Hallgrímur Þorgilsson
 


Hæ þú og velkomin á nýju síðuna mína.

Ég heiti Hallgrímur og er fæddur þann 3. september 2001. Mamma mín heitir Ingunn Elfa og pabbi minn Þorgils Hörður.

Fyrstu mánuði mína bjó ég í Grafarvoginum en flutti svo í Mosfellsbæjinn þegar ég var að verða 1. árs. Þar byrjaði ég hjá dagmömmu eftir jólin og fór svo í leikskólann þegar ég var að verða 2 ára. Sumarið áður en ég varð 3. ára fluttum við mamma til Danmerkur þar sem hún fór í skóla í Árósum. Þar byrjaði ég fyrst í 2 mánuði hjá dagmömmu, en fór svo 1. október 2004 á leikskólann Spiloppen. Haustið 2005 flutti ég svo til Horsens, og byrjaði þar á leikskólanum Børnegårds Børnehave, og þar á ég fullt af vinum. Ég er rosalega duglegur að snakka á dönsku, og svo auðvitað á íslensku þegar ég er heima á Íslandi. Í apríl 2007 munum við svo flytja frá Danmörku og flytja heim til Íslands. Ég hlakka rosalega til að flytja, þá á ég eftir að hitta pabba miklu miklu meira og svo byrja ég í skóla eftir sumarið.

Árið 2006 varð ég rosalega stór, því þá eignaðist ég tvær litlu systur. Jóhanna Sigríður er stóra litla systir mín, hún býr hjá mér og er rosa gaman að leika við hana, henni finnst langtum skemmtilegast þegar hún fær að koma inn í mitt herbergi ;) Valdís Eva er litla litla systir mín, hún býr hjá pabba í Mosfellsbænum, og er rosa sæt og lítil.

Heimasíðan mín er læst, utan við gestabókina, er þeir sem eru fróðir þá er lykilorðið nafnið á öðrum afa mínum. Fyrir þá sem fatta ekki þá hafið samband við mömmu á emailið ingunnelfa@gmail.com.

Ég vona að allir hafi gaman að nýju síðunni minni, og endilega allir að skrifa í gestabókina :D

Hej hej



Lilypie Baby Ticker

 



NÝTT!!   Sameiginleg heimasíða systkina: www.nino.is/systkininselfossi    NÝTT !!

Heimasíða Jóhönnu Sigríðar er www.barnanet.is/johannasigridur

Heimasíða Valdísar Evu er www.barnaland.is/barn/58379