
29. des. 2011 ekki seinna vænna ...
Takk fyrir heimsóknina.








Velkomin á heimasíðuna okkar
Við erum systkinin Guðjón Már, Arnór Már og Arney Sjöfn. Guðjón er fæddur í Reykjavík 10. júní 2001, Arnór fæddist líka í Reykjavík en örlítið síðar eða 18. apríl 2004, svo fæddist Arney Sjöfn 22. apríl 2010. Við bræðurnir erum góðir vinir og erum sérlega góðir við litlu systur. Við búum í Reykjavík með mömmu okkar og pabba en þau heita Líney Björg og Atli Már. Guðjón Már er alveg að ljúka 3. bekk í Sæmundarskóla (vor 2010) og Arnór Már er í leikskólanum Reynisholt þangað til í júlí en þá hættir hann og byrjar svo í skóla í haust.



Okkur finnst ofsalega gaman að vinir og ættingjar geti fylgst með okkur en endilega kvittið öðruhvoru í gestabókina því þá sjáum við hverjir eru að kíkja á okkur. Ef þú/þið eruð ekki með lykilorð er bara að skrifa mömmu lineybs@gmail.com og hún sendir þér/ykkur það.
Takk fyrir innlitið - sendum knús og kveðju.



