

Kvitt kvitt:) Þú ert æði með svona topp Elísabet Ása. Mikið líður tíminn hratt og þú ert að verða 1.árs...en við vonumst til að hitta þig í næstu viku sæta mús...biðjum að heilsa mömmu og pabba. kveðja frá norðanfólkinu: Ásdís , Selma Sól og Arnór Máni
Hæ elsku vinkona og gott að þú ert komin aftur heim. Við vorum að lesa ferðasöguna og mamman fékk alveg í magann, jæts! Vona að þér heilsist betur sem fyrst, sjálfur hefur Ívar verið með RS vírus og lungnabólgu í febrúar og núna kominn aftur með massívt kvef... Ekki mikið stuð á þessum bæ;-)
Knús,
Ívar og mamma
OMG ég fékk alveg í hjartað að sjá Elísabetu svona veika.. hlítur að hafa verið rosalega erfitt. En fyrir utan það þá hefur greinilega verið gaman hjá ykkur og þið náð að njóta ykkar. Vonandi er kvefpestin að jafna sig hjá ykkur. Knús og kram til ykkar.
Hæhæ sæta stelpa...mikið er það gott að RS-inn se búinn og nú er bara að skella sér í sólina...það verður sko gaman hjá ykkur. Vildum bara segja þá góða ferð út og hafið það gott. Svo förum við að hittast fljótlega þegar þið komið heim. Kveðja frá Akureyrinni:) Ásdís og grísirnir tveir
Elsku vinkona,
Mikið er gaman að sjá hvað þú ert dugleg og flott stelpa:)
Hlökkum til að hitta þig í sumar:)
knúsar og kossar frá okkur
Hæ elsku besta frænkan okkar!
Til hamingju með mömmsuna þína - ofsalega var gaman í afmælinu áðan og þú alltaf svo flott og fín...og ekkert smá dugleg að standa!!! Þú tekur frænda þinn í kennslu...þegar hann hættir að vera eins og slefandi kartöflupoki :-)
Okkur langaði að knúsa þig í kaf þegar við sáum forsíðu myndina!
Fullt af ást til ykkar
Þórunn og lummurnar hennar
Halló elsku stelpan mín til hamingju með mömmu þína og litlu stelpuna mína.Við sjáumst í kaffinu í dag,vonandi eigið þið góðan dag.Elska ykkur.
Þín Amma
Hæ Snúllumús, til hamingju með mömmu gömlu, vertu nú alveg extra góð við hana í dag......
Knús og kossar
Katrín
Gott að þetta er að þokast í rétta átt hjá ykkur. Það verður æðislegt að komast smá í sólina. knús og kram til ykkar
Hæ hæ, daman stækkar fljótt :)
Ég sá að þið væruð að fara til Tenerife 10. feb.
Við erum að fara núna 27. jan og verðum í tvær vikur :0) komum heim þegar þið farið út.
Bestu kveðjur
Hæ elsku snúllumúsin mín, vonandi ertu betri í dag krúslan mín.....ekki gott að vera svona lasin....nú kemur frænka bráðum og knúsar snúlluna sína........
Knús og kossar
Katrín frænka
Hæ vinkona:)
Til lukku með tönnina og að vera búin að læra að standa! Þá er friðurinn úti þegar þú átt að fara að lúlla, þannig var það alla vega á þessum bæ, alltaf verið að standa upp og hoppa:)
Knús,
Ívar kútur
Innilega til hamingju með gullmolann þinn Einar Már og þið bæði.
Greinilega hress og brosmild eins og pabbinn.
Kveðja Elfar og Snjólaug.
úff gullmolinn!!
Innilega til hamingju með trúlofunina og vá hvað maður bráðnar yfir sætu brosi hjá gullfallegri prinsessu ;)
vona að lífið fari sem best með ykkur
Kveðja Hulda (keiluhallardýr og Elfarsdóttir) og Aldís Elfa ofurafastelpa
Elsku Elísabet Ása, Sigurlaug og Einar,
Gleðileg jól og til hamingju með trúlofunina:)
Sjáumst 2009:)
Vertu duglega að stækka og vera flott og fín Elísabet Ása:)
kær kveðja Rowen Lilja og Melkorka
Gleðileg jól og til lukku með trúlofunina. Knús og kram.
Gleðileg jól kæra fjölskylda og til hamingju með trúlofunina :)
Bestu kveðjur
Gleðileg jól kæra fjölskylda og innilega til hamingju með trúlofunina :D
Við mægður getum ekki beðið eftir að hitta ykkur á morgun...
Gleðileg jól, Elísabet algjört mega krútt eins og vanalega :D
Til lukku með tönnsluna þína skvísa. Núna þarf að bursta hana á fullu.. ekki spurning. Þú ert rosalega dugleg að passa hann Aron Darra sætilíus. Knús og kram til ykkar...
ps.. maður fær nú bara vatn í munnin yfir öllum þessum sörum..
Þetta er nú meira krúttið sem þið eigið, hún er síbrosandi og með dásamlegan prakkarasvip á sumum myndum. Algjör skonsa :o)
Hafið það gott yfir hátíðarnar.
Knús Bertha og co.
Elísabet Ása er svo mikid beauty....alltaf brosandi út ad eyrum og algjör snúllurass ;) Vonandi nær madur ad hitta á ykkur familiuna í kringum nýjaárid :) Knús og kossar
Hæ, hæ! Flottar myndirnar af skvísunni ykkar. Sé hún er orðin mikil tæturófa. Flott að fyrsta tönnin sé komin :)
Bestu kveðjur
Sæta sæta litla krúttubolla....vildum bara kasta kveðju á ykkur fjölskylduna..vona að astminn sé að skána..ekki gott að vera með það svona lítil. En hvað segir mamam þín um hitting sem fyrst?? kveðja, Ásdís Elva og co.
If this is the first english little Elisabet Ása gets to read, I am happy I am the one that wrote it... a cute baby girl to a beautiful mother.
From Uncle John of Perth
Hæ elsku snúllumúsin mín, til hamingju með tönnsluna, nú þarf frænka ekki að gefa þér falskar í afmælisgjöf.........
Knús og kossar
Katrín YFIRfrænka
Hæ sæta vinkona:) Gaman að sjá hvað þú ert dugleg með plasflöskur og innkaupapoka, greinilegt að við höfum svipuð áhugamál;-)
Kveðja,
Ívar Ingi pokastrákur
Sæl og bless og takk fyrir innlitið og kveðjuna á síðunni okkar.. Já, frábært að þessar einu tvær á Íslandi sem bera þetta fína nafn hafi jafnframt sama föðurnafn og eru alnöfnur. Þetta er ótrúleg tilviljun.
En það er sko meira en það sem tengir þessi börn okkar, því litla stelpan ykkar er líka fædd sama dag og strákurinn okkar, 10. apríl! Alveg magnað.. Við búum greinilega undir sömu stjörnunum ;)
Bestu kveðjur úr Firðinum,
Birna Ósk, Einar Örn, Agnar Daði og Elísabet Ása
Mikið svakalega ertu nú mikil monsa, við getum ekki beðið eftir að sjá þig í næstu viku, held að Margrét Ösp eigi alveg eftir að sleppa sér yfir þér, hún gjörsamlega elskar svona litlar monsur.
Hæ hæ, var bara að kíkja á nýju myndirnar af gullmolanum ykkar.
Hún stækkar hratt unga daman :)
Bestu kveðjur