

Jæja, þá er litli drengurinn búinn að fá nafn, Sigurður Emil. Hann er skírður í höfuðið á afa sínum Sigurði og langaafa sínum, afa, afa á Akureyri Jón Emil. Skírnin gekk vel, hún fór fram heima í Tröllakór þann 27. ágúst. Sigurður Emil var skírður upp úr skírnarskálinni sem frænka Svana bjó til fyrir skírnina hennar Brynju Daggar. Hann var í skírnarkjólnum sem amma á Akureyri saumaði þegar hún var í húsmæðrarskólanum á Akureyri, hún var 16, 17 ára þegar hún bjó hann til. Mamman og Nökkvi voru bæði skírð í þessum kjól. Presturinn var hress og skemmtilegur og allt fór vel framm. Mamman og ömmurnar báðar voru duglegar að baka fyrir skírnina og var mikið af afgang eftir.
Nú Brynja byrjuð á fullu á leikskólanum Dal. Pabbi fer alltaf með hana á leikskólann og mamma sækir. Hún er ekkert afskaplega glöð að fera skilin eftir og skælir smá en hún skælir í smá stund svo fer hún að leika sér. Hún sefur vel og borðar vel. Og er dugleg að leika sér.
Nökkvi er byrjaður í skólanum, hann er kominn í 3 bekk og orðinn stór strákur. Hann fékk nýja skólatösku fyrir skólann og er hann svakalega ánægður með hana. Honum fer mjög fram í lestri og reikningi og finnst honum mjög gaman að reikna.
Mamman er byrjuð líka í skólanum og samkvæmt námsáætlunum verður mikið að gera þessa önnina, einungis 5 ritgerðir að skrifa, 1 kynning og 2 hópaverkefni. En hún verður bara mjöög dugleg.
Pabbi vinnur og vinnur og þess á milli fer hann í ræktina til að rækta líkamann og ja sálina líka. Mamman fer líka af og til.
Þannig að það má segja að rútínan sé byrjuð á þessu heimili.
Þar til næst
Skrifa athugasemd