
Innilega til hamingju með þenann yndislega dreng ! hann er gullfallegur :)
kveðja frá eyjum
Sif og co
Hæ og hó
Varð að kíkja betur á myndirnar af þér. Þú virðist vera með langa putta, kannski verðandi píanóleikari? og hárið, váá Meiriháttar flottur strákur. Frændi þinn í sveitinni er ekki alveg svona hárfagur, þar er greiðslan frekar lík því sem er á afa í Búðardal.
bestu kveðjur
Hanna Sigga og Baldur
Þú ert nú meiri gullmolinn, jesús minn hvað þú ert sætur:) Nú verður múttan að vera dugleg að labba við í kaffi á Lækjargötunni svo við getum fengið að knúsa litla baby-ið eins og Liam Daði segir...Var alltaf að biðju um litla baby-ið í kvöld á leiknum :) hefur greinilega litist vel á hann.
Sjáumst vonandi fljótt aftur kveðja gengið við lækinn:)
Blessaður frændi
Velkominn í heiminn stráksi og við á Horni viljum óska foreldrum þínum til hamingju með þig. Ekkert smá flottur eins og þú átt ættir til.
Hlökkum mikið til að sjá þig, kannski í sveitinni hjá ömmu og afa eða jafnvel maður kíki í heimsókn !#$!
Bestu kveðjur til þín og foreldra þinna.
Hanna Sigga, Valberg, Vignir Smári og Baldur
Hæ Hæ
Ég er alltaf að kíkja á sæta prinsinn ykkar.
Kveðja
Halla, Brynjar Máni og Kristey Una
Til hamingju með prinsinn
kveðja
Magga hjúkkunemi
Innilega til hamingju með fallega prinsinn ykkar! Hann er nú meira krúttið... Við verðum í sambandi í haust og kíkjum með ykkur til Keflavíkur :)
kv, Sigrún og Kristján Víðir
Jeminn en hvað mann er sætur lítill gaur. ;)
Innilega til hamingju með litla sætilíus. Kíki á ykkur í vikunni.
Kveðja,
Halla Sif
Oohh, hann er alger draumur;)
Heyrumst, Hrund
Innilega til hamingju með prinsinn.
Hann er yndislegur, ekkert smá fallegur.
Gangi ykkur rosa vel í foreldrahlutverkinu :)
Kv. Ella
Innilega til hamingju með drenginn:=)
Hann er ekkert smá flottur:)
Algjört æði:)
Hlökkum til að fá að fylgjast með honum stækka:=)
Kveðja úr Keflavíkinni
Helga og co
Vá :) Þetta er gullfallegur drengur, innilega til hamingju kæra fljölskylda. Þú tekur þig vel út Guðrún mín með afleggjarann, alveg gordjös móðir!
Njótið þess að eiga ógleymanlegar stundir saman.
Bestu kveðjur,
Svandís
Það var gaman að hitta þig um helgina og fá að "máta" þig :) Hlakka til að sjá þig næst krúsílíus. Kveðja Dagbjört.
Það var æðislegt að koma í heimsókn til ykkar og knúsa þig pínulítið. Sjáumst vonandi fljótlega aftur.
Kossar og knús
Kristín Inga, Þórdís Perla og litla prinsessan
Elsku Guðrún, innilega til hamingju með littla fallega drenginn þinn
Jiii... rúsínurassinn!! :)
Innilega til lukku og gleði með þennan litla monsa litla fjölskylda!
Hlakka til að koma og kreista þegar ég næ þessu kvefi úr mér ;)
kv. Idds og Nói
Jí, maður getur sko skoðað þig endalaust, þú ert svo MIKIÐ krútt.... Hlakka til að hitta þig aftur :)
Kveðja Sigrún "frænka"
Hæ hæ,
mikið ertu yndislega fallegur strákur.
Sjáumst fljótlega aftur.
kv.Elsa og family
Til lukku með síðununa, alltaf gaman að geta fylgst með á netinu. Hann er svo flottur og svipsterkur. Hlakka til að knúsa hann aftur fljótlega. Hafið það sem allra best.
Kv. Harpa og co
hæææ:**
Jeminn þetta er nú meiri rúsinumúsin
ekkert smá fallegur og sætur:**
en gangi ykkur bara sem allra best og við sjáumst vonandi bara sem allra fyrst...
kv. Arna og Gummi Þ
Þetta er nú meiri rófan sem þið eigið:) Frábærar myndir, hlakka til að knúsa hann. Verður hjúkkuheimsókn bráðum.
Kv þórunn
Guðrún og Gummi innilega til hamingju með litla prinsinn. Hann er alveg yndislegur. Gangi ykkur allt í haginn.
Kærar kveðjur af kvöldvaktinni 12.júlí.
Dísa
Innilegar hamingjuóskir með litla pjakkinn!
Óska ykkur alls hins besta.
P.S. Guðrún, það gleymdist að segja þér að konur sem eru nýbúnar að fæða eitt stykki barn eiga ekki að líta svona vel út!!! Hahaha... hef ALDREI áður séð mynd af nýbakaðri móður á fæðingarstofunni sem lítur út eins og hún hafi droppað inn í myndatöku nýbúin í förðun og greiðslu! Ertu að grínast? :o)
hææ;**
sakna ykar svoo,,langar að vera ennþá í reykjó að knúsa litlu dúlluna (L);*
een sé ykkur vonandi bráðlega !
Hæ hæ
Elsku Guðrún og Gummi, innilega til hamingju með litla prinsinn. Hlakka til að kíkja á ykkur og knúsa prinsinn :) Sjáumst vonandi um helgina ;)
Bestu kveðjur
Dagbjört, Tóti og Sveinn Stefán
Til hamingju með litla sæta snáðann Guðrún og Gummi :) Æðislegar myndir... finnst hann eiginlega líkjast pabba sínum meir...get samt ekki alveg ákveðið mig. Hlakka til að hitta kútinn við tækifæri - kveðja Vala
Hæ sæta litla fjölskylda,
og til hamingju með þennan fallega strák.
Yndislegt að sjá hann og fá að halda á honum.
Hlakka til að sjá hann aftur.
kveðja frá okkur Elsa, Birgir og Bergur.
Æðislegar myndir, gaman að geta fylgst með nær og fjær;)
Hlakka til að knúsast með þessa krakka (þegar allir eru komnir)... Hrund+1
Innilega til hamingju með hann, hann er algjört æði, algjör mús. Gangi ykkur sem allra best. Kveðja úr Kefló.
Innilega til hamingju með litla prinsinn, algjör gullmoli :)
Kveðja Sigrún