Embla María og Katla Herborg Ævarsdætur
 

Gestabók

Día

Guð minn góður ég á ekki orð yfir fegurðinni..... Óhemjufallegt barn verð ég að segja, jafnvel þótt það sé ekki vottur af Hagasvip á henni! Nei án alls gríns þá er maður bara dolfallinn. Það var æði að hitta ykkur á sunnudaginn, láttu mig vita þegar þið eruð á ferðinni.

Kveðja, Día og co.

Skrifaš žann 23. June 2008 22:43.

Birgitta Dröfn

Hæ hæ sæta
flottar myndirnar af þér þú varst ekkert smá flott í 17 júní kjólnum.
Sjáumst á landsmótinu.

Kv Birgitta og gríslingarninr

Skrifaš žann 23. June 2008 21:03.

Maja í sveitinni

Æðislegar myndir! Rosalega hefur verið fínt hjá ykkur þarna úti. Hlakka til að sjá ykkur...næst.

Skrifaš žann 23. June 2008 00:54.

María Kristín

Ég er búin að liggja í hláturskasti yfir nýju myndunum:) elska svipina á þér Embla María! þú ert sætust:*
Hlakka til að vera með ykkur mæðgum um helgina :)

Skrifaš žann 20. June 2008 00:10.

Sjöbba og Saga

Þú ert aðeins fljótari en hún frænka þín í tanntökunni...:)
Til hamingju með fyrstu fínu tönnsluna þína sætan okkar:)

Saga er megaspennt fyrir morgundeginum..;)

Skrifaš žann 19. June 2008 21:19.

Elsa og Carmen Lea

hæhæ og innilegar hamingjuóskir með prinsessuna en ég stóð í þeim misskilningi að þið væruð enþá úti í London hahaha

við munum halda áfram fylgast með ykkur enda annað ekki hægt þegar um er að ræða svona fallega skvísu :)

kveðja Elsa og Carmen Lea

Skrifaš žann 19. June 2008 15:49.

Jóa frænka

Hæ, hæ, þú ert bara sætust, sætust, litla fína frænka. Mikið hefur verið gaman í ferðalaginu hjá ykkur fjölskyldunni, flottar myndir. Hlakka til að sjá ykkur.
Bestu kveðjur frá Jóu frænku

Skrifaš žann 17. June 2008 12:30.

Steini og Stína í Ameríku

Er möguleiki að fá passwordið? Gaman að fylgjast með úr fjarska....

Skrifaš žann 15. June 2008 16:26.

Rán og Lea

Hæ elsku Embla María
mikið ertu orðin stór og mannaleg..og brosmild:)
Alger fegurðardís og mér finnst þú ennþá alger kópía af Maríu Valgeirs!
Væri nú gaman að minnka bilið milli heimsókna, þar sem við erum nágrannar! Hlökkum til að sjá þig næst.
kv Rán og Una Lea

Skrifaš žann 13. June 2008 22:25.

Unnur

Það hefur verið æðislegt hjá ykkur í Köben.. ég þarf alveg að fara þangað með mína familíu! Hún Embla María stækkar óðum og bara farin að sitja daman. :-) Hlakka til að sjá ykkur á laugardaginn...
kv,
Unnur, Sigurþór og Sara Talía

Skrifaš žann 13. June 2008 08:56.

Hulda

Það var bara gaman að skoða þessar myndir eins og hinar. Greinilega frábært frí hjá ykkur.
Hlakka til að sjá ykkur um helgina.

kv. Hulda

Skrifaš žann 12. June 2008 19:27.

Íris Dögg

Greinilega stuð í DK:) Embla María er yndisleg, erum alltaf að fylgjast með:)

Skrifaš žann 12. June 2008 14:30.

Sara og Co.

Rosa skemmtilegar myndir frá DK, við skellum okkur með í förina næst;)

Þurfum svo að endurtaka dinner brátt.

Skrifaš žann 12. June 2008 13:13.

Eva og co

Þetta eru æðislegar myndir, frábært hvað það var gaman hjá ykkur. Litli gullmolinn ykkar er algjört bjútí :-)
Gott að tvíbbakerran kom að góðum notum!!
Kossar og knús

Skrifaš žann 10. June 2008 23:25.

Ingibjörg Dröfn

Hæ hæ, við vorum að skoða nýju myndirnar af litlu fegurðardísinni. Þetta hefur greinilega verið frábær Danmerkurferð hjá ykkur :-)

Hlökkum til að hitta ykkur um næstu helgi í grill-hittingi.

Kveðja, Hafsteinn Orri og Co.

Skrifaš žann 9. June 2008 22:21.

Ingibjörg og Andrea

Það þarf enga þrautseigju til að fara í gegnum danska pakkann, bara skemmtilegar myndir og það er ekki lítið sem hún Embla er sæt, jeeeeesús, algjöört krútt og sætastar voru dettu myndirnar.

Fannst líka svo gaman að sjá myndirnar af fyrstu skiptunum, algjör sjarmatröll þessi litlu rassgöt.

Skrifaš žann 9. June 2008 10:04.

Andrea

Hæ hæ Helga... takk fyrir að lofa mér að fylgjast með ykkur. Gaman að sjá hvað litla stráið er kát og hress... hefur nú ekki langt að sækja það blessunin. Við sjáumst vonandi áður en þú fermir. Kveðja úr norðri, Andrea
p.s. mútta biður kærlega að heilsa ykkur.

Skrifaš žann 3. June 2008 09:41.

Saga & 7bba

Hæ litla frænkuskott...
Ég sakna ykkar fullt fullt fullt... öll lítil börn á myndum eru "Epla"
...:o) Hafið það sem allra best í útlandinu og ég hlakka til að koma
og gista þegar þið komið aftur heim;)

knús, ykkar Saga

Skrifaš žann 30. May 2008 08:18.

Ingibjörg

Ohhhhh maður er ekkert smá fínn. Hún er ofursæt þessi litla stelpa, verð eiginlega að hitta ykkur sem fyrst, ég held nefnilega stundum að stelpan mín sé minni en hún er og ég keypti svooo fína húfu í marimekko búðinni sem lét Andreu líta út eins og körfubolta með gyðingahúfu. Ótrúlega sæt sumarhúfa fyrir svona fallega stelpu eins og Emblu.

Knús

Skrifaš žann 29. May 2008 22:29.

Stína frænak

Hæ hæ elskurnar mikið er gaman að þú sért komin með þína eigin síðu, þá sér maður meira en bara eina og eina mynd af þér í einu.
Vona að þið hafið það gott í Dk, koss og knús Stína frænka

Skrifaš žann 22. May 2008 10:12.

Hulda

Mikið rosalega er gaman að Embla María sé komin með eigin síðu. Vona að þú sturtir inn myndum af litlu krúttmúsinni hingað mjög reglulega.

Vonandi hafið þið mæðgur það gott í danaveldi, góða ferð:)

Skrifaš žann 19. May 2008 22:55.

Saga & 7bba

Yndislegasta frænkan okkar:* hlökkum til að fá þig í næturpössun þegar þar að kemur:) strax farin að sjá hvað þú stækkar fljótt þegar ég skoða myndirnar af þér svona allar í einu (jább mikið að gera á fiskistofu;)

knús í klessu

saga og mamms

Skrifaš žann 19. May 2008 14:53.

Íris Dögg

Yndislega barn, gaman að sjá svona mikið af myndum:)

Bestu kveðjur

Skrifaš žann 18. May 2008 22:46.

Jóa frænka

Flottar myndir, það er æðislegt fyrir Kanaribúa að fá að fylgjast með elsku litla fallega frænka. Kossar og knús til ykkar allra.
Sólarkveðjur Jóa frænka og co.

Skrifaš žann 16. May 2008 22:51.

Petra Mogensen

Þú ert nú meira krúttið ;-) Flott síða - ánægð með þig Helga !
Kv Petra og co

Skrifaš žann 16. May 2008 22:48.

Bagga frænka

Gaman að fá að fylgjast með. Þó maður búi nú í sömu borg þá sést fólk sjaldan. Ég hef t.d. ekki séð Emblu Maríu síðan hún var nýfædd, en hef fylgst vel með því sem þú hefur skrifað á bloggið þitt Rósa mín.
Bestu kveðjur úr Grafarvoginum.
Bagga ömmusystir

Skrifaš žann 16. May 2008 15:11.

María Úlfarsdóttir

Takk, takk Rósa mín. Þetta er nú meiri krúsin! Kyssknús, Maja.

Skrifaš žann 16. May 2008 14:39.

Helga Rósa Atladóttir

Flott síða hjá ykkur! Hún er nú meir bjútýbollan þetta barn :) Á sko örugglega eftri að kíkja reglulega hér inn til að fylgjast með prinsessunni.
Bestu kveðjur úr Keflavíkinni.

Skrifaš žann 16. May 2008 11:43.

amma magga

Takk takk,bara að nuða nóg þá gerist eitthvað

Skrifaš žann 16. May 2008 11:30.

María Úlfarsdóttir

Ég bara nr.1 í gestabókinni! Til lukku með síðuna sem er ábyggilega mjög fín. Langar að skoða meira, svo viltu vera svo væn að gefa mér lykilorðið, elsku Rósa mín.....Kysstu fegurðardísina, frá mér og bið að heilsa ástmanninum ;)

Skrifaš žann 15. May 2008 23:46.

1 2 3 4