
takk fyrir myndirnar mín kæru:)
Kúlan er aldeilis að stækka. Ég held hún eigi eftir að taka góðan vaxtarkipp áður en ég kem heim...víííí hvað ég hlakka til!
Innilegar hamingjuóskir til ykkar beggja :)
Megi ykkur ganga sem best.
Kveðja,
Inga Vala
óguð! til hamingju með bumbuna! er bara að átta mig á þessu núna.. :) þið takið ykkur rosalega vel út sem tilvonandi foreldrar ;) þúsund kossar, Svala.
Svakalega ertu nett Sigríður, ég hálf öfunfa þig ;) Vonandi kemur allt til með að ganga svona vel áfram! Kossar úr Breiðholtinu,
Ólöf og bumbukrílið
Til lukku með bumbuna Sigríður og Skúli. Hún er einstaklega krúttuleg :)
Hæhæ og gaman að þið séuð komin með síðu svo hægt sé að fylgjast með gangi mála svona úr fjarska...
Vonandi hittumst við svo eitthvað um jólin og hver veit nema við verðum þá orðin þriggja manna fjölskylda ef litla bumbukrúttið ætlar ekki að láta bíða lengi eftir sér;)
Hafið það gott og njótið þessa tíma, hann er bara yndislegur!
Hæ elskurnar og takk kærlega fyrir frábæra daga hjá ykkur, þið eruð yndisleg. Hlakka til að sjá ykkur aftur í vikunni.
Kveðja,
mamma
Þið eruð of langt í burtu ha. knús og kossar.
K.v. Magnea Frænka
P.s. hlakka til
Elsku Sigríður og Skúli,
rakst á slóðina á blogginu hjá Dagrúnu. Gaman að lesa og sjá myndir, tekur þig ekkert smá vel út Sigríður (og Skúli eflaust líka.. ;))
Gangi ykkur sem allra best. Hlakka til að fylgjast með.
kv.
Kristín Gríms
Halló elskurnar mínar
Bumban er æði og bara allt í einu orðin stór !!! Hlakka svo til að sjá ykkur eftir 2 vikur og tel bara dagana ;O)
Knús og kram og strok á bumbuna
Váá! Það kom bumba bara allt í einu ;) Ótrúlega sæt :) Sakna minnar bumbu nú smá þegar ég sé þig elskan. En þetta með tilfinningarnar, I feel your pain!!! Svoo að skilja þig!
Þarf að koma til þín sem fyrst með óléttufötin og allar græjurnar sem tilheyra.
Ps. takk æðislega fyrir okkur 3 um daginn, æðislega kósý kvöld.
Knús á þig og bumbuna
Erla
Æi. Sakna ykkar. Þið eruð stundum of langt í burtu finnst mér. En það er víst bara eigingirni að hugsa svona.
Knús til ykkar úr Hamró
Haha þú ert krútt sigríður...að klæða sig í þröngustu fötin til að bumbann sjáist:) Hlakka til að fylgjast með bumbunni stækka! Stórt knús
Elsku Skúli og Sigríður.....til hamingju með bumbubúann ykkar......spennandi og yndislegir tímar framundan.....takk fyrir að leyfa okkar að fylgjast með !
Kveðja, Arna-Bjarni og krakkarnir
Hæ hó!
Yndislegar fréttir, það voru sko spennt amma og afi sem laumuðu fréttunum að okkur :)
Gangi ykkur ofsalega vel, hlakka til að fylgjast með :)
kv,
Guðný Þóra.
Vildi bara kvitta fyrir mig, var að kíkja á bumbuna :)
Bara flottust
ææ hvað þú ert sæt!
gangi ykkur vel og til hamingju :*
Hæhæ. Fréttum að þið væruð komin með síðu og máttum til með að kíkja. Verður gaman að fylgjast með:o)
Kær kveðja,
Halla og co
Jahérna
Innilega til hamingju með bumbubúann
Þú ert ekkert smá flott með kúluna Sigríður, ég hlakka til að sjá hana þegar hún er orðin stærri...
En sætt alltsaman :) ekki laust við að það klingi bara þegar maður sér svona sæta bumbu ;)
Til hamingju með krúttið:* Hafið það gott
Mig langar í nýjar bumbumyndir :o)
Til hamingju með þetta litla kraftaverk:)
Gangi ykkur sem allra best í því sem framundan er!
Kveðja
Valdís og Birkir Kári
Hæhæ
Innilega til hamingju með litla bumbukrúttið ykkar!
Þú lítur ekkert smá vel út Sigríður!...já og Skúli líka ;)
Vonandi gengur allt vel, langt langt langt síðan ég hef heyrt/séð/spjallað....við þig Sigríður mín! :-/ En nú get ég sko fylgst með göngu mála og séð bumbuna vaxa og síðar litla gullið. :)
Þetta er sko án efa það besta í lífinu, því get ég lofað, tilfinningarnar svo sterkar að það er lýginni líkast!
Knús knús suður á boginn þar sem er vonandi ekki allt á kafi í snjó... :)
Helga Hrönn og Þorsteinn litli
endalaust til hamingju með gríslinginn. gangi ykkur allt í haginn.
Hæ krúsídúllur!! Aftur innilega til hamingju með litla bumbukrílið! Sigríður mín þu tekur þig glæsileg út með krúttu bumbuna!
Kiss og knús á ykkur öll
Kveðja frá Ameríkunni!
Jei jei :) Ég fylgist spennt með :) Klappa krílinu á hverjum degi ;)
Mig langar að sjá nýjar bumbumyndir:)
Ég er ánægður með ykkur og hlakka til að sjá myndskeiðið...
Gaman að sjá að allt gengur vel og líka sáttur með þessa síðu.
Munið svo bara að spila nóg af klassískri tónlist fyrir litla
bumbubúann, það á að hjálpa til með gáfurnar... þannig að ekki
spila of mikið.
Kvittkveðja frá Pétri