
Hlakka til að koma í afmælið þitt krúsilíus...
Sæll vertu elsku frændi,
Jæja nú styttist í að við verðum 2ja ára...ekkert smá stórir gæjar :) Ég fór og lét krúnuraka mig í dag..hef nú skemmt mér betur, en þetta hafðist. Ég lék mér líka með dótið þitt hjá ömmu Ellu í dag, ekkert smá skemmtilegur bíllinn á stóru dekkjunum. Svo fengum við að sjálfsögðu köku...nema hvað :)
Biðjum að heilsa,
Dagur og co
Váá en gaman að kíkja á þig...Ekkert smá flottur strákur ;0)
Ég var einu sinni að vinna á Öldukoti og ef hún Freyja er enn þar þá ertu sko í góðum höndum :0)
Hafið það gott kæra fjölskylda, gaman að fá að fylgjast með
Kv.Agnes og krakkarnir
hæhæ Elvar
langt síðan við höfum séð þig en það eru rosalega flottar myndirnar hjá þér.
Bestu kveðjur frá Selfossi,
Alexandra Bía & Sara Sif
Hæ Elvar vorum að skoða myndirnar og tala um þig.
Það var nú gaman að hafa þig um helgina (Ella byggir bú bú)Saknaðar kveðjur amma Ella og afi
Hæhæ ætlaði bara að segja þér að ég bara sakna þín elsku krúttköggullinn minn;o) Nú verðum við bara að fara að hittast og það er sko alltaf gott veður á pallinum og pottinum á Lyngbergi;o)
Milljón kossar og knús;*
Hæ sæti :O) Hvenær er næsta sundferð á dagskrá?? ég er alveg búin að blása upp kútana og setja upp sundgleraugun...
Hæ Elvar hlökkum til helgarinnar.
Þegar þú kemur
Hafðu það gott
kveðja amma Ella og afi
Jæja Elvar Eldjárn... nú þarftu að fara að pakka..... ekki nema rúmlega TVÆR VIKUR.... skiluru.... mæli með sólarvörn og sandölum svo getið þú og Patti og Krummi bara verið og hugga ykkur úti á svölum með drykk í annari og kex í hinni.....!!
Veistu hvað ég hlakka til að knúsa þig rjómabollan þín... Ég fæ bara tár í augun þegar ég skoða myndirnar af þér...
SAKNA YKKAR ALLTOF MIKIÐ....
Hæ, hæ. Bara aðeins að kíkja á þig.
Dúllí dúll...gaman að hitta ykkur sætu í gær og takk fyrir kökurnar :) Júlía Ósk þakkar Elvari fyrir skemmtilegheitin, henni finnst hann fyndinn hehe :)
Hæ Elvar Eldjárn, og takk fyrir síðast!
Það er alltaf jafn gaman og "hressilegt" að hitta þig :o)
Og svo eru sumir hér á heimilinu farnir að telja niður dagana í "eurovision parýið" okkar!!! Hver skyldi það nú vera?? hmmmmm
tja, maður spyr sig? ;o)
Hæ Elvar
Takk fyrir síðast gaman var að hafa þig hjá okkur voða varstu duglegur að halda þetta út
takk fyrir kexið.
kv amma Ella og afi
Hæ hæ og takk fyrir síðast, bara að kvitta
kv.
Hæ frændi! Mér fannst ég nú einmitt kannast strax við skirtuna sem þú ert í á forsíðunni, hélt nú einmitt að ég hefði séð hana áður. Leitt hvernig fór fyrir bangsaskinninu, er hann kannski búinn að jafna sig!
kv Áslaug, Þórdís Aníta :)
Hæ mýslur,
Vonandi eruð þið búin að njóta helgarinnar í ró og næði....
Minns saknar ykkar... Þið Elvis verðið að fara bráðum aftur að koma í heimsókn að kíkja á kanínuna og jóhönnu ömmsu...og við getum borðað ís Silja !!! Vei vei.
Knús og kossar á línuna
Chris,ods,tris og mar
Heibbs, já ég skil vel þetta með gestabókina... og þess vegna kvitta ég ALLTAF þegar ég kem, eða svona næstum því.
Annars bara að kíkja á sæta gæjann.
Hvað segirðu annars Silja mín, ræktin á morgun ???? hmmmm
Knús,
Sigga P.
jáps best að kvitta... ;) hafðu það gott fyrir austan elsku Elvis :)
Hæ sæti,
Nú erum við aðeins að skoða myndirnar af þér en eiginlega enn meira að skoða kökuna okkar he he he he :)
kveðja...gellurnar sem ætla að fara í Guðnabakarí á morgunn og athuga með samning
Sæll grallari gaman að sjá nýjar myndir og það verður gaman fyrir þig að byrja á leikskólanum, góða skemmtun kveðja frá Siggu.
Hæ hæ kæra fjölskylda.
Gaman að skoða svona flottar myndir. Vel tekið og vel unnar, flott myndavél líka :) Ekki oft sem maður skoðar svona flottar barnasíðumyndir.
Vona þið hafið það sem allra best öllsömul.
Kveðja
Þórey
Hæ kæru vinir. Takk fyrir síðast. Það var mikið gaman að fá ykkur. Ertu kominn inn á Öldukot Elvar? Það er nú flott! Kær kveðja héðan sunnan Hringbrautar.
Kvitterí kvitt ... hef ekki kíkt hér inn í svo langan tíma og fullt fullt af skemmtilegum og flottum myndum. Elvar orðin svo stór og algjör töffari :) Stefni á heimsókn sem allra fyrst.
Knúsíknús kveðja Binna
Hæ Elskur,
Takk fyrir síðast :) og þúsund þakkir fyrir pössunina..
Váa hvað Elvar er flottur með nikkuna....Það eru greinilega fagrir hljómar á heimilinu ykkar þessa dagana.
Knús og kossar,
Christina, MR. O, T and M
Hæ elsku fjölskylda og gleðilegt sumar ég kíki reglulega á ykkur en gleymi nú stundum að kvitta bara sorrý sko.. man það hér eftir;)) frábærar myndir hjá ykkur Elvar Orri situr alveg svaka spenntur yfir myndunum og segir alltaf ...,,þetta er ég,, en njótið dagsins bestu kveðjur frá Selfossi kv Stebba og co
Gleðilegt sumar litli töffari. Það verður gaman í dag að sjá Dýrin í Hálsaskógi. Láttu gamla settið á Sólheimum dekra við þig. Kveðja Abba
Þú tekur þig ekkert smá vel út með harmonikkuna Elvar - hlakka til að heyra þig taka lagið í TMC útilegunni í sumar ;)
Obbosí - ég gleymdi óvart að skrifa... híhíhí
En myndirnar eru náttúrulega alveg brilliant - gerast ekki flottari! Ég skoða síðuna þína reglulega í skólanum mínum því það gerir daginn svo miklu skemmtilegri!!
Góða skemmtun hjá ömmu og afa á Sólheimum og á Dýrunum í Hálsaskógi.
Sjáumst fljótt,
Bryndís og fjölskylda
HÆhóóó.
Vildum þakka kærlega fyrir afmæliskveðjuna;)
Það styttist sko heldur betur í 2ja ára afmælið hans Elvars.
-kolbrún ýrr & brynja karítas
p.s. þú ert OFURflottur með harmonikkuna!
Hæ sætasti frændinn minn;o)
Ætla að kvitta núna því ég gleymi því alltaf:P
Rosalega ertu búinn að stækka mikið! Og þú verður bara sætari og sætari!;*(hélt reyndar að það væri ekki hægt, en mér skjátlast nú stundum;)
En ég er mikið sammála henni systir minni, væri rosa gaman að fá ykkur í heimsókn þegar við erum búnar í prófum;)
Getum farið í pottinn og bakað e-ð rosalega gott:P
Kossar og knús Harpa frænka;**