
Velkomin á síðuna mína! Hérna koma inn nokkrar myndir af mér og fjölskyldu minni og stundum nokkrar sögur af afrekum mínum! Endilega skoðaðu þig um 
Nýjar myndir frá desember + jól og áramót
Gísli Marinó Sváfnisson fæddist á Landspítalanum þann 14. ágúst 2009 kl. 2:03, aðeins tveimur tímum á eftir áætlun! Ótrúlega stundvís piltur!
Hann mældist 14 merkur og 52 cm við fæðingu og er að sjálfsögðu með fallega rauða lokka.
Ljónið
23. júlí - 22. ágúst
Konungurinn í frumskóginum er mættur og vill einmitt vera meðhöndlaður í samræmi við tign sína. Litla ljónið þarfnast athygli (við erum að tala um að vera alltaf miðdepill athyglinnar!) og vill láta taka eftir sér og láta dást að sér. Það getur verið mikil vinna að eiga börn í ljónsmerkinu. Börnin eru oft hávaðasöm og mjög opin í tjáningu. Ef barnið er ánægt er það yndislegasta og fallegasta barn í heimi en ef það er óánægt öskrar það og lætur öllum illum látum. Heimilislífið kemur til með að snúast mikið í kringum kraftmikinn ljónsungann sem getur verið mjög stjórnsamur og frekur. Það þýðir ekki að segja ljóninu að læðast meðfram veggjum því slíkt er andstætt eðli þess og er ekki til annars en að brjóta það niður. Vingjarnleg ákveðni er það sem dugar best. Ljónið er merki stjórnunar og foreldrar þurfa að virða þörf þess fyrir persónulegt sjálfstæði og því er gott að fela því snemma ábyrgð. Mikilvægt er að kenna því að taka tillit til annarra. Það þarf að taka tillit til þess í uppeldi að ljónið er einstakt og veita því athygli, hvatningu og ekki síst að hrósa því þegar það hefur gert eitthvað jákvætt.
Endilega kíkið á sætu myndirnar af prinsum og verið dugleg að skrifa í gestabókina
Bestu kveðjur,
Eva, Sváfnir og Gísli Marinó