Nökkvi,Brynja Dögg og Sigurður Emil
Nökkvi,Brynja Dögg og Sigurður Emil
 
 
 

Vefdagbók

 

4 mánađa

Jæja þá er minns orðinn 4 mánaða, Sigurður Emil. Hann stækkar og stækkar. Mamman á enga mjólk lengur þannig að Sigurður Emil fær bara pela mjólk en líkar miklu betur. Hann fékk graut að borða um miðjan október og er mjög ánægður með það og er farinn að borða mjög vel á kvöldin af grautnum. 

Sigurður Emil er orðin duglegur að sitja í bumbó stólnum sínum og unir sér einnig í leikgræjunni miklu sem stendur á gólfinu okkar. 

Brynja Dögg stækkar líka, hún er voðalega dugleg í leikskólanum og líkar vel. Pabbinn fer alltaf með hana og mamman og Sigurður Emil sækja hana. 

Nökkvi er duglegur í skólanum og fimleikum. Hann átti afmæli 19. október og bauð hann öllum strákunum í ammælispartý miðvikudaginn 19. október. Það vildi svo heppilega til að mamman var með ælupesti þann dag, með miklum erfiðleikum þá tókst henni samt sem áður að búa til þessa fínu hrískransaköku, Einar pabbi bjargaði svo málunum og bakaði ammælistertuna og gerði pizzur. Siggi, Svanhvítar kom svo og hjálpaði til í afmælinu. Þeir eru orðnir það stórir strákar að þetta var frekar auðvelt í þetta sinnið miðað við síðustu skiptin. Þeir léku sér í smá stund, svo var horft á mynd, borðuð pizza, haldið áfram að horfa á mynd, leikið smá og svo kaka. Þá var afmælið búið. Nökkvi hélt einnig afmæli fyrir fjölskylduna á sunnudeginum, en þá voru allir búnir að jafna sig. Boðið var upp á kökur frá skírninni hans Sigurðar Emils og smökkuðust þær mjög vel.

Brynja Dögg er orðin klár í að fara kollhnís. Kannski verður hún upprennandi fimleikastjarna, hver veit.

Keypt var nýtt rúm fyrir Brynju Dögg því hún var farin að príla upp úr rúminu sínu, Sigurður Emil fékk þá rimlarúmið. Allir una sér vel í nýju rúmunum. Nökkvi fékk einnig nýtt rúm í lok september og líkar mjög vel. 

Allir eru mjög ánægðir á þessu heimili. 

31. October 2011 - 21:40

 
 

3 mánađa prins

Þá er Sigurður Emil orðinn 3 mánaða. Stór drengur. Hann er búinn í 3 mánaða skoðun og fékk loksins góða skoðun, hann mældist 5,7 kg og 61 cm. Hjördís hjúkka var mjög ánægt með okkur. Sigurður Emil er mjög glaðlindur strákur, alltaf brosandi. 

Hann er orðinn það stór að mamman er ekki með nógu mikla mjólk þannig að drengurinn er alfarið kominn á pela nema á næturnar og allir eru ánægðir með það. Hann er farinn að vera duglegur að liggja á leikteppinu sínu, sefur á morgnanna mömmunni til mikillar gleði. Einnig er hann duglegur að sofa á næturnar þannig að foreldrarnir geta ekki kvartað.

Brynja er góð við litla bróa, hún setur upp í hann snuðið ef hann skælir og klappar honum á höfuðið, nokkra  morgna hefur hún viljað kyssa hann bless þegar skvísan fer á leikskólann. Brynju Dögg líður vel á leikskólanum, hún er að vísu mjög þreytt eftir daginn og það hefur komið fyrir að hún einfaldlega sofnar heima af þreytu rétt fyrir kvöldmat. Það hefur orðið mikill þroskamunur á henni síðan hún byrjaði á leikskólanum, hún er farin að tala meira og einnig er hún farin að eigna sér hluti og heyrist því mikið á þessu heimili "ég á".

Nökkva líður vel í skólanum, hann er duglegur að læra í skólanum sem og heima. Lesturinn er kominn á gott skrið.

Mömmu og pabba gengur vel í því sem þau eru að gera, vinnulega séð og skólalega séð.

30. September 2011 - 21:24

 
 

Sigurđur Emil, skírnin

Jæja, þá er litli drengurinn búinn að fá nafn, Sigurður Emil. Hann er skírður í höfuðið á afa sínum Sigurði og langaafa sínum, afa, afa á Akureyri Jón Emil. Skírnin gekk vel, hún fór fram heima í Tröllakór þann 27. ágúst. Sigurður Emil var skírður upp úr skírnarskálinni sem frænka Svana bjó til fyrir skírnina hennar Brynju Daggar. Hann var í skírnarkjólnum sem amma á Akureyri saumaði þegar hún var í húsmæðrarskólanum á Akureyri, hún var 16, 17 ára þegar hún bjó hann til. Mamman og Nökkvi voru bæði skírð í þessum kjól. Presturinn var hress og skemmtilegur og allt fór vel framm. Mamman og ömmurnar báðar voru duglegar að baka fyrir skírnina og var mikið af afgang eftir. 

Nú Brynja byrjuð á fullu á leikskólanum Dal. Pabbi fer alltaf með hana á leikskólann og mamma sækir. Hún er ekkert afskaplega glöð að fera skilin eftir og skælir smá en hún skælir í smá stund svo fer hún að leika sér. Hún sefur vel og borðar vel. Og er dugleg að leika sér.

Nökkvi er byrjaður í skólanum, hann er kominn í 3 bekk og orðinn stór strákur. Hann fékk nýja skólatösku fyrir skólann og er hann svakalega ánægður með hana. Honum fer mjög fram í lestri og reikningi og finnst honum mjög gaman að reikna.

Mamman er byrjuð líka í skólanum og samkvæmt námsáætlunum verður mikið að gera þessa önnina, einungis 5 ritgerðir að skrifa, 1 kynning og 2 hópaverkefni. En hún verður bara mjöög dugleg.

Pabbi vinnur og vinnur og þess á milli fer hann í ræktina til að rækta líkamann og ja sálina líka. Mamman fer líka af og til.

Þannig að það má segja að rútínan sé byrjuð á þessu heimili. 

Þar til næst

2. September 2011 - 14:11

 
 

Þá er litli prinsinn orðinn 7 vikna. Við fórum í skoðun og hann mældist 4888 kg og 55 cm. Hjúkrunarkonan hún Hjördís var á nægð með það  og nú er það bara að halda áfram  að mjólka fyrir mig og drekka fyrir hann. Hann er farinn að horfa mikið í kringum sig, brosa og hjala. Við erum nú komin heim úr ferðalaginu okkar og nú tekur við biðin eftir að skólarnir hjá okkur byrja. Brynja byrjar þann 16. í aðlögun á leikskólanum Dal, Nökkvi byrjar 22. annan ágúst og mamman byrjar 29. ágúst. Öll hlökkum við til.

18. August 2011 - 10:46

 
 

Prinsinn 4 vikna

Þegar litli prins varð fjögurra vikna var hann orðinn 4420 kg ekki þótti hann nógu þungur og þurfti að fara í auka vigtun, en við erum orðin vön því, hann fór því í aukaviktun 4 dögum seinna og var orðinn 4500 kg, mamman fékk þau fyrirmæli að vera vökul fyrir því að gefa á 3 tíma fresti. Þegar hún fékk leyfi til að fara þá var lagt af stað í ferðalag. 

Þegar prinsinn var orðin fjögurra vikna var hann nú þegar búin að fara í Íkea, Kringluna, Smáralindina, heimsókn til ömmu og afa í Þjórsárdalinn og heimsókn til ömmu og afa í Laugaland og nú var hann að fara í ferðalag til Akureyrar. Spurning hvort hann verði flakkari þegar hann verður eldri.

Drengurinn dafnar mjög vel, hann drekkur, sefur og kúkar og pissar. Það þarf að vísu að halda á honum og rugga að einhverju leiti en það verður passað upp á það að hann venjist því ekki of mikið.

Brynjan er farin að knúsa hann og kyssa mun meira en fyrir 4 vikum síðan, en hún er svo lítil litla krúttið.

17. August 2011 - 15:12

 
 

18. júní 2011

Þá skall 18. júní í garð. Mamman var orðin ansi þreytt á kúlunni sinni og var að vonast til að litli kútur færi nú að láta sjá sig. Fjölskyldan fékk sér góðan göngutúr þann 17. júní og farið var í kaffi til Margrétar. Þar sem við gerðum þessa hluti einnig daginn áður en Brynja fæddist taldist líklegt að drengurinn mundi koma 18. júní, viti menn kl 06 vaknaði mamman við það að vatnið var farið að leka hægt og rólega. Margrét frænka var komin til að passa um kl 07 og lögðum við af stað niður á deil kl 07:30. Þegar þangað var komið var mamman skoðuð, hún fékk sér morgunmat og pabbinn líka. Svo voru skötuhjúin sett inn í fæðingarherbergi og þá byrjuðu hlutirnir að gerast. Mamman fékk glaðloftið sem hjálpaði henni mikið, það var það mikill kraftur á glaðloftinu að eitt skiptið þegar ljósmóðirin kom inn spurði mamman "varstu hérna áðan eða ertu að koma bara núna" mamman var orðin vel rugluð af glaðloftinu. kl 11:30 fæddist svo litli drengurinn sem var 16 merkur og 51 cm eða 4077 kg. Þegar við ætluðum að taka myndir áttuðum við okkur á því að myndavélin var ónýt, týbískt en við náðum nú að taka myndir á síma mömmunnar, en hann var að verða batteríslaus sem er jú ekki í fyrsta skiptið, en einhverjar myndir náðust af litla prinsinum.

Þegar hringt var í ömmuna á Akureyri fengum við þær fregnir að hún var komin til Reykjavíkur, hún tók fyrstu vél suður þegar við létum hana vita kl 07:30 um morguninn að við værum á leið upp á fæðingardeild. 

Foreldrarnir hvíldu sig upp á hreyðrinu til að verða 17 um daginn og þá drifu þau sig heim, því þau vissu að Nökkvinn var orðinn spenntur, þegar heim var komið hljópa hann út í bíl til að kíkja á litla bróður. Hann var svo ánægður með litla kút.

Brynjan var eitthvað feimin í fyrstu en svo skipti hún sér ekkert af litla bróður í fyrstu.

17. August 2011 - 14:53

 
 

Sumariđ 2011

Jæja, loksins komið að því að skrifa niður smá færslu um stórfjölskylduna á Tröllakór 2. Mikið að gera á stóru heimili og lítil tími fyrir skrif.

Brynja Dögg er orðin mjög dugleg að tjá sig, og reyna að fá  sínu framgengt. Hún er voða hrifin af dýrabókum og kann að benda í bókinni og þekkir helstu húsdýrin, mest er hún þó hrifin af bíbí. Hún notar mikið orðið „gulla“ sem þýðir m.a annars að hún sé þyrst og langar í mjólk, einnig notar hún það við ýmis önnur tækifæri, óþarfi að vera að flækja þetta of mikið. Brynja er líka orðin duglegri að borða. Hún borðar oft hafragraut á morgnanna. Finnst æðislegt að fá franskar á kvöldin, en í mestu uppáhaldi eru gúrkur, tómatar, paprika,  ólívur og fetaostur. Svo vill hún hafa matinn sinn solidið „spyci“, er lítið fyrir  ókryddaðan og bragðlausan mat.


Brynja að borða

Brynja er orðin dugleg að sofa á nóttinni, fer yfirleitt upp í rúm kl: 20.30 og vaknar milli átta og níu á morgnanna. Maður sér yfirleitt hvenær Brynja er þreytt þar sem hún hefur þann ávana að vefja upp á hárið á sér með hendinni þegar henni syfjar. Hún er líka er mjög hrifin af bróðir sínum honum “NA Na!“ eins og hún kallar hann. Vill helst príla upp í kojuna hans á morgnana og vekja hann. Nökkvi er líka mjög duglegur stóri bróðir og finnst mjög gaman að leika við systur sína.  

 

Brymja og Nökkvi að leika

Í byrjun sumars var hafin leit af stærri bíl, þar sem styttist óðum í að nýi fjölskyldumeðlimurinn fær að koma í heiminn. Fest var kaup á 7. manna Suzuki Grand Vitara, þar sem ekki veitir af nægu plássi fyrir stóra fjölskyldu.

Það var svo 18. Júní.  Að litli prinsinn fæddist. Hann var 16.merkur og 51 cm, svaka stór og flottur strákur. Fólki finnst hann voða líkur pabba sínum, sem hann er sko hæst ánægður og montinn að fá að heyra.  Allt hefur gengið voða vel, en hann vill nú soldið láta halda á sér og rugga sér, ekki mikið fyrir að sitja eða liggja einn.

 

littli og Nökkvi

Við erum mikið búin að vera fyrir norðan í sumar hjá afa og ömmu. Fórum meðal annars á ættarmót hjá Trommaraættinni hans afa. Kíktum í smá útilegu í Húsavík í frábæru veðri, þar sem afi og amma voru svo góð að lána okkur A-hýsið sitt. Verslunarmannahelgin á Akureyri var líka mjög skemmtilegt, þar sem Nökkvi fékk að fara í tívolí, leika sér í vatnasafarí á tjaldstæðinu Hömrum í kjarnaskógi. Síðan var farið á útitónleika á sunndagskvöldinu sem lauk með flottri flugeldasýningu.

Semsagt nóg búið að vera að gera í sumar. Nú er 5. Ágúst og styttist í að Nökkvi fari í skólann í 3. Bekk og Brynja Dögg byrji  á leikskóla, en hún byrjar í aðlögun 16.ágúst.

5. August 2011 - 13:53

 
 

Janúar og febrúar 2011

Margt hefur gerst hjá mér á síðustu tveim mánuðum. Ég er orðin mjög dugleg að labba, og hlaupa líka. Mér finnst skemmtilegast að leika mér að bókum. Ég á ágætt safn af bókum sem ég kem með fram í stofu og finnst skemmtilegast ef einhver vill skoða með mér. Þá vil ég sitja á móti mömmu eða pabba  og láta þau skoða með mér.

Ég fór í aukaskoðun og Hjördísi hjúkrunarkonunni minni, sem var með smá áhyggjur af mér því ég var ekki alveg að fylgja staðlaðri kúrfu sem allir krakkar eiga víst að fylgja. En Hjördís var bara nokkuð sátt við mig eftir skoðunina og sagði að ég er bara lítil og nett og fylgi minni eigin kúrfu. Ég er ekkert alltaf voða dugleg að borða, en mér finnst best að fá allvöru mat með sósu, helst vil ég líka láta klappa fyrir mér meðan ég borða. Ég vil helst fá það sama og Mamma, pabbi og Nökkvi eru að borða. Ég elska Rúsínur. Skemmtilegast finnst mér að fá að tína þær sjálf úr litlu rúsínupökkunum.

Ég er komin með mitt eigið herbergi. Þar er dótið mitt og rúmið. Gengur ágætlega að sofa sjálf, en mamma og pabbi þurfa samt ennþá að koma á nóttunni til mín og stinga upp í mig snuðinu, og taka mig upp í til sín um morgunin svo ég geti kúrað með þeim í smá stund áður en þau fara á fætur.

Ég er farin að tala aðeins meira, það skilja mig fáir, en þetta er allt að koma. Ég er líka farinn að syngja, en upphaldslagið mitt er „la la l ala lala la !“.

Pabbi er alltaf að sína mig og monta sig á mér. Vill helst láta mig gera allt sem ég kann í einu. En þetta er það helsta sem ég kann: klappa, sýna hvað ég er stór, sýna hvað ég er sterk, herma eftir bíl (brrrrr) og benda á nebban minn þegar mér er sagt.

Mér finnst líka rosa gaman í sundi, er orðin rosa duglega að vera með kútana mína og busla í lauginni. 

1. March 2011 - 18:45

 
 

12 mánađa

Þá er ég orðin 1. árs gömul. Mamma var í prófum þar til 15. desember og hún var í prófi á afmælisdaginn minn þannig að mamma og pabbi ákváðu að halda upp á afmælið mitt 16. desember. Það var í lagi mín vegna því ég er jú svo lítil. Amma og afi komu frá Akureyri og voru í heimsókn og hjálpuðu til við afmælisveisluna mína.

Þegar mamma var búin í prófum þá var allt sett á fullt bakað og þrifið, amma sá aðallega um það að þrífa því mamma var svo afskaplega þreytt. Það er svo gott að eiga góða ömmu og afa. Amma í Birkihvammi bakaði aðalafmæliskökuna sem var eins og jólatré í laginu, rosalega flott.

Á afmælisveisludaginn þá fór ég í 12 mánaða skoðunina og mældist 8240 gr og 70 cm, hjúkrunarfræðingurinn varð enn og aftur ekki ánægður og sagði að ég ætti að koma aftur eftir 6 vikur í mælingu. Í nóvember var ég með ælupesti og gæti það nú verið skýringin á öllu saman. Ég fékk svo sprautu og stóð mig eins og hetja.

Mamma og pabbi fóru svo með mig heim þar sem ég var í pössun á meðan þau fóru og keyptu afmælisgjöfina mína. Þegar þau komu heim, hjálpaði Nökkvi mér að opna afmælisgjöfina og var það sparkbíll, rosalega flottur með fullt af hljóðum.

Svo byrjaði afmælisveislan, amma og afi í Birkihvammi komu, Margrét og Binni og börn, Svanhvít frænka, Svana frænka og Magga langamma. Ása og Tóti, Bryndís og Bylgja Ýr, Sigga og Sófus. Þetta var góður dagur.

Amma og afi lögðu af stað til Akureyrar seinna um daginn.

Næsti viðburður var á næsta leyti, jólin. Mamma og pabbi voru á fullu að kaupa jólagjafir, við fórum öll fjölskyldan að kaupa jólatré. Nökkvi bróðir var kominn í jólafrí 17. desember.

Við vorum á aðfangadag hjá ömmu og afa í Birkihvammi og áttum góðar stundir saman. Nökkvi veiktist á aðfangadag og var mjög slappur alveg þar til kom að því að opna pakkana, þá virtist sem hann hafi ýtt á takka og hætt að vera veikur í smá stund þar til búið var að opna pakkana.

Mamma og pabbi gáfu Nökkva stóra bílabraut í jólagjöf og hann varð svo ánægður með hana. Þegar heim kom og Nökkvi voða veikur og alveg að sofna sagði hann við pabba, getum við sett saman bílabrautina, en þeir ákváðu að bíða til morguns.

Á jóladag var bílabrautin sett saman svo var farið út í snjóinn mikla sem staldraði stutt við því hann var farinn á annan í jólum. Við fórum svo í Birkihvamm, ég lék mér, Nökkvi lék sér við Daníel frænda og mamma og pabbi spiluðu við Margréti, Svanhvíti, Sigga og afa.

Á annan í jólum og þriðja í jólum slökuðum við vel á.

Svo kom vinnuvika hjá pabba, en hún var stutt því ég pabbi og mamma flugum til Akureyrar á miðvikudeginum og ákváðum að eyða áramótunum þar. Nökkvi stóri bróðir eyddi áramótunum hjá pabba sínum.Þetta var í fyrsta skiptið sem ég fór í flugvél og gekk það mjög vel.

Það var gott að vera á Akureyri, við fórum í sund, mamma og pabbi fóru á skíði, við borðuðum góðan mat.

Á áramótunum fór ég snemma að sofa, en ég vaknaði við sprengjurnar og sá þær, ég var dolfallinn. Ég fór svo ekki að sofa fyrr en um 02::30

Ég byrjaði að labba um jólin og fékk að prófa að borða sjálf, það finnst mér gaman.

Fleira var það nú ekki í bili.

16. January 2011 - 16:22

 
 

11 mánađa

Þá er bara mánuður í það að ég verði 1 árs gömul, það er nú ekki slæmt. Nú er nóvember og pabbi í prófum og mamma á fullu að skrifa ritgerðir.

Allt gengur sinn vanagang, Nökkvi fer í skólann og frjálsar, pabbi fer í skólann og lærir og lærir. Mamma lærir meðan ég sef.

Allir eru voðalega duglegir í Tröllakór 2.

Þar til næst

16. January 2011 - 16:13