Elís Máni
 


Verið velkomin á síðuna mína.

Ég heiti Elís Máni....

Ég kom í heiminn þann 18. september 2005 kl 18:49. Mamma var búin að bíða eftir mér í sex daga og ég lét hana sko hafa fyrir því að koma mér í heiminn. Ég var rosalega stór, ég var alveg 16 merkur, 51.5 cm og 4060 gr. Mamma mín heitir Heiða (´81) og hún er sko stoltasta mamma í öllum heiminum og elskar mig mest, hún getur ekki ímyndað sér hvernig lífið væri án mín.. Ég er gullið hennar   Ég er á leikskóla, hann heitir Foldaborg er alveg frábær leikskóli, ég og mamma erum mjög ánægð með leikskólann. 

Ég er fyrsta barnið hennar og ég er sko líka fyrsta ömmu og afa barnið  Ég bý með mömmu hjá bestu ömmu og afa í öllum heiminum, þau heita Inga og Halli og gera allt fyrir mig.

MUNIÐI SVO AÐ KVITTA Í GESTABÓKINA MÍNA

Mamma er búin að læsa myndasíðunni (nýtt lykilorð) svo ef þið viljið skoða þá verðiði að senda mömmu e-mail : heidi_sandler@hotmail.com og hún sendir ykkur lykilorðið


 




MAMMA ER KONAN.......

Sem kemur manni i heiminn með mikilli fyrirhöfn
fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og
ástúð sem lítið barn þarf á að halda.

þegar maður eldist og ætti kannski að geta hugsað
meira um sig sjálfur, til dæmis að vera í hreinum
fötum, og laga til í herberginu sínu leyfir mamma
manni það ekki því hún er vön að hugsa svo vel
um barnið sitt.

Mamma er alltaf til staðar með
útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda,
þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst
með manni þegar það er gaman að vera til.

MAMMA ER BESTA KONA Í HEIMI!!!!!!

 

Það besta sem þú eyðir í barnið þitt er tími!

ELSKU BARN.

Ást mín verður með þér
hvenær sem þú þarfnast hennar.

Ást mín verður með þér
þegar gleðin ber þig ofurliði.

Ást mín verður með þér
þegar erfileikarnir eru að buga þig .

Ást mín verður með þér
þegar þú óttast lífið .

Ást mín verður með þér
í dag og alla daga.

Þakka þér fyrir mömmu,
sem er svo góð við mig og lítur eftir mér.
Hjálpaðu mér til að vera henni hlýðið og gott barn.

 Amen.



Vaki englar vöggu hjá,
varni skaðanum kalda,
breiði Jesús barnið á
blessun þúsundfalda.

 



Líf

Ljós í myrkri, langt og mjótt
markar upphafið hjá þér.
Allt í einu ertu kominn
inní heiminn, lítill dofinn.
Dregur andann hið fyrsta sinn

Þú ert vorið, vindur hlýr
vekur hjá mér nýja kennd.
Og ég græt í gleði minni,
þú gefur mér með návist þinni
svo miklu meira en trúði ég

Líf, ljómi þinn er skínandi skær.
Líf, augu þín svo saklaus og tær.
Fegurra en nokkuð annað.
Áhrifin ótvíræð:
ég svíf, því ég á
þetta líf

Óskadraumur -ásýnd þín.
Ekkert jafnast á við það.
Þó mig þúsund drauma dreymi
þessa stund ég alltaf geymi
í mínu sinni ókomin ár

Líf, ljómi þinn er skínandi skær.
Líf, augu þín svo saklaus og tær.
Fegurra en nokkuð annað.
Áhrifin ótvíræð:
ég svíf, því ég á
þetta líf



Heimsóknir í dag: 1
Heimsóknir frá upphafi: 15770