Börnin þrjú
 

Ævisaga prinsessunnar- Ásdísar Maríu

Fyrsta brosið til sýnis þegar hún er 2 vikna og 2 daga... sunnudaginn 14.febrúar úti í bíl fyri utan sumarbústaðinn hjá M+P...hún fékk ekki að fara inn í hús þar sem allt var í einangrun og subbi, var bara úti í bíl að spjalla við mömmu sína :)

9 vikna er hún byrjuð að hjala, horfir í augun á okkur og brosir.  Sefur yfirleitt frá 11-5 á nóttunni en drekkur svo kl 5 og 7...Vakir ca 3x á dag í ca klst....nema á kvöldin, þá vakir hún alveg og vill hanga á brjóstinu...stundum smá óróleg í maganum, en ekkert alvarlegt...

Sefur úti í vagni í Vík í Mýrdal 9 vikna, í 2 klst í skítakulda reyndar :( Er svo sett út í vagn á 2.í páskum í 2. sinn 10 vikna. Á næstu vikum fer hún reglulega út í vagn og steinsefur þá í 3-4 klst.

Í 12 vikna skoðun er hún loksins farin að þyngjast almennilega, þyngist um 600 gr á 3 vikna tímabili, 200 gr á viku sem er mun meira en áður. Hingað til hefur hún þyngst að meðaltali um 100 gr á viku.

Fer til NY 12 vikna. Sefur allan tímann í flugvélinni. Ekkert mál að læra á tímamismuninn, sefur bara þegar við viljum að hún sofi ! Lang ferðalag heim með viðkomu í Glasgow og lendingu á Akureyri. Hún kvartar ekkert heldur sefur allan tímann + alla nóttina eftir að við komum heim.

12 vikna sefur hún í ca 6 -7 klst á nóttu, Sofnar á miðnætti og vaknar yfirleitt klukkan 6 til að drekka, vaknar svo aftur kl. 8 til að drekka og sefur svo til ca 11.

 

Þegar Ásdís María er 10 vikna grætur hún eiginlega í fyrsta sinn! Ég er nálægt því að hringja á sjúkrabíl þar sem barnið grætur svo sárt algjörlega upp úr þurru. Líklegt að þetta hafi verið út af magapílum, gerist aftur ca 2 vikum síðar og reynist mjög erfitt að hugga hana. Annars hefur hún eiginlega ekki grátið !

 7 mánaða er Ásdís María alveg farin að sitja án stuðnings og fer um allt gólf á maganum. Gerir tilraun til að skríða á 4 fótum á gólfteppinu í Kúrlandi. Orðin nokkuð dugleg að borða mat, fær 2 matargjafir á dag. Annars vegar maukauð grænmeti (sætar kartöflur, kartöflur, blómkál, brokkolí, gulrætur) og svo hafragraut fyrir nóttina. Byrjar að fá Cheerios og elskar það. Sefur 2 lúra á dag, fyrir hádegi í ca 1,5 og yfirleitt 2 klst eftir hádegi. Vakir frá 16-21 og fer þá að sofa og sefur til 7 (en drekkur ca 3-4 yfir nóttina)

6-7 mánaða er hún dugleg að vera í pössuninni í Sporthúsinu og gengur mjög vel en virðist vera að fá mömmusýkina í byrjun sept og mamman orðin smá stressuð.Tekur 2-3 vikna tímabil þar sem er orgað stanslaust á þann sem er látin passa hana, Una og mamma lenda illa í því + konurnar í Sporthúsinu. Þegar EA fótbrotnar um miðjan sept er þetta búið og allir fá að hafa hana ... er mikið hjá ömmu Svöfu á meðan við erum á spítalanum og gengur mjög vel.

Tæplega 8 mánaða er hún farin að gera tilraunir til að standa upp ! Stendur upp í rimlarúminu af og til og reynir að standa upp við stofuborð og rúmið hans EA sem er þá stundina á stofugólfinu.

Engin tönn komin 25.sept. Borðar samt sem áður allt saman, fær kjúkling í litlum bitum, brauð með smjöri eða kæfu, maukaðar kartöflur,sætar kartöflur, brokkolí, blómkál,  gulrætur, lambakjöt, kjúkling, einnig mangó, epli og banana... mun meira af grænmeti samt...mest heimamaukað en líka krukkur. Er þó nokkuð dugleg að borða hvað sem er. Sama stemning 12 okt..Engin tönn og borðar vel og mikið..

8,5 mánaða er að farin að standa vel við allt og gerir tilraunir til að ganga með fram- en samt mjög slök í því! Skríður á 4 fótum inni á baði á flísunum en annars "syndir" hún um gólfi.

Mannafælutímabilinu lauk þegar EA fótbrotnaði og allir þurftu að passa ÁM á spítalanum...ca 8 mán

Eina vandamálið er að hún vill drekka oft á nóttu og foreldrarnir nenna ekki að díla við það..

 Janúar. Ásdís María byrjar nýtt ár með því að taka fyrstu skrefin. Gengur 2-3 skref á nýársdag og bætir sig hratt og vel. í dag er 9.janúar og áðan náði ég vídjói þar sem hún labbaði í rólegheitum ca 20 skref ! En þetta er engan vegin komið, stundum er hún með brauðfætur og hefur engan áhuga á að labba ! Hún stendur mikið og stundum gleymir hún sér og labbar af stað. Hún sest pent niður og skríður yfirleitt þegar hún gefst upp. Mjög gott jafnvægi en ekkert mikill áhugi til að labba.

Maí 2011.

Hleypur um allt, mátar alla skó, elskar að klæða sig í föt og er alltaf á leið út. Elskar að vera úti að sniglast í kringum húsið og leita að kisum. Alltaf góð hjá Helgu og aldrei vesen að kveðja hana. Sefur í 2-3 klst í vagni alla daga.

Er með eyrnabólgu næstum allan desember og allan janúar. Eyrnalæknir vill þó ekki gefa henni rör þar sem hún nær góðum bata í febrúar.. Eftir þrjá pensilínskammta í mars-apríl, fær hún rör í eyrun strax eftir páska. Var þá búin að vera mjög slæm og pirruð, grét allar nætur í vikufríi í Noregi. Eftir rörin líður henni strax betur.

Fær hlaupabólu 1.maí. þegar ég er í húsmæðraorlofi í Kaupmannahöfn

Ótrúlega dugleg að hlaupa, klifra og reynir að fara sjálf í kollhnís ! ..dugleg að horfa á í fimleikum hjá EA.

Fór í eigið herbergi í mars og hefur sofið allar nætur síðan, vaknar stundum 6 og kemur uppí og sefur til 7. Er annars algjör morgunhani og vaknar aldrei seinna en 7.

Enn bara með fjórar tennur!

 

Okt 2014

Verð bara að skrifa um Ásdísi Maríu núna. Hún kemur okkur svo á óvart. Hún byrjaði að mæta á fótboltaæfingar voða spennt í des 2013, tæplega 4 ára.Svipaður aldur og Eysteinn var. Hún byrjaði voða hress og dró með sér vinkonurnar á leikskólanum. Eftir ca mánuð fór þetta að dala og það var skemmtilegra að drekka vatn og pissa á æfingum. Við fórum þó alltaf með hana 1x í viku. Sumarið kom og áherslan var meiri á nýfædda Adda og gleymdist oft að mæta á æfingar. Þegar leið að Ágúst mánuði fór hún að heyra talað um Arion bankamótið sem hún hefur farið á 2x með Eysteini- en nú vildi hún sko keppa ! Það var ákveðið að skrá hana í flokkinn og borga gjöldin svo hún fengi nú að vera með á mótinu. Frammistaðan á æfingum var hins vegar ömurleg, þegar við mættum þá vildi hún bara vera að pissa eða meiddi sig eða var með almennt vesen. Á síðustu æfingu fyri rmót var vesenið í hámarki og ég fór með hana heim á miðri æfingu og sagði að draumurinn um mótið væri úti. Það yrði ekki farið. Hún var voða leið og ég líka enda var ég búin að skrá hana ! Ég þurfti að brjóta odd á oflæti míu og leyfa henni að fara á mótið. Dramað var ekkert rætt, það var bara vaknað, farið í keppnisbúning og keyrt í Fossvoginn. DAman var í "sísta" liðinu enda bara byrjanid og lang yngst ! Aðrir keppendur voru flestir 5 ára. Ásdís kom sá og sigraði. Var sú eina sem þorði að labba á miðju í fyrsta leiknum og taka miðju. Eina sem þorði almennilega að hluaupa í boltann. hún rakti boltann upp völlinn afut rog aftur og skoraði líklega 10 mörk í mótinu ! 

Stuttu seinna byrjaði 4-5 ára bekkurinn í Flataskóla og við ákváðum að veðja á hann. Eftir 4 vikur í skólanum vildi hún fá lestrarbók heim og las í raun strax fyrstu bókina. Lesturinn kom eiginlega bara frá hjartanu eftir að haf aheyrt EA læra. 

Mætir í sunnudagsskólann 2x. Í annað skipti er óskað eftir sjálfboðaliðum til að syngja fyrir framan alla kirkjuna í fjölskyldumessu. Mín er fyrst að rétta upp hönd, fer fyrst upp og syngur í mike. Ekkert mál ! 

Á sama tíma segir hún að Daníel sé kærastinn sinn. Mætir í skólann. Daníel segir." ert þú ekki kærustuparið mitt" ætlar þú ekki aið kyssa mig. M'in kyssir Daníel á munninn! 

í fimleikum- byrjaði að fleygja sér í kollhnís í jan 2014, svokallað heljarstökk! fram að háum hesti.