
Við erum Guðbjartur Þór, Unnur Erna, Þorsteinn Óli og Ólafur Kristinn

Um Guðbjart: Ég er fæddur þann 3. mars 2002. Ég var 4370 grömm eða 17 og hálf mörk. Ég var svo 56 cm.
Um Unni Ernu: Ég er fædd þann 7. apríl 2006. Ég var 4475 grömm eða 18 merkur. Ég var svo 54 cm löng.
Um Þorstein Óla: Ég er fæddur þann 12. mars 2008. Ég var 4745 grömm eða 19 merkur. Ég var svo 58 cm.
Um Ólaf Kristinn: Ég er fæddur þann 23. mars 2010. Ég var 4600 grömm eða 18 og hálf mörk. Ég var svo 54,5 cm.
Við erum öll fædd á Sjúkrahúsinu á Akranesi. Við erum sveitabörn og bjuggum á Kaðalsstöðum II í Borgarfirði, en fluttum vorið 2008 í Miðhús á Ströndum og erum þar af leiðandi orðin rosalega flott Strandabörn! Við eigum Kindur, hesta, hunda, kétti og hænsni.
Guðbjartur Þór er skírður eftir Afa Guðbjarti
Unnur Erna er skírð eftir ömmunum sínum, þeim Unni og Ernu.
Þorsteinn Óli er skírður eftir forfeðrum sínum á Kaðalsstöðum, Þorsteinn var bróðir langafa hans og Ólafur var langafi hans, en hann var alltaf kallaður Óli, þannig að okkur foreldrunum fanst tilvalið að skíra hann Óla. Þorsteinn var svo alltaf kallaður Steini, Þannig að Þorsteinn Óli er ýmist kallaður fullu nafni eða Steini.
Ólafur Kristinn er skírður eftir Ólafi langafa sínum á Kaðalsstöðum og Gumma afa, sem heitir Guðmundur Kristinn. En langafi hans hét líka Guðmundur Kristinn sem og föðurbróðir Ólafs..
Mamma okkar heitir Barbara og pabbi okkar heitir Viðar. Guðbjartur á þó annan pabba sem heitir Elías.

Svo náttúrulega allir að kvitta í gestabókina okkar