Nökkvi,Brynja Dögg og Sigurður Emil
Nökkvi,Brynja Dögg og Sigurður Emil
 
 
 

Janúar og febrúar 2011

Margt hefur gerst hjá mér á síðustu tveim mánuðum. Ég er orðin mjög dugleg að labba, og hlaupa líka. Mér finnst skemmtilegast að leika mér að bókum. Ég á ágætt safn af bókum sem ég kem með fram í stofu og finnst skemmtilegast ef einhver vill skoða með mér. Þá vil ég sitja á móti mömmu eða pabba  og láta þau skoða með mér.

Ég fór í aukaskoðun og Hjördísi hjúkrunarkonunni minni, sem var með smá áhyggjur af mér því ég var ekki alveg að fylgja staðlaðri kúrfu sem allir krakkar eiga víst að fylgja. En Hjördís var bara nokkuð sátt við mig eftir skoðunina og sagði að ég er bara lítil og nett og fylgi minni eigin kúrfu. Ég er ekkert alltaf voða dugleg að borða, en mér finnst best að fá allvöru mat með sósu, helst vil ég líka láta klappa fyrir mér meðan ég borða. Ég vil helst fá það sama og Mamma, pabbi og Nökkvi eru að borða. Ég elska Rúsínur. Skemmtilegast finnst mér að fá að tína þær sjálf úr litlu rúsínupökkunum.

Ég er komin með mitt eigið herbergi. Þar er dótið mitt og rúmið. Gengur ágætlega að sofa sjálf, en mamma og pabbi þurfa samt ennþá að koma á nóttunni til mín og stinga upp í mig snuðinu, og taka mig upp í til sín um morgunin svo ég geti kúrað með þeim í smá stund áður en þau fara á fætur.

Ég er farin að tala aðeins meira, það skilja mig fáir, en þetta er allt að koma. Ég er líka farinn að syngja, en upphaldslagið mitt er „la la l ala lala la !“.

Pabbi er alltaf að sína mig og monta sig á mér. Vill helst láta mig gera allt sem ég kann í einu. En þetta er það helsta sem ég kann: klappa, sýna hvað ég er stór, sýna hvað ég er sterk, herma eftir bíl (brrrrr) og benda á nebban minn þegar mér er sagt.

Mér finnst líka rosa gaman í sundi, er orðin rosa duglega að vera með kútana mína og busla í lauginni. 

1. March 2011 - 18:45



Athugasemdir

amman á Akureyri

Þú ert aldeilis dugleg ljúfan mín. Knús og kossar til þín og Nökkva líka.

23. March 2011

Nafn


Texti