Gígja Kristný og Örlygur Hrafn
 

Minningabók ÖHS

Hér munum við setja inn skemmtilegar minningar úr lífi Örlygs Hrafns.

- Örlygur fékk fyrstu tönnina 9 mánaða og varð hann voða lasinn með því, á sama tíma fékk hann RS.vírusinn og varð voða veikur.

-Hann hætti á brjósti 12 mánaða, daginn eftir 1 árs afmælið :) þá ákvað hann allt í einu sjálfur að þetta væri ekki lengur málið ;) gargaði bara á brjóstið! Drekkur bara rísmjólk í staðinn.

- Örlygur byrjaði að labba 12,5 mánaða, liggur við sama dag og mamma byrjaði að vinna aftur. Pabbi fékk þann heiður að fá fyrstu skrefin ;)

-Fyrstu orðin voru: mamma, mammammmamm, dudda, Aaa búu (allt búið), svo hefur hann verið mjög iðinn við að reyna að herma eftir dýrum;) En tæplega 18 mánaða þá skipar hann bara ennþá fyrir en talar ekki mikið nema blalbalblalbalbababal og dýrkar að tala í síma!

-Finnst skemmtilegast að leika í pottum og með sleifar, allar fjarstýringar og símar eru í 1.sæti, boltar, bílar, kubbar, bækur og dótið hennar Gígju sinnar;)

- Eini sénsinn til að mamma og pabbi geti skipt á Örlygi þá er að leyfa honum að tala í símann, þá liggur hann grafkyrr og talar og talar og talar,)

-18 mánaða byrjaði ÖH að segja nokkur orð: Ammmma, ava, Gjagja (Gígja), Bi (þýðir bæði pabbi, Búi og nebbi ;)

- Í afmælinu hjá Ömmu Öddu í nóv´11 þá tók ÖH skemmtiatriði, hinn eftirminnilega fugladans með þvílíkum tilþrifum:)

- 20 mánaða, í hvert skipti sem ÖH setur upp derhúfu eða gleraugu þá segir hann: Yo Yo ;)

-20 mánaða; duglegur að pissa í klósettið hjá Möggu og svo heima áður en hann fer að sofa:)

-22mánaða, þá er ÖH byrjaður að segja fullt af orðum: mamma, pabbi (pabbæja), amma, afi, Gígja, Heijur(heiður), Helllea (Helena), Bibi (Birkir),  Áda (Ásta), Búi, Adda, Eyja (Freyja), Cheeeos, Rússina, Aaa bú (allt búið), Bóbó baasi (bangsi), Bæ (Latibær).  Syngur líka Dvel ég í Draumahöll hástöfum, með sínu nefi ;)

Júlí 2012; hættur hjá Möggu Dagmömmu og tilbúinn að byrja í leikskólanum Akraseli í ágúst eftir sumarfrí með mömmu og pabba:)

- Örlygur er orðinn soldið sérsinna í fatavali og er ekki mikið fyrir að fara í ný föt. Vill helst bara föt sem hann hefur farið í áður og er illa við buxur sem ná ekki niðrá ökla ;) Er duglegur að vilja klæða sig sjálfur, með misgóðum árangri, En raðar alltaf skónum sínum fallega :) Er mikið fyrir það að klæða sig í ALLT þegar hann fer út, hvernig sem veðrið er. Þ.e. húfu og úlpu ;)

-Ágúst 2012, Örlygur dró mömmu sína fram í geymslu snemma morguns og setti undir sig hausinn og sagði: Mamma, Íss ? ;) skyldi ekkert í litlum undirtektum.

- 2ja ára og 2ja mánaða vel talandi og gerir sig skiljanlegan og talar og talar og talar:) á mjög gott með að ræða við fólk, hvort sem hann þekkir það eða ekki!

-Okt 2012, 2ja og 1/2árs