Elísabet Ása og Þórunn Birta Einarsdætur
 

Elísabet Ása og Þórunn Birta

Hellingur af nýjum myndum frá Tyrklandi, september, október og nóvember komnar inn  og fullt af myndböndum:)

Velkomin á síðuna mína. Munið að kvitta, svo gaman að sjá hverjir fylgjast með :)


 



Elísabet Ása er falleg prinsessa sem kom í heiminn með keisara 10. apríl 2008 kl 10:36. Þegar hún fæddist var hún tæpar 13merkur og 51cm með mikið dökkt hár. Mamma og pabbi eru ótrúlega montinn  af mér og finnst ég fullkomin í alla staði. Enda algjört draumabarn.  Þann 26. apríl 2008 var daman skírð. Litla skottið fékk nafnið Elísabet Ása. Elísabet er út í loftið en Ása er eftir föðurömmu minni.

Þórunn Birta fæddist 14. desember 2011 kl 00:46. Þegar hún fæddist var hún tæpar 14merkur og 49cm. Litla jólabarnið okkar hefur verið yndisleg frá fæðingu, drekkur, sefur og er einstaklega ljúf og góð. Þann 8. janúar 2012 var daman skírð. Þórunn Birta er skírð eftir langömmu sinni sem hét Þórunn, sem og frænku sinni sem heitir Þórunn en Birtu nafnið er út í loftið.

Mamma og pabbi eru svo ánægð með okkur systurnar, enda erum við bara fallegar og góðar.

Mamma mín heitir Sigurlaug Þóra Kristjánsdóttir (1985) og Pabbi minn heitir Einar Már Björnsson (1981). Við búum saman í íbúðinni okkar í Norðlingarholtinu :)





Heimsóknir í dag: 2
Heimsóknir frá upphafi: 20769