

Jæja þá er minns orðinn 4 mánaða, Sigurður Emil. Hann stækkar og stækkar. Mamman á enga mjólk lengur þannig að Sigurður Emil fær bara pela mjólk en líkar miklu betur. Hann fékk graut að borða um miðjan október og er mjög ánægður með það og er farinn að borða mjög vel á kvöldin af grautnum.
Sigurður Emil er orðin duglegur að sitja í bumbó stólnum sínum og unir sér einnig í leikgræjunni miklu sem stendur á gólfinu okkar.
Brynja Dögg stækkar líka, hún er voðalega dugleg í leikskólanum og líkar vel. Pabbinn fer alltaf með hana og mamman og Sigurður Emil sækja hana.
Nökkvi er duglegur í skólanum og fimleikum. Hann átti afmæli 19. október og bauð hann öllum strákunum í ammælispartý miðvikudaginn 19. október. Það vildi svo heppilega til að mamman var með ælupesti þann dag, með miklum erfiðleikum þá tókst henni samt sem áður að búa til þessa fínu hrískransaköku, Einar pabbi bjargaði svo málunum og bakaði ammælistertuna og gerði pizzur. Siggi, Svanhvítar kom svo og hjálpaði til í afmælinu. Þeir eru orðnir það stórir strákar að þetta var frekar auðvelt í þetta sinnið miðað við síðustu skiptin. Þeir léku sér í smá stund, svo var horft á mynd, borðuð pizza, haldið áfram að horfa á mynd, leikið smá og svo kaka. Þá var afmælið búið. Nökkvi hélt einnig afmæli fyrir fjölskylduna á sunnudeginum, en þá voru allir búnir að jafna sig. Boðið var upp á kökur frá skírninni hans Sigurðar Emils og smökkuðust þær mjög vel.
Brynja Dögg er orðin klár í að fara kollhnís. Kannski verður hún upprennandi fimleikastjarna, hver veit.
Keypt var nýtt rúm fyrir Brynju Dögg því hún var farin að príla upp úr rúminu sínu, Sigurður Emil fékk þá rimlarúmið. Allir una sér vel í nýju rúmunum. Nökkvi fékk einnig nýtt rúm í lok september og líkar mjög vel.
Allir eru mjög ánægðir á þessu heimili.
Skrifa athugasemd