Eik Elmarsdóttir
 

**Nýjar myndir 08.02.10**

**Nýtt í vefdagbók 05.02.10**

**Nýtt video 18.01.10**

Eik Elmarsdóttir fæddist 27. mars 2008 {#emotions_dlg.kiss} Foreldrar hennar eru Elmar Ásbjörnsson og Erna Björnsdóttir. 

Hún býr ásamt foreldrum sínum í Bryggjuhverfinu. Eik er sátt með staðsetninguna þar sem endur búa í bakgarðinum hjá henni og fer allt afgangsbrauð til þeirra.

Eik er á leikskólanum Heiðarborg í Árbænum. Heiðarborg er frábær leikskóli með yndislegt starfsfólk.

Foreldrar ákváðu að halda uppi svona ,,mont" síðu fyrir ættingja, vini og kunningja þannig hægt væri að fylgjast með demantnum vaxa og dafna. Einnig læðast inn myndir af hinum ýmsu viðburðum úr lífi foreldra {#emotions_dlg.cool}

Eik og foreldrar eru rosalega sátt ef gestir síðunnar skilji eftir smá spor {#emotions_dlg.kiss} Það er svo gasalega skemmtilegt að fá kveðjur frá öllum... kunningjum-vinum og ættingjum!!!


Ljóð frá lilju og bjössa...

,,Sólblómið okkar er komið í heiminn, forvitin, lítil, örlítið feimin.

Í kring um sig kíkir, allt hún skoðar, endalausa hamingju prinsessan boðar.

Vertu velkomin elsku litla dúlla, Bjössi og Lilja elska þig rúsínusnúlla" 


Byrjunin!

Þetta var nú ekki flóknara en það að ég fann sannkallaða draumaíbúð til leigu. Falleg, þægileg og glæsilega útbúin, eitt herbergi, sérlega vönduð með góðum hita og einangrun, já og búin öllum hugsanlegum þægindum. Íbúðin er með sér inngangi og útgangi. Leigist til 9 mánaða, innifalið er fullt fæði og ýmsir aðrir kostir . Við vorum nú eitthvað um 400.000.000 sem vildum leigja herbergið, hver og einn vildi vera fyrstur til, reyndi að ryðjast fram og standa í vegi fyrir öllum hinum. En smám saman drógust sumir aftur úr og flokkurinn fór að þynnast þar til aðeins einn stóð eftir og það var ég. Nú hef ég komið mér vel fyrir hér inni en leigusamningurinn rennur víst út í lok mars/byrjun apríl. Það verður því bara spennandi að flytja héðan út í hinn mikla heim sem bíður mín og hlakka ég mikið til að hitta foreldra mína, ættingja og vini, því ég veit að þau munu dýrka mig.



Hrúturinn 21 mars til 19 april

Rambó leikfélaganna er mættur á svæðið.

Með barn í hrútsmerkinu mega foreldrar búast við miklu fjöri á heimilinu því það ríkir engin lognmolla í kringum hrútinn. Ekki ætlast til þess að barnið sitji kyrrt með hringlu. Þetta er barnið sem veifar þér ofan af hæsta tré, alls óhrætt við að taka áhættu.

Hrútsbarnið er allt annað en hljóðlátt og lætur oft vel í sér heyra. Sem eldsmerki er hrúturinn orkumikill og hefur ávallt eitthvað fyrir stafni.

Verður erfitt að ráða við litla hrúta? Það er líklegra en ekki. Foreldrar ættu eins fljótt og hægt er að kenna þessu barni að vinna með öðrum börnum. Að deila einhverju með öðrum er eitthvað sem kemur ekki af sjálfu sér – það þarf að kenna litlum hrútum. Þeir eru einnig ákaflega tapsárir. Þeir þrá athygli og eiga mjög auðvelt með að verða sér úti um hana með ýmsum aðferðum.

Hrútar eru fæddir leiðtogar og ef þú ætlar að hafa eitthvað að segja er betra að láta þá vita með afgerandi hætti hver er við stjórnvölinn því annars er eins líklegt að stjórnin verði tekin úr þínum höndum. Lítill hrútur er oft eins og ótemja, lítið gefinn fyrir að hlýða reglum og vera þægur nema þegar honum hentar.

Vegna þess hve hann er orkumikill er nauðsynlegt að hann fái mikla hreyfingu. Hann verður að fá að hlaupa um og róta til heima hjá sér. Ef hann fær ekki útrás fyrir orkuna verður hann pirraður og ergilegur. Honum líður best í lifandi og fjörugu umhverfi.

Þar sem fljótfærni og óþolinmæði eru meðal veikleika hans þarf að kenna honum að hægja á sér og telja upp að tíu áður en hann rýkur af stað. Einnig þarf að venja hann á að ljúka því sem hann byrjar á.



Heimsóknir í dag: 1
Heimsóknir frá upphafi: 9480