

Hæ elsku snúllumúsin mín
Ef maður bráðar ekki yfir forsíðumyndinni af þér þá veit ég ekki hvað...... algjör rúsína......
Kossar og knús elsku stelpan mín
Katrín frænka
krúttukrútt!
ekkert smá sæt á forsíðunni, hann Einar Már Björnsson á nú örlítið í þér sæta mín ;)
knús í krús - hlakka til að sjá ykkur mæðgur! =)
Jedúdda mía hvað þú ert yndisleg elsku sætasta frænkan mín! Ég fékk nú bara tár í augun að skoða myndirnar af þér, þú ert svo kát og brosir svona fallega ( smá hormónar í gangi hjá yfirfrænku... ) Það hefur verið ljúft í sveitinni og það er lang best að hvíla sig þar :-)
Ég fer svo eiginlega fram á það að mamma þín bjóði mér í göngutúr með rauða vagninn...það þarf að viðra svona ófrískar konur annað slagið sko ;-)
Knús og kram til þín frá mér
Þórunn
Jiminn hvað barnið brosir fallega :D ha ha ekkert smá sæt
Yndislega krútt! Jiminn hvað þú ert sæt! Úff ég veeeeeerð að fara að kíkja á ykkur! Það er nú ekki eins og það sé himinn og haf á milli okkar, bara örfáir kílómetrar ;)
Geggjað stuð í nuddstólnum sé ég - þetta er sko eðal lúxus ;)
Knús í krús úr Grafarvoginum!
Annskan & Ninjan
Flottar myndir af skvísunni, alltaf gaman að kíkja hingað inn og fylgjast með.
Bestu kveðjur
Hæhæ
Rosalega er hún sæt og mikil dúlla hún Elísabet Ása.
Innilega til hamingju með hana litla fjölskylda
Kær kveðja
Katrín, gamla vinkona Sigurlaugar úr Neðstaberginu
Hæ hæ elsku frænka !!
Ofsalega ertu falleg, æðislegt að skoða nýju myndirnar af þér, þú ert alveg yndisleg!!! Hlakka til að koma í heimsókn og knúsa þig, er búin að kaupa smá pakka handa skvísunni, hún verður sko að vera í rétta liðinu :)
Stórt knús frá okkur til ykkar
kvitt kvitt, æðislega sætar myndir af þér Elísabet og þú ert svo mannalega, stækkar og dafnar vel hjá mömmu þinni og pabba!! :o)
Kveðja
Bogga og Patrekur
kvitt kvitt sæta frænka !!
Rosalega ertu sæt !!!!!!!!
Þvílika krúttið
Gaman að fylgjast með þér
Knús knús
Hæ elsku sætasta frænka mín!
Nýju myndirnar eru svoo flottar, þú ert bara fallegust og duglegust :-) Það var æði að knúsa þig smá í gær...ég er nú alveg komin með fiðring að fá eitt svona lítið kríli í fangið ;-) Sóley Bára er orðin svo stór og hún talar ekki um annað en þig..vill voða mikið hjálpa til og svona ;-)
Það verður stuð hjá okkur að fara á smá flakk í dag..hlakka svoo til að sjá þig :-)
Ást til þín
Þórunn og bumbugullið
Þú ert svo sæt litla mús:)
Gaman að fylgjast með þér vaxa og dafna elsku Elísabet Ása, og skemmtilegar svip sveiflur sem þú bíður upp á:)
Knús til þín krútt:)
bara að kíkja á fínu myndirnar af krúsídúllunni, hún er voða sæt og fín stelpa. Við þurfum að fara að kíkja í heimsókn mjög fljótlega.
Kv. Halldór og Eyrún
Alltaf gaman ad sjá myndir af fallegu prinsessunni :) og nýji vagninn er ekkert smá flottur ;) Thid verdid flottar á labbinu í sumar !!!
Vid komum heim í júni og thá er eins gott ad thad verdi kökubod í frænkuhópnum góda ;)
Knús og kram frá sunny Köben
hæ, hæ,
Vá hvað daman er orðin mannaleg. Ekkert smá flott stelpa. Hlakka til að sjá hana í eigin persónu í næsta hitting ;O)
kv Rúna Magga og "lilli"
hæhæ fallega prinsessa:) til hamingju með fallega nafnið þitt:) Okkur þykir þú mjög lík pabba þínum hehehe:) gaman að sjá myndir af þér:) þurfum svo að fá að kíkja á þig í eigin persónu einhvern daginn:)
knús og kossar
Steinunn og co í kópavoginum:)
vá hvað hún er falleg. Til hamingju með þetta flotta nafn Elísabet Ása.
Til hamingju með fallega nafnið þitt litla Elísabet Ása, knús til ykkar allra.
Til hamingju með prinsessuna bæði tvö, algjört gull þarna á ferð. Elsku litli gullmoli til hamingju með fallega nafnið þitt:)
Mamma og Anton Breki.
Við getum ekki beðið eftir að sjá ykkur á þriðjudaginn :0) Æðislegar myndir af þér, þú ert algjört æði!
Hæ elsku besta frænka mín!
Það er yndi að skoða myndirnar af þér og þú ert nú alveg fallegust, skemmtilegir svipir sem koma á þig :-) Hlakka svoo til að sjá þig í dag og knúsa þig...er alveg komin með fráhvarfseinkenni.....!!
Elska þig útí geim og aftur heim
Knús Þórunn bumbulína
Innilega til hamingju með nafnið þitt Elísabet Ása.
Alveg yndislegt og hæfir vel svona lítilli prinsessu :)
Elsku Sigurlaug og Einar Már gangi ykkur allt í haginn og ég óska ykkur bjartrar framtíðar.
Bestu kveðjur Jóhanna og Steinar
Hæ hæ fallega fjölskylda. Innilega til hamingju með þetta fallega nafn, Elísabet Ása! Þú er ekkert smá sæt. Hlakka til að sjá ykkur mæðgur (vonandi á þriðjudaginn). Knús, Hrafnhildur og litli kútur (sem hlakkar til að fá nafn líka)
En úff hvað þú ert sæt litla rangeygða zoolander stelpa!
Er einhver möguleika að fjarlægja þessa gífurlega smart undirhöku mynd af mér elsku Sigurlaug? haha (samt ekki djók)
Innilega til hamingju með fallega nafnið þitt Elísabet Ása. Æðislegar myndir þú ert algjör rúsína :)
Kv, Kata og Kristinn Snær.
Innilega til hamingju með þetta fallega nafn.... Var að skoða myndirnar og sé að hún mamma þín hefur verið að kenna þér að setja stút á varirnar:) Verður myndarlegri með hverjum deginum sem líður.
Var að kíkja á nýjar myndir, og skvísan verður bara sætari með hverjum deginum. Vona að kvefið hverfi fljótt. Gangi ykkur allt í haginn.