna - til hamingju! Alltaf gaman að kíkja á fréttir af ykkur - hafið það gott í sumar - ekki leiðinlegt að spóka sig með barnavagninn þegar veðrið er svona gott :)
Sólarkveðjur,
Íris og Ólafur Trausti
Rosalega var gaman að sjá þig, Heimir. Þú ert orðinn svo stór og myndarlegur!
Knús,
Valgerður frænka
Hæhæ
Ég hreinlega man ekki hvort að ég var búin að kvitta hjá þér litli kútur. Síðan er rosalega flott, en hlakka til að fá að sjá þig og múttu í dag.
Kveðja
Sigga Stína
Hæ litla sæta fjölskylda. Er búin að fara í gegnum öll albúmin af litla frænda. Hann er yndislegur út í gegn. Sendi honum D-vítamínið í gær (og smá pakka með).
Knús
Hildur og co
Þetta er ekkert smá hláturkast sem þið hafið náð honum í! Yndislega sætur!
Innilega til hamingju með Heimir Krogh, hann á eftir að verða golf snillingur eins og pabbi sinn ;) og myndarlegur eins og mamma sín ;)
bestu kveðjur
Alfreð
Hi together
I understand at all no Icelandic, however the photos are great! Thank you that I can view these one. I wish you all good loves, many greets from Switzerland
Manuela
Alltaf gaman að sjá myndirnar af þér Heimir. Nú verð ég að kíkja í heimsókn bráðum!
Sæl og blessuð öll sömul og innilega til hamingju með nafnið!
Hann er alveg yndislega fallegur og algjör hetja eins og foreldrarnir. Bræðir mann alveg frá fyrstu mynd;) Var ekki búin að sjá hann eftir að hann kom af vökunni.
Myndardrengur og á eflaust eftir heilla mörg kvenmannshjörtun þegar hann eldist. Núna heillar hann alla án tillits til kynferðis ;)
bestu kveðjur
Guðrún
Til hamingju með fallega nafnið þitt Heimir Krogh!! :) Vona að fjölskyldan hristi nú af sér flensuna sem fyrst svo þið getið farið að njóta vorblíðunnar :) Knús, Auður
Rosalega flott síðan þín ;) og ofsalega ertu sætur og mikið krúttt!
kv, Birna
Eigum við eitthvað að ræða hvað drengurinn er fallegur??? :D
Meira krúttið og enn og aftur til hamingju með þennan yndislega duglega gullmola!
Knúsknús,
Naustabryggjafamilían
Elsku litla fjölskylda
Mikið er gaman að sjá hvað litli frændi braggast vel. Hún er yndisleg myndin af honum á forsíðunni. Bara byrjaður að brosa svona snemma, algjör snúlli.
awww það styttir manni mikið biðina eftir molanum að skoða svona sæta stráka. Algjör krúttmoli!
kv.Linda
Hann er ekkert smá vel lukkaður drengurinn hjá ykkur :D Innilega til hamingju með ykkur öll!
kær kveðja frá Bandaríkjunum
Elsku Halli og Bryndís, Innilega til hamingju með litla Kút og voffana hans. Hann er alger draumur í dós og gaman að fá að sjá myndir. Hlakka mikið til að fá að sjá hann í eigin persónu. Farið vel með ykkur og ekki gleyma að sofa um leið og hann ; ) Hamingjuóskir - Ragna
Gaman að sjá fleiri myndir af drengnum og smá færslu í vefdagbókinni! Vona að allt gangi vel :)
Gaman að sjá þig um daginn litli stórfótur!
ohhh hann er alveg bara sætur!!
Kæra fjölskylda,
Innilega til hamingju:-)
Kærleikskveðja, Emma
Kútur- Þú ert algjör sjarmur! Rosalega var gaman að sjá þig í gær.
Ok! Let me tell you just one thing: I would\ ike to know if you guys can manage in the way of getting an english version from this guest book, 'cause icelandic is hard!! Anyway I would to tell my friend Bibba and Halli that I'm very proud of their baby and I'm sure this is only the begining of a beautifull cycle. Birth is a miracle!
Velkominn og til hamingju með þetta Bryndís og Halli
je hvað maður er ótrúlega sætur!
Elsku Bryndís og Halli
Innilega til hamingu með fallega drenginn ykkar. Hlökkum til að sjá fleiri myndir á síðunni ykkar. Ég veit að amma Inga og afi Gísli eru voða stolt :=)
knús og kossar Guðbjörg, Hartmann, Auðunn og Kári
Hæhæ,
Langaði bara að senda ykkur innilega góðar kveðjur og til hamingju með þennan flotta strák!
Kv. Íris og marsbúinn (sem kom í heiminn 23. mars sl.)