

Vá hvað ég sakna þín elsku rúsínu barn - ömurlegt að geta ekki verið með þér úti á Tenerife :( Hlakka til að hitta þig þegar þú kemur heim.. *Knús* Heiður
Láttu mömmu þína passa þig á sólinni!
Bestu kveðjur
Elsku Gígja Kristný, gaman ad sja hvad thu dafnar vel. Thu ert algjort KRUTT! Hlakka til ad fa taekifaeri til ad knusa thig :)
Kv. Erna i Sidney
Hæ Gígja!! Langaði bara svona til að kasta á þig kveðju frá landi íssins til þín á ströndina!!!
Njóttu lífsins!
kv,
Fúsi froskur
Góða ferð til Spánar Gígja Kristný :) bið að heilsa föruneytinu :D
Knús,
cK
Elsku Linda og Stebbi.
Innilega til hamingju með nafnið á fallegu prinsessunni ykkar. Ótrúlega fallegt og tignarlegt nafn.
Hafið það sem allra best.
Kv. Berglind.
Hæ hæ
Ekkert smá flott og sæt stelpa - algjört krútt:)
Bið að heilsa og vonandi fær maður nú að sjá þig einhvern tíma í eigin persónu.
Knús kveðjur Silla
Elsku saeta Gigja Kristny min (afsakid -enskt lyklabord)
Til hamingju med fallega nafnid thitt. Thu ert ekkert sma saet og dugleg ad staekka. Eg hlakka til ad hitta thig i februar.
Knus til ykkar thriggja,
Erna i Sydney
Hæhæ sæta stelpa:)
Ég ákvað að kvitta í þetta skiptið..er alltaf að kíkja reglulega á þig :)
Til hamingju með nafnið flotta... :)
Kv. Katrín
Elsku Gígja Kristný! Innilega til hamingju með fallega nafnið þitt!! Amma Kristný hlýtur að vera að springa út monti:):) Þú ert ofsalega flott stelpa!
Kveðja, Ingibjörg, Anna Guðrún, Steinar, Sigurður Hrannar og Selma Dögg
Hæ hæ.
Vildi kvitta fyrir innlitið en mamma mín er vinkonu ömmu þinnar (þ.e. Kristný). Vildi bara óska ykkur innilega til hamingju með fallegu prinsessuna ykkar og fallega nafnið hennar. Gangi ykkur allt í haginn.
Bestu kveðjur, Elsa Lára.
Sæl Gígja Kristný litla frænka. Var að skoða myndirnar úr skírnaveislunni og langaði bara að kvitta fyrir innlitið. Vonandi gengur allt vel hjá ykkur. Frændi þinn Höskuldur Már er kominn með hlaupabóluna :( Bið að heilsa mömmu og pabba, þín frænka Helga Dögg
Hæ pæ! Innilega til hamingju með fallega nafnið þitt... fer þér ofsalega vel :-)
Biðjum að heilsa mömmu!
Bestu kveðjur,
Björk og Margrét Eva
Innilega til hamingju með nafnið. myndarlegt! kær kveðja til pabba og mömmu.
til hamingju með nafnið!! ekkert smá fallegt og fer þér vel!
Sæl Gígja Kristný frænka. Innilegar hamingjuóskir með nafnið þitt. Fallegt nafn. Biðjum að heilsa í bæinn, þínir frændur Kristján Jakob og Höskuldur Már
Hæ hæ Gígja Kristný. Innilega til hamingju með skírnina og fallega nafnið þitt!!! Ofsalega fallegt nafn! Bestu kveðjur úr Kópavoginum til ykkar allra!
Hæ elsku Gígja Kristný!!! Til hamingju með nýja fallega nafnið þitt!! Mér finnst þetta ýkt flott nafn og mér finnst það fara þér alveg svakalega vel!! Virkilega falleg athöfn og skemmtileg veisla:) Takk fyrir mig!!
kv,
Fúsi
p.s. mamma og pabbi biðja að heilsa!!
Hæ elsku Linda og Stebbi.
Til hamingju með fallega nafnið á yndislegu litlu prinsessuna ykkar, sé alveg fyrir mér hvað sumir hafa orðið hissa!!!!! að fá nöfnu. Óska ykkur alls hins besta í nýja húsinu ykkar.
Bestu kveðjur frá okkur í Lux
Eyvör og co.
Elsku Gígja Kristný.
Til hamingju með fallega nafnið þitt :) það fer þér rosalega vel.
Knús,
Charlotta og Dóri
Til hamingju með nafnið. það er voðalega fallegt.Leitt að komast ekki í skírnina hjá þér en bið að heilsa mömmu og pabba
Kveðjur
Erla
Hæ sæta skvísa
Hlakka mikið til að frétta hvaða nafn þú munt bera á morgunn... vonandi verða mamma og pabbi flót að setja það inn á síðuna (bara pínu forvitin). Eigið þið inndislegan dag á morgunn bið að heilsa mö og pa.
Kveðja Júlía Rós
Hæ elsku frænka!!
Takk fyrir síðast, þú ert nú meiri gullmolinn. Hlakka til að hitta þig og þína á morgun.
Kveðjur frá Háholtinu;)
Hæ hæ, ég er ýkt geðveikt spenntur að hitta þig á sunnudaginn og líka ýkt mega spennandi að fá að vita hvað þú heitir!!! Ég er að deyja úr forvitni!!!!
kv,
Fúsi
Hæhæ snúlla - ekkert smá gaman að skoða allar sætu myndirnar af þér - Ari var sérstaklega ánægður með CHEERIOS myndina ... alveg greinilega efni í módel;)
hlakka til að sjá ykkur á sunnudaginn
knús Helga Lilja
Hehe kom vitlaus linkur á heimasíðunni minni.
Hæ hæ sæta.
Þú ert svo mikil skvísa. Hlakka til að hitta þig sem fyrst. Þurfum nú að mæla okkur saman og athuga hvort ég er ennþá minni en þú, agalegt að vera svona mikill mjóni við hliðina á þér hehe!!! Bið að heilsa í sveitina.
Kveðja Sigurþórsson
Hæ hæ sæta
Ofsalega gaman að skoða myndirnar af þér! Þú ert ekkert smá brosmild og sæt stelpa! Biðjum að heilsa m&p!
Sæl frænka, leiðinlegt að við gátum ekki komið og hitt þig á laugardagin í brúðkaupinu. Ég er búinn að vera með hlaupabóluna og svo er Höskuldur Már ergilegur í bíl þannig að við slepptum því að koma núna. En vonandi komum við bara fljúgandi í september og gaman væri að hitta þig þá í nýja húsinu ykkar. Biðjum að heilsa í bæinn, þínir frændur Kristján Jakob og Höskuldur Már
Hæ hæ sæta fjölskylda og til hamingju með litlu krúsidúlluna! Æðislegar myndirnar og gaman að sjá hvað ykkur gengur vel ;0)
Bestu kveðjur frá London...Tinna,Maggi og Arngrímur litli