

Til hamingju með afmælið sæta frænka, skemmtu þér ýkt vel í afmælisveislunni á laugardaginn, það er svo gaman að fá fullt af pökkum til að tæta!
Hæhæ sæta=) Innilega til hamingju með að vera orðin 1 árs!!! Þetta er ekkert smá fljótt að líða, alveg ótrúlegt ;) Hafðu það gott sætust og sjáumst =)
Kv. Ísak Hrafn og mamma =)
Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag, hún á afmæli hún Gígja Kristný, hún á afmæli í dag!!!!!!
Sætasta 1. árs stelpa;-) hafðu það gott í dag. Bið kærlega að heilsa þeim gömlu, mjög stutt í að mamma verði árinu eldri=)
Kveðja Júlía Rós
Hæ skutla!
Til hamingju með að vera orðin 1 árs! Það er geggjað að vera 1 árs, ég tala af reynslu!
luv,
Fúsi froskur
Hæ sæta :)
Til hamingju með afmælið! Hafðu það rosa gott í dag :-)
Knús, cK
Hæ sæta!
Takk fyrir síðast og innilega til hamingju með 1 árs afmælið í dag :D Vildi óska að ég gæti verið hjá þér núna... en þú verður að láta þér nægja að fá fullt af kossum og knúsi í gegnum netið ;)
knús og kossar,
Vallý
Hæ Gígja Kristný okkar, innilega til hamingju með 1 árs afmælið... Hafðu það gott í dag og skemmtu þér svo vel á laugardaginn í partýinu. Verst að komast ekki í afmælið ;/
Kv úr sólinni á Austfjörðum:)
Hæhæ Gígja Kristný
Til hamingju með eins árs afmælið! Njóttu dagsins og láttu nú mömmu og pabba dekra svoldið við þig :)
Bestu kveðjur,
Sigga og co
Til hamingju með afmælið litla sæta :)
Vonandi verður dagurinn frábær og knúsin og kossarnir óteljandi!
Afmælisknús og kossar
Kristín, Anna Magný & Hulda Þórunn
Hæ vinkona! Flott nýja klippingin þín :) og þú ert ekkert smá klár í sundi! Ég hlakka til að koma í afmælið þitt! Knús
Hallo fína frænka... Æðislegar nýju myndirnar þínar, þú ert aldeilis orðin stór:) Verst að komast ekki í afmælið þitt, við verðum víst ekki á suðurlandi þá...
Sjáumst í sumar!!!
Kv frá Eskifirði
hæhæ litla fjölskylda, var að kíkja á myndir og kvittaði fyrir mig. Vonandi sjáumst við í sumar. Kv Keli og co
Hæ sætasta mús!
Það styttist óðum í eins árs afmæli hjá þér;-) það verður nú spennandi að fá að blása á fyrsta afmæliskertið. Segðu nú mömmu að fara að koma í heimssókn næst þegar þið komið til Rvk.
Kveðja Júlía Rós
Hæ elsku Gígja Kristný!
Takk fyrir að lána mér svona mörg föt, mér líður ótrúlega vel í þeim og takk fyrir gjöfina og kortið. Ég hlakka svo mikið til að hitta þig. Þú verður að fara að kíkja í heimsókn með mömmu og pabba við tækifæri.
Þín vinkona,
Kristín Lóa
Hæ sæta, gaman að kíkja á síðuna þína, þú ert nú meiri krúsídúllan.
Hæ hæ sæta frænka. Það styttist í 1 árs afmæli hjá ykkur Höskuldi :) Þú ert nú meiri rúsínan. Bestu kveðjur til mömmu og pabba. Aldeilis fínt orðið fyrir utan húsið ykkar :)
Hae litla krúsídúllan mín!!! ég sakna tín, mommu tinnar og pabba brjálad =* Verdur orugglega byrjud ad labba tegar ég kem heim! Knús frá Spáni skvísan mín. Lovjú!
Vá hvað þú ert orðin stór og auðvitað alltaf jafn sæt Gígja Kristný.
Mamma mín biður að heilsa mömmu þinni :)
Kær kveðja,
Ingvar Dagur
hæ hæ elsku frænka. flottar myndir, hún mamma þín er alveg frábærlega dugleg í þessu :)
kossar og knús fjölskyldan á Ásabrautinni
Sæl frænka, rosalega ertu orðin dugleg, var að skoða nýja myndbandið af þér. Algjör dúlla. Bestu kveðjur af austan, Helga Dögg og strákarnir
Hæ elsku fjölskylda
Var að horfa á nýju myndböndin sem ég var ekki búin að sjá og ég mæli með að allir horfi á 7.mánaða klappa. Það er besta oooo lúkkið hennar sem hún gerð þegar við komum í heimsókn til ykkar. Ég dey úr hlátri þegar ég sé hana gera þetta það er svo sætt.
Kveðja Júlía Rós
Dúddamía! Litla dúllan þín :)
Rosa flott síðan þín og allar myndirnar, þú ert auðvitað bara sætust!
Það hefur aldeilis orðið aukning í fæðingum á Akranesi, þú númer 100 í júní í fyrra og Hulda Þórunn númer 100 núna í apríl!
Allir sjúkir í að fæða á Akranesi greinilega!
Vonandi gengur allt vel, hlakka til að sjá þig taka til hendinni hjá Möggu í haust ;)
*knús*
Kristín, Anna Magný & Hulda Þórunn
Hæ Gígja Kristný mín! Vonandi fer þér að batna. Það er ekkert gaman að vera svona veikur. Skemmtilegar nýju myndirnar :)
Stórt knús,
Erna
Ég sakna þín litla krútt!
*Knús*
Heiður
Hæ sætust!!
Það var ekkert smá gaman að hitta þig um daginn á Skaganum. Okkur Nick finnst þú ótrúlega skemmtileg, enda heillaðir okkur algjörlega upp úr skónum með full af trixum og smitandi hlátri :-)
Hlökkum til næst sæta mín!
Love,
Erna og Nick
Kvitti kvitt frænkumúsin mín;)
Kv. Fanný frænka
hæhæ
Það er ekkert smá hvað foreldrar þínir eru duglegir að taka og setja inn myndir af þér litla dúllumús! Rosa gaman að skoða allar myndirnar af þér! Og gleðilegt sumar öll sömul :)
Bestu kveðjur úr Kópavoginum
Gleðilegt sumar skvísa :) hlakka til að hitta þig bráðum :-)
Sæl frænka, kvitt kvitt fyrir innlitið í myndaalbúmið þitt. Fínar myndar af þér í sundinum. Ætlum á morgun í sund á Seyðisfirði, laugin verður hituð upp.Bið að heilsa mömmu og pabba. Kveðja Helga Dögg
Hæ Gígja Kristný...
Við höfum aldrei hist en mömmur okkar eru vinkonur. Þú ert ekkert smá stór! Við verðum að fara að hittast svo þú getir kennt mér allt þetta sem þú kannt, eins og að standa og skríða og svona :)
Sjáumst fljótlega!
kv.
Heiðar Darri