

Þá er ég orðin 1. árs gömul. Mamma var í prófum þar til 15. desember og hún var í prófi á afmælisdaginn minn þannig að mamma og pabbi ákváðu að halda upp á afmælið mitt 16. desember. Það var í lagi mín vegna því ég er jú svo lítil. Amma og afi komu frá Akureyri og voru í heimsókn og hjálpuðu til við afmælisveisluna mína.
Þegar mamma var búin í prófum þá var allt sett á fullt bakað og þrifið, amma sá aðallega um það að þrífa því mamma var svo afskaplega þreytt. Það er svo gott að eiga góða ömmu og afa. Amma í Birkihvammi bakaði aðalafmæliskökuna sem var eins og jólatré í laginu, rosalega flott.
Á afmælisveisludaginn þá fór ég í 12 mánaða skoðunina og mældist 8240 gr og 70 cm, hjúkrunarfræðingurinn varð enn og aftur ekki ánægður og sagði að ég ætti að koma aftur eftir 6 vikur í mælingu. Í nóvember var ég með ælupesti og gæti það nú verið skýringin á öllu saman. Ég fékk svo sprautu og stóð mig eins og hetja.
Mamma og pabbi fóru svo með mig heim þar sem ég var í pössun á meðan þau fóru og keyptu afmælisgjöfina mína. Þegar þau komu heim, hjálpaði Nökkvi mér að opna afmælisgjöfina og var það sparkbíll, rosalega flottur með fullt af hljóðum.
Svo byrjaði afmælisveislan, amma og afi í Birkihvammi komu, Margrét og Binni og börn, Svanhvít frænka, Svana frænka og Magga langamma. Ása og Tóti, Bryndís og Bylgja Ýr, Sigga og Sófus. Þetta var góður dagur.
Amma og afi lögðu af stað til Akureyrar seinna um daginn.
Næsti viðburður var á næsta leyti, jólin. Mamma og pabbi voru á fullu að kaupa jólagjafir, við fórum öll fjölskyldan að kaupa jólatré. Nökkvi bróðir var kominn í jólafrí 17. desember.
Við vorum á aðfangadag hjá ömmu og afa í Birkihvammi og áttum góðar stundir saman. Nökkvi veiktist á aðfangadag og var mjög slappur alveg þar til kom að því að opna pakkana, þá virtist sem hann hafi ýtt á takka og hætt að vera veikur í smá stund þar til búið var að opna pakkana.
Mamma og pabbi gáfu Nökkva stóra bílabraut í jólagjöf og hann varð svo ánægður með hana. Þegar heim kom og Nökkvi voða veikur og alveg að sofna sagði hann við pabba, getum við sett saman bílabrautina, en þeir ákváðu að bíða til morguns.
Á jóladag var bílabrautin sett saman svo var farið út í snjóinn mikla sem staldraði stutt við því hann var farinn á annan í jólum. Við fórum svo í Birkihvamm, ég lék mér, Nökkvi lék sér við Daníel frænda og mamma og pabbi spiluðu við Margréti, Svanhvíti, Sigga og afa.
Á annan í jólum og þriðja í jólum slökuðum við vel á.
Svo kom vinnuvika hjá pabba, en hún var stutt því ég pabbi og mamma flugum til Akureyrar á miðvikudeginum og ákváðum að eyða áramótunum þar. Nökkvi stóri bróðir eyddi áramótunum hjá pabba sínum.Þetta var í fyrsta skiptið sem ég fór í flugvél og gekk það mjög vel.
Það var gott að vera á Akureyri, við fórum í sund, mamma og pabbi fóru á skíði, við borðuðum góðan mat.
Á áramótunum fór ég snemma að sofa, en ég vaknaði við sprengjurnar og sá þær, ég var dolfallinn. Ég fór svo ekki að sofa fyrr en um 02::30
Ég byrjaði að labba um jólin og fékk að prófa að borða sjálf, það finnst mér gaman.
Fleira var það nú ekki í bili.
Skrifa athugasemd