

Verið hjartanlega velkomin
Við erum hinar velheppnuðu systur
Júlía Dís og Aníta Lea 








Munið að kvitta í gestabókina!
Júlía Dís kom í heiminn þann 6. júní 2007 klukkan 04:53, í Hreiðrinu á Landspítala Íslands. Hún var 16,5 merkur (4165 gr) og 52 cm. Hún var með dökkt og mikið hár og krúttlegar bollukinnar.
Aníta Lea fæddist þann 27. júlí 2009 klukkan 17:21, á Herlev hospital. Hún var 15 merkur (3790 gr) og 54 cm. Bæði lengri og léttari en stóra systir og með þétt og mikið hár.
Mamma okkar heitir Edda Rún Gunnarsdóttir, hún útskrifaðist sem grunnskólakennari sumarið ´08 og er nú í master í menntunarfræðum -fjölmenningu. Pabbi okkar heitir Gylfi Björnsson og hann er að læra byggingarfræði og þess vegna búum við öll saman í Danmörku.
Síðan er læst svo ef þið viljið lykilorðið getið þið sent tölvupóst á eddarun@hotmail.com


Tvíburar
22. maí -21. júní
Óþolinmótt eftir að hefja leikinn er líklegt að tvíburabarnið hafi sparkað duglega í móðurkviði.
Tvíburabörn eru líkleg til að byrja snemma að tala og þau segja sína skoðun frá byrjun.
Þau eru mjög forvitin í eðli sínu og þurfa því alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni.
Þau eiga mjög erfitt með að sitja kyrr og eiga mjög erfitt með að þegja.
Athyglin beinist stöðugt að nýjum viðfangsefnum en áhuginn hverfur oft mjög fljótt.
Tvíburarnir þurfa mikla örvun og hyggilegt er að leikföng þeirra séu margvísleg og vitsmunalega þroskandi,
svo sem púsluspil og þrautir af ýmsu tagi. Því fyrr sem tvíburabarnið kemst í hóp annarra barna því betra því tvíburarnir elska félagslíf
enda hafa þeir mikla samskiptahæfileika. Líf og fjör er tvíburum að skapi.
Yfirleitt er tvíburinn bráðþroska vitsmunalega og því nauðsynlegt að sinna þessum þætti í uppeldinu með því að reyna að svara t.d.
spurningum hans (þær eru reyndar oft ansi margar) og ræða við hann.
Litlir tvíburar eru oft stríðnir og hrekkjóttir en það ber ekki að taka of alvarlega því yfirleitt er meiningin ekki slæm.
Hann grípur oft til prakkarastrika til að hrista upp í umhverfinu því hann hefur ríka þörf fyrir tilbreytingu.
Einkaréttur smábarna.
Ef mér finnst það flott, þá á ég það
Ef ég held á því, þá á ég það
Ef ég næ því frá þér, þá á ég það
Ef ég var með það rétt áðan, þá á ég það
Ef ég á það, má það á engan hátt líta út fyrir að vera þitt
Ef ég er að byggja eitthvað, þá á ég alla kubbana
Ef það líkist dótinu mínu, þá á ég það
ELSKU MAMMA OG PABBI...
Ég er með svo litlar hendur,ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni.
Fæturnir á mér eru svo stuttir,farðu hægar svo ég geti fylgt þér.
Ekki slá á hendurnar mínar þegar ég snerti eitthvað fallegt,ég skil það ekki.
Horfðu á mig þegar ég er að tala við þig,þá veit ég að þú ert að hlusta.
Ég hef viðkvæmar tilfinningar,ekki vera alltaf að skamma mig.
Leyfðu mér að gera eitthvað vitlaust án þess að þér finnist ég vitlaus.
Ekki búast við því að myndin sem ég teikna eða rúmið sem ég bý um sé fullkomið.
Elskaðu mig bara fyrir að reyna.
ELSKU BARN.
Ást mín verður með þér
hvenær sem þú þarfnast hennar.
Ást mín verður með þér
þegar gleðin ber þig ofurliði.
Ást mín verður með þér
þegar erfileikarnir eru að buga þig .
Ást mín verður með þér
þegar þú óttast lífið .
Ást mín verður með þér
í dag og alla daga.