Embla María og Katla Herborg Ævarsdætur
 

3. janúar setti ég inn myndir frá síðustu fjórum mánuðum ársins 2013, ég held alltaf að ég sé alveg að fara að leggjast í þetta, og lofa sjálfri mér að ég ætli að eiga jafn mikið af nótum og myndum frá Kötlu og Emblu Maríu - en það verður að játast að eitthvað gengur þetta verr. Ég reyni þó :-)

Embla María er orðin 6 ára. Mér finnst það eitthvað öðruvísi áfangi en hinir afmælisdagarnir. Hún stækkar öðruvísi núna. Við sjáum alltaf minna og minna af henni, hún er meira og minna að leika við einhvern félaga sinn og minna að spjalla við okkur. Það er samt alltaf jafn gaman að spjalla við hana. Hún er mjög upptekin af skilnuðum núna, hverjir hafa skilið, hvers vegna og hverja þeir hittu svo og svo framvegis .. um daginn datt upp úr henni ómetanleg heimspeki þegar hún sagði að allir sem væri giftir væri eiginlega "skildir", því þegar maður gifti sig þá væri maður að skilja við sjálfan sig. Það sem ekki grasserar í litlum kolli. Hún er ánægð í skólanum, hún er svona temmilega áhugasöm um námið en unir sér vel, ber krökkum og kennurum góða söguna og það er augljóst að henni líður vel og er mun öruggari með sig. Hún háir sjálfstæðisbaráttu og það er gaman að verða vitni að þeim þroska. Til dæmis vill hún fara alls staðar ein inn núna, í heimsóknir, það má ekki lengur fylgja henni í skólann og ég ætlaði að kyssa hana þegar sótti um daginn og fékk "bara þegar við komum út"...hún er samt hlýjust í heimi :-)

Katla Herborg er nýtt barn. Eftir vonlausa tanntöku og endalausa eyrnabólgumánuði hittum við lækni sem hreinsaði almennilega úr eyrunum á henni og sagði að líklegast hefði hún lítið heyrt ... plús að við höfum smám saman sætt okkur við að hún er með mjólkuróþol. Þegar búið var að taka á þessu tvennu rauk hún í gang. Fór að sofa allar nætur (hallelúja!), er þæg og góð, minna hávær og hamingjusamari. Hún byrjaði að labba í des (tæplega 15 mánaða) og hleypur nánast um núna. Hún skilur æ meir, og nánast allar beiðnir (skipanir) eins og sestu, lúlla, komdu, farðu, hvar er (með óborganlegum handahreyfingum og hissa svip) og í þá áttina. Núna, á 16. mánuði, kann hún að sýna hvað hún er gömul, fela sig, segja bö, fara í eltingarleik, raða á keilu, raða i kubbakassa, kubba með stórum, benda á eyru, augu, nef, munn, tásu og bumbu, segja ahhh, kúra, gefa fingurkoss, tannbusta, henda bleyjunni og örugglega margt sem ég man ekki svona þegar ég er að reyna að fylla í minningakistuna. Orðin koma smám saman, það sem ég man er: Mamma, Dattí (Askur), Kaka (katla), Buba (bumba), auja (auga), meija (meira, borða, gef mér), nii (nei), oó (þetta veit ég að ég ekki að gera), datt, takk, dæ dæ (bæ bæ), hææææ, nammnammnamm (matur),  jæja, urrr (öll önnur dýr en dattí), dudda, bi-ið (búið). Hún dansar eins og enginn sé að horfa og elskar það og syngja og gera úmbarassa og stígur hún við stokkinn er það skemmtilegasta í heimi. Það er dásemd að fylgjast með henni þroskast þessar vikurnar. 


Eftir mikla baráttu gegn barnaheimasíðum hef ég (Helga) gefist upp og ætla hérna að halda úti mynda og atburðasíðu fyrir Emblu Maríu og Kötlu Herborgu. Ég geri nú ekki ráð fyrir sérstökum innleggjum frá Ævari en hver veit... hann verður þó hafður með í ráðum. Tilgangurinn er nú fyrst og fremst að halda öllu til haga, ásamt því að gleðja vini okkar og ættingja sem ekki hafa tök á að fylgjast með í eigin persónu. Lykilorðið er nú samt ekki til að útiloka neinn, aðallega bara til að vita hverjir eru að fylgjast með okkur svo ekki vera feimin/n að óska eftir því. Við foreldrarnir, Helga Sigurrós og Ævar Rafn, erum ákaflega stolt af þessum tveim gullmolum okkar sem við montum okkar óspart af hér á þessum síðum. 



Embla María fæddist 2.janúar 2008 eftir 41 vikna og 2 daga meðgöngu. Hún vó tæpar 14 merkur og mældist 50 cm á lengd og 36 cm í höfuðmál. 

Katla Herborg fæddist 12. september 2012 eftir 39 vikna og 5 daga meðgöngu. Hún vó rúmar 14 merkur og mældist 50 cm á lengd, 35 cm í höfuðmál. 





Heimsóknir í dag: 3
Heimsóknir frá upphafi: 6194