

Halló, halló
Rétt að kíkja við og skoða myndir, Victoría Dís flott í snjónum að útbúa engil :) Elías Karl líka að góður að útbúa "snjóholu" meiri orkan í drengjunum okkar.
bestu kveðjur
Bakkabúarnir
Var að skoða allar sætu myndirnar ykkar :)
Vonandi gengur betur hjá EK með eyrnagatið en gekk hjá ED, hún fékk rosa kúlur í bæði eyru og það lagaðist ekki fyrr en eftir 5 mánuði !
Bestu kveðjur að austan
Mjög flott myndin á forsíðunni, annars bara kvitta fyrir innlitið, er ekki nógu dugleg að kíkja inn þessa dagana.
Vá hvað tíminn er fljótur að líða......Til hamingju með 6 mánaða afmælið :)
Kv. Jóna
Hæ hæ alltaf gaman að sjá hvað þið eruð að bralla
Knús og kram á línuna, og hlökkum til að sjá fleiri myndir af ykkur fljótlega
mamma ykkar er víst aðeins duglegri en okkar
Andri þór og Hekla Katrín :)
Hahaha :) Ansi fyndin sagan um tönnina ;) Vonandi er tannamúsin búin að koma í heimsókn núna !
Elfu Dögg liggur svo mikið á að losna við tennurnar að hún er búin að missa 5 stk. og nr.6 er laus, en Hlynur er mjög rólegur í þessu og er enn bara búinn að missa eina !
Bestu kveðjur að austan
Hæ hæ
Ekkert smá flottar janúarmyndir hjá okkur og sundmyndirnar geggjaðar, daman greinilega að njóta sín í botn :)
kveðjur
Bakkabúarnir
Var að skoða myndir og pistil, vonandi eru allir búnir að jafna sig eftir áramóta-sprengingarnar !
Loksins komnar myndir hjá okkur.......og það 2 desember albúm, ákvað að bíða aðeins með janúar til að demba ekki allt of miklu á fólk í einu !
kveðja í kotið
gleðilegt ár kæra fjölskylda
þið eruð lang flottust :O) alltaf jafn gaman að skoða myndirnar af ykkur
Gleðilegt ár kæra fjölskylda og takk fyrir það gamla !
Var að skoða fuuuuullt af myndum :) sumir eru sko duglegri en aðrir ( nefnum engin nöfn ) að setja inn nýtt efni !
Bestu kveðjur úr Miðtúninu
GLEðilegt nýtt sæta fjölskylda :* sakna ykkar mikið
knús frá dk
Kæra fjölskylda
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir liðið ár
nýárskveðjur
Stína, Nonni og Friðrik Daði Deb
Hæ hæ
Leitt að Victoría Dís skuli vera orðin lasin, setur nú eitthvað strik í reikninginn hjá ykkur. Vonum nú að hún verði flót að jafna sig og allt komist á rétt ról sem fyrst.
Njótið þeirra daga sem framundan eru
jólakveðjur
Stína, Nonni og Friðrik Daði Deb
Gleðileg jól flotta fjölskylda! Vona að þið hafið haft það gott í kvöld og eigið góða daga framundan :-) Með jólakveðju úr Grafarvoginum Eva, Gunni og dýrin
Ekkert smá flott nýja forsíðumyndin ykkar :)
Bestu kveðjur úr snjósköflunum á Seyðó
hæ hæ
flottar hjá ykkur aðventumyndirnar og heldur betur nóg um að vera :)
Victoría Dís stækkar ekkert smá mikið og mannast, flott stelpan.
sendum kveðjur í hús
Stína, Nonni og Friðrik Daði Deb
Alltaf jafn gaman að skoða myndir af ykkur fallegu systkini :) Sjáumst vonandi fljótlega!
Knús og kram
OBBOSÍ......klikkaði ég á afmælinu þínu Elías Karl !
Betra er seint en aldrei......Til hamingju með að vera orðinn 7 ára gaur :)
Mamma þín er snillingur í tertunum, ég væri sko alveg til í að fá hana lánaða fyrir fimmtugs-afmælið hans Rúnars um áramótin !
Bestu kveðjur frá Seyðó, Jóna "bakari"
Innilega til hamingju með daginn í gær elsku stóri strákurinn minn, hlökkum til að koma í afmælisveislu til þín.
Bergdís, amma Berglind og Hermann
Elsku Elías Karl
Innilega til hamingju með afmælið þitt í gær :) Frétti að það hafi verið svaka fjör í gær :) Knús í hús til ykkar hey já og til hamingju með pabba þinnn líka
kær kveðja frá århus
Harpa & Kolbrún Soffía
Innilega til hamingju með afmælið stóri strákur, vonandi skemmtir þú þér vel í veislunni í gær.. Okkur hlakkar mikið til að sjá þig næstu helgi :o)
knús og kram,
Hildur og co..
Innilega til hamingju með afmælið elsku Elías Karl okkar. Vonandi áttu rosa skemmtilegan dag og okkur hlakkar rosa til að koma í veisluna þína :)
Knús og kram
Halla, Eiður, Andri og Sunna
Til hamingju með afmælið Elías Karl. Eigðu góðan og skemmtilegan dag.
bestu kveðjur
Stína, Nonni og Friðrik Daði Deb
Til hamingju með daginn Elías Karl. Það hefur aldeilis verið nóg að gera hjá þér um helgina. Svo skemmtilegar myndirnar úr afmælinu :)
Til hamingju með 7 ára afmælið....
Kv Berglind og Krakkarnir
Ekkert smá flottur í nýja vestinu sínu töffarinn :)
Kv. frá Seyðó
Hæ hæ
Aðeins að líta við ykkur, búin að vera óvenju mikil leti þetta haustið við að skoða heimasíður, eins og það er nú samt alltaf gaman.
Ótrúlegur dugnaður í ykkur að halda alltaf uppá Halloween, okkur fannst nóg að sjá bara það litla sem var komið af skreytingum í Boston um daginn. Sjáum að þið hefðuð þurft að komast í Halloween búningabúðina sem við römbuðum óvart inn í, hún var álíka stór og Útilíf í Kringlunni, þið hefðuð notið ykkar þar :)
bestu kveðjur
Stína, Nonni og Friðrik Daði Deb
Flott nýja lookið :)
Vá maður, eins gott að Elías Karl breyttist ekki í svín af þessari bölvuðu pest !
Var að skoða litla pönkarann velta sér.........algjört æði :)
Kveðja frá Seyðó