

Nýjar myndir seinnipart 2011 settar inn 17. janúar. Gullmolinn okkar nú orðin fjögurra ára. Það hefur margt gerst á þessum fjórum árum, til dæmis hefur lengdin tvöfaldast og nú er svo komið að rökhugsun þróast hratt með skemmtilegum pælingum. Til dæmis tilkynnti hún það að hún ætlaði ekki í fjögurra ára skoðunina, það væri stingusprauta í henni. Af hverju heldurðu það segi ég? ...við ræddum það krakkarnir á leikskólanum! Hún tilkynnti okkur líka að langamma sín ætti heima í gamla daga, nú segi ég, já - og allt hitt gamla fólkið. Og svo álítur hún að guð sé dáinn af því að hann fékk ekki nóg að borða, það eru líklegast leyfar desemberboðskapsins þegar aðeins var reynt að útskýra misskiptinguna í heiminum. Hún fann það sem út um daginn að Guð væri að henda litum, þá sprakk raketta. Er þetta ekki dásamlegt?

