Óðinn, Védís og Ægir
 

Þetta er heimasíða Óðins, Védísar og Ægis. Hér eru myndir af þeim frá fæðingu, nokkur myndbönd og stuttar fréttir fyrir vini og vandamenn erlendis... eða bara þá sem vilja dást að þeim, sem skiljanlegt er.


Óðinn og Védís eru tvíburar. Þau eru líka systkini... en þetta virðist vefjast fyrir sumum. Þau eru í tvíburamerkinu því þau eru fædd 21. maí 2003. Þau áttu að vera ljón en fæddust 12 vikum of snemma. Védís var 1149 grömm (4,5 merkur) og Óðinn 1384 grömm (5,5 merkur). Bæði voru þau 40 cm löng. Þau fæddust ekki svona snemma því þau eru tvíburar heldur vegna þess að fylgjan hans Óðins losnaði. Það er reyndar aðeins algengara á tvíburameðgöngum...

Ægir er einburi og litli bróðir Óðins og Védísar. Þau þrjú eru sem sagt systkini, alveg eins og fyrri tvö. Ég veit að þetta er flókið en reynið að halda í við mig. Ægir fæddist þann 16. janúar 2008 eftir 39 vikna meðgöngu. Hann var töluvert stærri en systkini sín en þó frekar lítill, að mati mömmu hans, sem er greinilega fljót að gleyma, eða 14 merkur og 50,5 cm.

Fyrir þá sem kynnu að spyrja... þá eru Óðinn og Védís tvíeggja tvíburar. Stelpa og strákur eru alltaf tvíeggja. Eineggja tvíburar eru "alveg eins", líka kynið, enda komnir úr sama egginu og sömu sæðisfrumunni. Tvíeggja tvíburar eru eins og orðið "tvíeggja" gefur til kynna komnir úr tveimur eggjum... og tveimur sæðisfrumum og eru ekki líkari en önnur systkini.

Ægir er svo úr þriðja egginu en kom sem sagt ekki fyrr en tæpum fimm árum síðar. Hann, Óðinn og Védís eru öll jafn skyld, þó að Ó&V séu tvíburar en Ægir einburi. Ég sagði að þetta væri flókið.

Mamman, þessi með eggin, heitir Hildur og er fædd 1976. Pabbinn, þessi með sæðisfrumurnar, heitir Ýmir og er fæddur 1972. Tölvupóstfang mömmunnar er hildurg hjá gmail punktur com og þangað má senda ósk um lykilorð ef þið ráðið ekki við vísbendinguna.