

Það er aldeilis hvað þú stækkar ort. Ekki svo langt í að þú látir sjá þig :)
Bið að heils mömmu :)
ohh frábært að þið hafið haftþað gott yfir jól og áramót...
og vonandi gengur meðganga sem best áfram..
ég á eftir að sakna þín í skólanum sigurlaug en þú verður bara dugleg að kíkja á okkur..
svo fer ég að kíkja í heimsókn til að sjá nýja placið..
kv
Tinna Berg
Þetta eru æðislegar myndir af ykkur og bumban stækkar ekki smá mikið. Gott að allt gengur vel :o)
kveðja Elfa
Flottar myndir og flott fjölskylda.. greinilega stuð hjá ykkur um hátíðarnar.
Knús og kram
Hæ!!!
Gaman að skoða allar þessar myndir.
Flott íbúð sem þið fjárfestuð í.
Æðislegar bumbumyndir!! :)
Elsku Sigurlaug til hamingju með bumbubúann þinn. Við hlökkum til að hitta þig;)
Vá, fína íbúðin og svakafína bumban...ég verð að fara að koma í heimsókn og kíkja á ykkur það er að verða glatað hvað það er langt síðan við höfum hist!
Til hamingju með þetta allt saman. Glæsileg nýja íbúðin ykkar.
Sigurlaug mín, þú alveg blómstrar :) Guð gefi ykkur farsælt og hamingjuríkt 2008.
Bestu kveðjur Jóhanna
Gleðileg jól og gleðilegt nýtt ár. Gangi ykkur allt í haginn á nýju ári.
bumban þín er svooo sæt :o) lítur rosalega vel út...
jólakveðja frá okkur :)
Gleðileg jól elsku vinir...vonandi hafiði það sem alra best yfir hátíðirnar..
við sjáumst og heyrumt svo fljótlega
kv
Tinna og co
Hæhæ elskurnar.Okkur langaði bara að óska ykkur gleðilegra jóla og farsæld á komandi ári, og innilega til hamingju með nýju íbúðina ykkar.. P,s ekkert smá flott kúla komin á þig skvís
hæ hæ bumbulína þú ert eða verða svo stór mamma þín er komin með svo myndarlega bumbu. Vonandi hafið þið það gott um jólin og alltaf. Gelðileg jól og farsælt komandi ár
Jóla og nýarskveðjur Halldór og Eyrún
Hæ elsku þið,
fann síðuna ykkur, í gestabókinni hjá litlu Báru. Á pottþétt eftir að fylgjast með ykkur hér. Til hamingju með litla gullmolann og íbúðina. :))) Gott að lykilorðið skuli vera ættað frá okkur í Mosfellsbænum, gekk í annari tilraun :)))
Hátíðarkveðjur frá Helgu, Ágústi, Leó og ættföðurnum Kubbi.
Rosalega gaman að sjá ykkur í gær, lítur ekkert smá vel út Sigurlaug...
Váá æðisleg íbúðin ykkar, verðum að fá að kíkja í heimsókn :o) Þú litli bumbulíus átt pakka hérna heima, verðum að reyna að koma honum til þín fyrir jólin...Vildum bara kvitta fyrir innlitið, erum víst ekki alveg nógu dugleg í því þótt við kíkjum oftast á hverjum degi...
Knús og kram, Hlíðagengið
Hæ hæ sæta bumbukríli...gaman að fá ða sjá myndir af þér:) og svo er líka alltaf gaman að fá að sjá hvað húsið þitt stækkar sem mamma þín ber:) en vildum bara kasta kveðju á ykkur...hafið það gott um jólin, kveðja, Selma og mútta
hæ sætakrútt! vildi bara kasta á ykkur kveðju fyrst ég var nú hérna að skoða ;) ég er daglegur gestur hérna eins og góðum aðdáanda sæmir ;)
Hæ hæ ekkert smá flottar sónarmyndir af þér. En hvað voru mamma og pabbi ekkert forvitinn og fengu að vita kynið?? heh en gangi ykkur bara rosalega vel..
að er sko greinilegt að þú verður algjört módel þegar þú fæðist, rosa flottar myndir af þér litla gullið mitt....
Hlakka til að geta knúsað þig í kaf þegar þú mætir á svæðið, læt mér duga að knúsa bumbuna á mömmu þinni þangað til.......
Katrín frænka
Jæja loksins loksins komnar inn nýjar myndir
Hææj Einar Már og Sigurlaug.. híhí innilega til hamingju með bumbubúan.. æðislegt að fá að fylgjast með ykkur.. mamman er í sama spjallhópi og ég og pabbinn var með mér í Árbæjarskóla.. híhí.. vona að allt gangi vel hjá ykkur.. sjáumst kannski á Reunioninu um jólin Einar.. kveðja.. Ellý bumbulína
hæhæ
vildum skilja eftir smá spor....vonandi var bara óggislega gaman í kóngsins köben..
og vonandi gengur foreldrum þínum sem best í lærdómnum..
jæja verðum að halda áfram að læra..
hilsen
Tinna og Halldór
gaman að sjá hvað bumban stækkar og stækkar.... hlakka til að sjá hana um jólin... Góða ferð til Köben
Hæ elsku besta frænka/ frændi minn!
Takk fyrir lánið á settinu þínu á laugardaginn, það var æði að vera með þeim....ég var sko ekki á því að fara að sofa og var bara vakandi þegar gengið mitt kom heim...ég kann sko alveg að skemmta mér líka!!
Knús og kram
Sóley Bára skotta lotta
hæ hæ, ekkert smá fín bumba sem þú ert komin með, gangi ykkur vel með framhaldið ;o) þetta er svo gaman =)
hæhæ
vildi líka kvitta hérna...aldrei of oft kvitað held ég :)
hafið það gott og sjáumst hress í næstu viku eða bara á morgun or some...
hafiðþað sem allra best og TIL HAMINGJ MEÐ NÝJU ÍBÚÐINA..ÉG KEM SVO TIL ÞÍN Í KÖKUR OG MEÐ ÞVÍ
KV
Tinna
Til hamingju med bumbugullid...Vona ad allt gangi vel! Fylgist med ykkur...Sigrun
Ég er alveg sammála henni Elmu....ég sé þig fyrir mér með litla prinsessu =0)
Enda er ég búin að fjárfesta í hello kitty sokkum fyrir dömuna híhíhí