Nökkvi,Brynja Dögg og Sigurður Emil
Nökkvi,Brynja Dögg og Sigurður Emil
 
 
 

Sumarið 2011

Jæja, loksins komið að því að skrifa niður smá færslu um stórfjölskylduna á Tröllakór 2. Mikið að gera á stóru heimili og lítil tími fyrir skrif.

Brynja Dögg er orðin mjög dugleg að tjá sig, og reyna að fá  sínu framgengt. Hún er voða hrifin af dýrabókum og kann að benda í bókinni og þekkir helstu húsdýrin, mest er hún þó hrifin af bíbí. Hún notar mikið orðið „gulla“ sem þýðir m.a annars að hún sé þyrst og langar í mjólk, einnig notar hún það við ýmis önnur tækifæri, óþarfi að vera að flækja þetta of mikið. Brynja er líka orðin duglegri að borða. Hún borðar oft hafragraut á morgnanna. Finnst æðislegt að fá franskar á kvöldin, en í mestu uppáhaldi eru gúrkur, tómatar, paprika,  ólívur og fetaostur. Svo vill hún hafa matinn sinn solidið „spyci“, er lítið fyrir  ókryddaðan og bragðlausan mat.


Brynja að borða

Brynja er orðin dugleg að sofa á nóttinni, fer yfirleitt upp í rúm kl: 20.30 og vaknar milli átta og níu á morgnanna. Maður sér yfirleitt hvenær Brynja er þreytt þar sem hún hefur þann ávana að vefja upp á hárið á sér með hendinni þegar henni syfjar. Hún er líka er mjög hrifin af bróðir sínum honum “NA Na!“ eins og hún kallar hann. Vill helst príla upp í kojuna hans á morgnana og vekja hann. Nökkvi er líka mjög duglegur stóri bróðir og finnst mjög gaman að leika við systur sína.  

 

Brymja og Nökkvi að leika

Í byrjun sumars var hafin leit af stærri bíl, þar sem styttist óðum í að nýi fjölskyldumeðlimurinn fær að koma í heiminn. Fest var kaup á 7. manna Suzuki Grand Vitara, þar sem ekki veitir af nægu plássi fyrir stóra fjölskyldu.

Það var svo 18. Júní.  Að litli prinsinn fæddist. Hann var 16.merkur og 51 cm, svaka stór og flottur strákur. Fólki finnst hann voða líkur pabba sínum, sem hann er sko hæst ánægður og montinn að fá að heyra.  Allt hefur gengið voða vel, en hann vill nú soldið láta halda á sér og rugga sér, ekki mikið fyrir að sitja eða liggja einn.

 

littli og Nökkvi

Við erum mikið búin að vera fyrir norðan í sumar hjá afa og ömmu. Fórum meðal annars á ættarmót hjá Trommaraættinni hans afa. Kíktum í smá útilegu í Húsavík í frábæru veðri, þar sem afi og amma voru svo góð að lána okkur A-hýsið sitt. Verslunarmannahelgin á Akureyri var líka mjög skemmtilegt, þar sem Nökkvi fékk að fara í tívolí, leika sér í vatnasafarí á tjaldstæðinu Hömrum í kjarnaskógi. Síðan var farið á útitónleika á sunndagskvöldinu sem lauk með flottri flugeldasýningu.

Semsagt nóg búið að vera að gera í sumar. Nú er 5. Ágúst og styttist í að Nökkvi fari í skólann í 3. Bekk og Brynja Dögg byrji  á leikskóla, en hún byrjar í aðlögun 16.ágúst.

5. August 2011 - 13:53



Athugasemdir

Skrifa athugasemd


Nafn


Texti