Guðrún Þórey, Jómundur Örn og Guðmundur Heiðar
 

Guðrún Þórey og Ás



Velkomin á heimasíðu Guðrúnar Þóreyjar, Jómundar Arnar og Guðmundar Heiðars. Síðunni hefur verið læst með lykilorði, en það er hægt að nálgast með því að senda tölvupóst á margret@vesturland.is ...Ekki hika við það!

UM OKKUR:

Guðrún Þórey fæddist þann 20. desember 1997 á fæðingardeild Landspítalans. Hún var 3.525 g (14 merkur) og 50 cm löng. Hún var með mikið dökkt hár og dökkblá augu, sem urðu svo brún eftir nokkra mánuði. Guðrún Þórey býr hjá mömmu sinni, Margréti Helgu, og fósturpabba, Eyjólfi Kristni, á Hvanneyri, en pabbi hennar, Svanur Þór, býr í Reykjavík.

Jómundur Örn fæddist þann 13. nóvember 2005 á fæðingardeild Sjúkrahúss Akraness. Hann var 4.225 g (rétt tæpar 17 merkur) og 55 cm langur. Hann var með ljósskolleitt hár og dökkgráblá augu.

Guðmundur Heiðar fæddist þann 21. júlí 2008 á fæðingardeild Sjúkrahúss Akraness. Hann var 4.135 g (ca 16,5 merkur) og 55 cm langur. Hann var með dökkbrúnt hár og dökkblá augu.

Þessi síða verður svona nokkurskonar heimasíða allrar fjölskyldunnar, þannig að þótt heimasíðan sé á barnaneti þá mun verða fjallað um það helsta sem gerist hjá okkur öllum.



Jómundur Örn trúður á öskudag



Heimsóknir í dag: 1
Heimsóknir frá upphafi: 10392