Gunnar Flóvent og Helgi Smári
Gunnar Flóvent og Helgi Smári
 
 
 
Velkomin/n

 
30. ágúst - Nýjar myndir bæði í júlí og ágúst

Jæja, mamman loksins búin að vinna upp gamlar syndir og setja inn myndir.
Helgi Smári er farinn að skríða um allt og standa upp en er enn tannlaus greyið :) Hann byrjar á Leikkoti hjá Öllu og Huldu þann 20. sept en mamman byrjaði í skólanum í dag.
Gunnar Flóvent er alltaf hress og elskar að fara út að leika, veiða fiska og fara í IKEA :)



Gunnar Flóvent kom í heiminn í Hreiðrinu á LSH þann 31. mars 2008, 6 dögum eftir áætlaðan fæðingardag. Hann var 12,5 merkur (3115 g) og 52 cm og að sjálfsögðu finnst okkur hann vera flottastur í heiminum :)

Helgi Smári fæddist á sömu stofu og Gunnar Flóvent í Hreiðrinu á LSH þann 20. desember 2009, 2 dögum fyrir áætlaðan fæðingardag. Hann var 14,5 merkur (3605 g) og 52,5 cm og að sjálfsögðu finnst okkur hann líka vera flottastur í heiminum :)

Hinir stoltu foreldrar heita Guðmundur Smári Gunnarsson og Hanna Sigrún Helgadóttir. 

 



Sendið okkur póst á gummigun[hjá]gmail.com eða hannahelga[hjá]gmail.com til að fá lykilorðið.


Heimsóknir í dag: 1
Heimsóknir frá upphafi: 6605