
Sæll Snúlli frændi
frétti að mamma þín og pabbi væru búin að finna nafn handa þér, eru þau ekki búin að segja þér frá því svo þú getir sett það inn á síðuna þína? Flottar myndir af þér sjáumst. Kveðja, Steinþór frændi.
Hæhæ sæti <3 Er núna loksins að skrifa í gestabókina þína ;)
Svaka flott síða hjá þér =D & flottar myndir ;D Skrifa seinna ...
kv, Elísa Gróa frænka
Elsku frændi mikið ertu fallegur drengur, hún er svo falleg þessi ætt :)
Hlökkum til þess að fá að hitta þig og gangi ykkur vel.
ÁSTARKVEÐJA
Innilega til hamingju með litla Snúllann!!! Hann er afskaplega fallegur litli drengurinn enda ekki við öðru að búast með þessi gen ;-) Ég vona að ég fái fljótlega að hitta prinsinn í eigin persónu!! Hver veit nema við hittumst kannski á komandi Bryggjuhátíð á Stokkseyri ef litla fjölskyldan verður þar. Kveðja úr sólinni á Eyrarbakka!
Juminn hvað pjúskur er sætur, innilega til hamingju, Harpa, Kalli og Hera Katrín
Sæl verið þið fjölskylda.. var að skoða myndirnar og mikið er snúlli líkur ykkur... alveg yndislegur..... hlakka til að hitta þig Snúlli minn og bið innilega að heilsa mömmu þinni og pabba...
Guð hvað nýju myndirnar eru flottarl... var að koma heim í dag frá Stockhólm og get ekki beðið eftir að koma og sjá þig.... kannski kauptaði ég eitthvað pínku smá handa þér... það er nú samt bara milli mín og þín..... mannstu eins og við töluðum um síðast;0)
Hæ snúllus,
Æðislegar nýju myndirnar!!
Verð að fara að koma aftur í heimsókn og knúsa hann pínu....
Kanski hann nenni þá að vera smá vakandi fyrir mig :)
Knús,
Christina
Aftur til hamingju. Hann er hrikalega flottur strákurinn ykkar. Hitti stoltan af í BYKO sem sagði mér frá síðunni og lykilorðinu. Gangi ykkur vel, það er gaman að fylgjast svona með :-)
Sæl kæra fjölkylda og innilega til hamingju með það eignast þennan líka prinsinn frekar mikið krútt jeminn :o). Vonandi sé ég ykkur fljótlega kannski kíkir maður í bæinn einhvern daginn og gerir sér dagamun svona að gefnu tilefni ;) maður er svo mikil sveitakona að ég veit ekki hvort maður kann sig í höfuðborginni . En allvegana gangi ykkur allt í haginn. og aftur til hamingju
kv.Rúna sveitakona
p.s. Steini og Gunnar biðja að heilsa:o)
Það fer nú alveg að koma að því að Patti litli fari að koma í smá heimsókn...Ég er búin að segja honum að hann heiti bara Snúlli ennþá að það sé ekki búið að gefa honum alvuru nafn.... og hann ætlar að fá að syngja "Snúlli litli snúlluson" lagið fyrir sem hann gerði svo ódauðlegt um árið...;0)
Verða að fá að sjá ykkur áður en ég fer út..... knús í poka sem ekki má loka....;0)
jii dúdda mía, hvað þú ert sætur... Það er orðið full langt síðan ég fékk að knúsa þig síðast! Kem í heimsókn bara réétt bráðum :) það er spurning hvort að þú gefir manni væna gusu þá... hmmm!
Hlakka til að sjá þig Snúlli.
kveðja,
Birta frænka
Elsku Silja Hrund og Kristján innilega til hamingju með litla prinsinn snúlla:-) Hann er alveg gullfallegur
Verðum að fá að koma í heimsókn við tækifæri og hnusa af honum:-)
gangi ykkur vel
Kveðja Jenný, Flóki og Bríet
hae litli saeti :) vid nygiftu sendum Snullanum og foreldrunum kvedjur ur hitanum i Tyrklandi. Hlakka ofsa mikid til ad knusa thig aftur og aftur og aftur...
Hæ Hæ kæra fjölskylda!
Innilega til hamingju með litla drenginn hann er rosa sætur og ekkert smá flottar myndir af ykkur öllum falleg fjölskylda!!
jæja ég vildi bara kvitta fyrir mig kveðja frá Stokkseyri
Agnes,Steini,Sigrún Halla og Friðrik Áki
Vá!!
En gaman að sjá myndirnar af þér - þú ert svo fallegur.
Við hlökkum mikið til að fá að hitta þig aftur.
Bestu kveðjur til mömmu og pabba - þau eru lánsöm að eiga svona heilbrigðan og fínan strák.
Kiss kiss,
Bryndís & hele familien
Hæ sæta fjölskylda. Innilega til hamingju.
Myndirnar eru svakalega flottar og gaman að skoða þær. Hann snúllinn er sko sá allra sætasti!!
Kær kveðja og stórt knús
Þórey
Jíii hvað maður er fallegur. Innilega til hamingju með snúlluna:o) KVeðja kristín úr markhúsinu
jesús minn eini hvað maður er dýrlegur, manni langar nú bara alveg til að stela honum!!! það er ekki til neitt fallegra:o) Hlakka til að sjá ykkur oft oft oft......, knúsar Guðrún
Innilega til hamingju með snáða. Brynhildur er spennt að kíka í heimsókn á nýja vin sinn. Bið að heilsa og sjáumst fljótlega.
Kv ... Kiddi
Þú ert algjör snúlli. Ekkert smá sætar myndir af þér og foreldrum þínum. Hlakka til að kíkja á ykkur.
Kv.
Ríkey
Snúlli litli er alveg himneskur og þið eruð sæt fjölskylda. Tek undir það hvað þú lítur vel út Silja og ljósmyndanámskeiðið hans Kristjáns hefur greinilega gert gagn því myndirnar eru frábærar. Er mjög spennt að sjá litla krílið, hringi í þig í næstu viku. Hafið það ofsa gott!
Kveðja,
Ásdís
Elsku litli fallegastur !! Takk fyrir síðast ;*
Hvað er annað hægt að segja en vá hvað þið eruð falleg lítil fjölskylda - enda var nú ekki við öðru að búast en að þú yrðir svona fallegur með þessa foreldra !! Það er nú barasta eins og mamma þín hafi ekki gert neitt annað en að koma börnum í heiminn - svo falleg og fögur er hún alveg frá fyrstu mynd af ykkur :-D
Ég hlakka svooo til að koma fljótt aftur að kíkja á þig og ma&pa ....þangað til - knúúúúúúús frá mér og Gunnari ;*
p.s. snilldar myndir hjá pabba þinns ;)
Hæ Fallega fjölskylda......
Til hamingju með litla snúllan og fínu heimasíðuna!
Hann er bara sætastur :)
Hlakka til að sjá ykkur á morgun og knúsa ykkur.
Knús,
Cg
Hæ ég aftur, ég er alltaf að kíkja á þig og monta mig við vinnufélagana mína hvað ég á flottan frænda!
Bið að heilsa í bili.
Hæhæ sætastuuurr...Ég er alvevg sjúk í þig.... og það er svoo gaman að skoða myndirnar ykkar...Þú svo sætur... pabbi svo góður ljósmyndari... og fallegasta mamma í hemi... er hægt að biðja um eitthvað meira.... !! Hlakka til að sjá þig fljótlega...
knús í krús....
Hæ elsku litli sætasti frændi í öllum heiminum (þó víðar væri leitað). Mikið er gaman að skoða myndirnar þínar og ekki síður að sjá hvað pappi þinn er góður ljósmyndari, þetta eru alveg "pro" myndir, æðislegar! Hlakka til að sjá þig aftur eins fljótt og ég get, kveðja, Hófí móðursystir.