Elísa Eva Jóhannsdóttir
 

Velkomin(n) í heimsókn á síðuna mína - ekki gleyma að kvitta í gestabókina mína {#emotions_dlg.laughing}

Kíktu á myndirnar af mér og ekki hika við að setja inn athugasemdir {#emotions_dlg.wink}


Ég fæddist þann 17.október 2010 klukkan 22:38.  Ég var 49 cm og 2.855 gr.  

Foreldrar mínir heita Anna B. Gunnarsdóttir og Jóhann K. Kristjánsson.

Þann 21.nóvember 2010 fékk ég nafnið Elísa Eva.

Bróðir minn heitir Gunnar Ingi - kíktu líka á síðuna hans www.nino.is/gunnaringi


VOGIN

23. september - 23. október



Börn í vogarmerkinu eru oft glaðleg og broshýr og eru oftar en ekki börnin sem fá bros frá hinum sem bíða á biðstofu læknisins. Þau eru sjarmerandi og heilla aðra upp úr skónum. Félagslyndi einkennir vogina frá fyrstu tíð og litla vogin elskar að hafa margt fólk í kringum sig. Vogarbarn sem þarf að búa við einangrun getur orðið geðstirt, innhverft og óöruggt en þegar allt leikur í lyndi er það opið og hresst. Vogin á mjög erfitt með að gera upp hug sinn og virðist oft hafa lítinn viljastyrk. Þess vegna er mikilvægt að foreldrar hjálpi voginni að rækta með sér sjálfstæði og ákveðni meðal annars með því að fela henni ákveðin verkefni sem reyna á ákvarðanatöku. Líklegt er að Vogin spyrji álits og því er hægt að svara með því að spyrja: “Hvað finnst þér?” Síðan þarf að gefa henni næði til að vega og meta hlutina áður en hún tekur ákvörðun. Vogin er listræn í eðli sínu og mikilvægt að hlúa að þeim eiginleikum og skapa henni aðstöðu til að þroska listræna hæfileika sína.