Nökkvi,Brynja Dögg og Sigurður Emil
Nökkvi,Brynja Dögg og Sigurður Emil
 
 
 

3 mánađa prins

Þá er Sigurður Emil orðinn 3 mánaða. Stór drengur. Hann er búinn í 3 mánaða skoðun og fékk loksins góða skoðun, hann mældist 5,7 kg og 61 cm. Hjördís hjúkka var mjög ánægt með okkur. Sigurður Emil er mjög glaðlindur strákur, alltaf brosandi. 

Hann er orðinn það stór að mamman er ekki með nógu mikla mjólk þannig að drengurinn er alfarið kominn á pela nema á næturnar og allir eru ánægðir með það. Hann er farinn að vera duglegur að liggja á leikteppinu sínu, sefur á morgnanna mömmunni til mikillar gleði. Einnig er hann duglegur að sofa á næturnar þannig að foreldrarnir geta ekki kvartað.

Brynja er góð við litla bróa, hún setur upp í hann snuðið ef hann skælir og klappar honum á höfuðið, nokkra  morgna hefur hún viljað kyssa hann bless þegar skvísan fer á leikskólann. Brynju Dögg líður vel á leikskólanum, hún er að vísu mjög þreytt eftir daginn og það hefur komið fyrir að hún einfaldlega sofnar heima af þreytu rétt fyrir kvöldmat. Það hefur orðið mikill þroskamunur á henni síðan hún byrjaði á leikskólanum, hún er farin að tala meira og einnig er hún farin að eigna sér hluti og heyrist því mikið á þessu heimili "ég á".

Nökkva líður vel í skólanum, hann er duglegur að læra í skólanum sem og heima. Lesturinn er kominn á gott skrið.

Mömmu og pabba gengur vel í því sem þau eru að gera, vinnulega séð og skólalega séð.

30. September 2011 - 21:24



Athugasemdir

Skrifa athugasemd


Nafn


Texti