

Elsku Sigurlaug mín, gangi þér rosalega vel á morgun, ég mun senda þér alla mína orku og góðu hugsanir, hugur minn verður hjá þér, hlakka alveg rosalega mikið til að sjá myndir af litla gullmolanum.
Risa knús og kram
Kolla og gengið
Elsku Sigurlaug, gangi þér sem allra best á morgun.
Þú átt eftir að standa þig eins og hetja. Sendi þér mína bestu hlýju og góða strauma :)
Hlakka svo til að fylgast með á morgun í vinnunni. Ég finn fyrir bláum straumum :) en hver veit!!! Say No More!!
Knús á ykkur öll,
Bestu kveðjur Jóhanna og Steinar
Jji maður er alveg að farast hér ur spenning tek sko undir með Þórunni að maður telur niður dagana;) en já hvort ætli þetta verði nú, kemur mer nú ekkert á óvart að þetta verður lítill prins:) en ég verð sko hér allan fimmtudaginn að bíða eftir fréttum ehhe, en knús og kram frá okkur og gangi ykkur rosalega vel elskurnar..
Kv Emilía Ósk og settið hennar.
Hæ elsku gull :-)
Við erum svoo spenntar mæðgur að fá þig í heiminn..við teljum niður og það verður yndi að sjá þig á fimmtudaginn!!
Mamma þín er duglegust í öllum heiminum og verður glöð að fá þig til sín :-)
Knús og fullt af ást...sjáumst á fimmtudaginn!!
Hæ hæ sæta sæta bumbukríli...
Nú fer að styttast svakalega, það verður gaman að sjá þig !!
Mér fannst svolítið blátt eitthvað í fataskúffunni þinni :) það kemur í ljós eftir nokkra daga...
Gangi ykkur svakalega vel!!
Rosa stórt knús og kossar frá okkur til ykkar
Hæ hæ elsku Einar Már og Sigurlaug
Ég fékk leyniorðið hjá Önsku og Ninju litlu og stalst að sjálfsögðu til að kíkja. Þú berð þig ekkert smá vel með bumbuna Sigurlaug !!
Ótrúlega gaman að sjá myndir og lesa fréttir frá ykkur.
Gangi ykkur rosalega vel á endasprettinum :O) Þetta er svo gaman !!
Kv Pálína Ármúla vinkona hehe
jææjjjaaaa nú styttist í þig litla kríli. Mamma þín er ekki búin að vera smá dugleg að hafa þig þarna í hlýjunni. En ég er farast úr spenningi að fá að sjá þig. Elsku Sigurlaug gangi þér ofsalega vel...svo eru bara spennandi tímar framundan. kossar og knús frá okkur mæðgunum í árbænum
Það er bara farið að koma að þessu.... Gvuð hvað þessi tími var fljótur að líða. Hlakka mikið til að koma í heimsókn til þín þegar litli/litla er komin í heiminn.... Þá ætla ég að bjóða mér sjálf í og segja þér allt slúðrið sem þú ert búin að missa af hérna í skólanum:) Skilaðu kveðju til Einars frá mér!
Hæhæ, nú styttist alveg óðum í krílið ykkar. Við erum rosa spenntar :)
Kossar og knús ;)
Hæhæ.
Var að kíkja hvernig gengi :)
Æðislegar bumbumyndir!
Bíð spennt eftir frekari fréttum
kv. Katrín og fjölsk.
Hæ sæta fjölskylda nu styttist óðum í að krilið komi ég get sko ekki beðið eftir að heyra dagsetninguna;) en ykkur rosalega vel..
Kv. Emilía Ósk og mammslan hennar,,
P.s takk Sigurlaug mín fyrir að finnast hún alveg eins og ég heh; segja allir að hún sé eins og pabbi sinni;)
Hæ hæ
Rosalegar flottar bumbumyndir. Hlakka til að heyra dagsetninguna.
Vonandi höfðuð þið það gott um páskana :o) Nú fer aldeilis að styttast í bumbukrílið ykkar, ekkert smá spennandi! Vonandi kemur allt vel út hjá lækninum á morgun...
Er alltaf að kíkja og skoða myndir! :) Vonandi hafið þið það gott á lokasprettinum sætu! Knús og koss
Gleðilega páska elskurnar.
Páskakveðja. Sævar, Bjarney og Emilía Ósk skvísu skott
Hæ, hæ, sæta,
Flottar myndir og sætar bumbumyndir, söknum þín rosalega í sundinu, 36 vikur að verða búnar nú er þetta alveg að koma, gangi þér vel, kveðja Þórunn
Jæja litli gullmoli, nú fer að styttast í komu þína, ohhhh mig hlakkar svo til að knúsa þig í kaf, verður sko gaman hjá Möggu móðu, tala nú ekki um þegar það verða nú komin 2 kríli til að kreista og knúsa.....
Þín frænka
Katrín
Jæja, það styttist og styttist. :)
Hæ elsku bumbugullið mitt!
Takk fyrir að leyfa mér að leika í herberginu þínu í gær, þú átt ekkert smá mikið af flottum böngsum :-) Ég er orðin voða voða spennt að fá þig til mín og geta kysst þig í kaf....!
Elska þig útí geim og aftur heim
Þín stóra og besta frænka
Sóley Bára
Ooo hvað herbergjið er orðið æðislega flott hjá ykkur :D !! Til lukku með þetta allt saman!!
knúúús!
kv.Elísabet
"aprílmamma - aka. BjudyBumba" :D
hæhæ.. fylgist alltaf með hérna, buman þín blómstar alveg og það styttist ekkert smá í stóra daginn :o) vonandi að ykkur heilsist vel :o)
Kv. Bogga og Patrekur Trausti
vá hvað herbergið þitt er flott...
maður bara öfundar þig..
farðu svo að segja múttu þinni að kíkja upp í skóla þegar hún hressist sem er vonandi fljótt..
kv
Tinna
hæææææ sæta bumbulínusarkrúttið mitt!
til hamingju með skorðið ;)
hlökkum til að hitta þig, vonandi bara um helgina! =)
knús og koss - Annsa & Ninja
Hæ litla sæta fjölskylda.
Guð það er bara sirka mánaður í settan dag, er orðinn mikill spenna í loftinu ?hehe við getum sko ekki beðið eftir að fá fréttir;) en gangi ykkur rosalega vel elskurnar,
Kv. Emilía Ósk bjútí bolla og mammslan hennar..
hæhæ til hamingju með krilið. gaman væri að skoða myndir. Við vorum saman í Hólabrekkuskola ég og mamma þín ég er 84 módel heiti Fanney
Vonandi gengur allt vel hjá doksa á mánudag. Bestu kveðjur :)
Hæ bumbukríli!
Vonandi fer mömmu þinni að líða betur eftir fallið.
Kv. Lena
Hæ, mikið rosalega fer það mömmu þinni vel að vera ólétt.
Bara að kvitta fyrir innlit.
hæ sætu krúttin mín!
ég er alltaf að hugsa til ykkar - sakna ykkar!
verð nú að fara að kíkja í heimsókn - kem til ykkar í næstu viku =)
þá kannski verða verkirnir á undanhaldi, ef ekki þá kem ég bara með nammi, vídjó og slúður upp í rúm til ykkar ;)
Mér finnst alveg hræðilegt að sjá þig ekkert með þessa sætu bumbu og skuggalegt að hugsa til þess að þú verðir kannski komin með lítið kríli í hendurnar næst þegar ég hitti þig...vá hvað tíminn líður! Vonandi hefurðu það gott elsku Sigurlaug mín og lætur hann Einar dekra alveg sérlega mikið við þig á morgun á konudaginn!
Knús,knús!