

Ernir Benediktsson fæddist 11. maí 2009 kl 01:31, sex vikum of snemma.
Hann er kraftaverkið okkar.
Ernir var rúmar 7 merkur og 44 sm við fæðingu. Hann dvaldi í 21 dag á vökudeild til þess að læra hitt og þetta, en kom svo heim með okkur foreldrunum og hefur síðan verið duglegur að vaxa og þroskast og sigrað þúsund hjörtu.
Honum finnst skemmtilegast að leika með bolta og dansa, honum þykir ofsalega vænt um Andrés, voffa og alla afa sína og allar ömmur sínar. Hann er ríkur, lítill leikskólastrákur sem er brosmildur og hamingjusamur.
NÝJAR MYNDIR, dagbók OG VÍDJÓ 7. desember

Síðan er læst, en lykilorðið er hægt að nálgast hjá foreldrunum annað hvort á facebook eða á thuridur@gmail.com