

Þá er litli prinsinn orðinn 7 vikna. Við fórum í skoðun og hann mældist 4888 kg og 55 cm. Hjúkrunarkonan hún Hjördís var á nægð með það og nú er það bara að halda áfram að mjólka fyrir mig og drekka fyrir hann. Hann er farinn að horfa mikið í kringum sig, brosa og hjala. Við erum nú komin heim úr ferðalaginu okkar og nú tekur við biðin eftir að skólarnir hjá okkur byrja. Brynja byrjar þann 16. í aðlögun á leikskólanum Dal, Nökkvi byrjar 22. annan ágúst og mamman byrjar 29. ágúst. Öll hlökkum við til.
Skrifa athugasemd