

Sæl elskurnar!
Er litla frænka orðin rauðhærð? Var að skoða nýju myndirnar og sé ekki betur ( en ég er nottlega farin að sjón og heyrn).
Hlakka til að sjá ykkur öll í desember en væri alveg til í að heyra í þér í síma Þórhildur mín við tækifæri.
Kærar kveðjur frá mér og Ragnheiði.
Ég á að vera að læra en í staðinn skoðaði ég allar myndirnar hér á síðunni.. það tók sinn tíma! Tók eftir að ég er alltaf í sama bolnum á öllum myndunum.. mun ekki nota hann í Brighton:) oh hvað ég er farin að hlakka til að koma til ykkar.. 25 dagar til stefnu:)
smá kíkk og kvitt;)
Sjáumst um jólin sætu
Kv;ebba og familya
HAHA krúttið hrítur svona..
Haha æðislegt nýja myndbandið.. og gott að EJ finnist þú líka soldið fyndinn:) Gaman að sjá hana hlægjandi svona til tilbreytingar.. þar sem hún er alltaf svo alvarleg þegar hún er að spjalla við mig á skype:)
Hæ elsku Edda Júlíana mín, vá hvað ég sakna ykkar óendanlega mikið!! Get ekki beðið eftir að þið komið heim. Það verður yndislegt að knúsa þig loksins í desember EJ. Verðum að heyrast í vikunni Þórhildur mín.
Hafið það gott elskurnar og ég bið að heilsa öllum.
Helga Björg
ooo Texas smákökur! Þín verður sárt saknað fyrir jólin Þórhildur mín, búin að sjá manni fyrir texas smákökum síðustu ár, ætli maður reyni ekki að demba sér í baksturinn sjálfur ;)
Þetta smellvara myndband er náttúrulega bara fyndið!! hún þvílíkt einbeitt að horfa á sjónvarpið:)
Elsku þið, hún er nú meira sólskinið hún Edda Júlíana og er orðin svo stór og mannaleg =) Langar helst að klípa í bollukinnarnar i gegnum tölvuna. Gaman að geta fylgst með ykkur á nyja staðnum, tad fer greinilega vel um ykkur. Risaknús frá Stokkhólmi.
Gaman að skoða myndir af sætu pæjunni sem virðist stækka og mannast á ógnarhraða :) Bestu kveðjur
Alltaf gaman að skoða myndirnar af ykkur sæta fjölskylda!Saknaðarkveðjur:)
Hæhæ
Það er naumast sem litla skottan er að flýta sér að verða fullorðin, bara farin að velta sér og læti! :) Litla sætabína fær nóg að súpa hjá mömmu sinni sé ég, alveg yndisleg beautybolla ! ;) Vonandi hafið þið það gott þarna úti og við hlökkum til að hitta ykkur um jólin, tökum kannski svona árlegt jóla-spilakvöld... ;)
Söknum ykkar...
Elín Ragna & co
Gaman að skoða myndirnar af þér Edda þú ert svo mikil skonsa Gott að allt gegnur vel hjá ykkur
Biðjum að heilsa gamla settinu
Kveðja
Eyrún Gígja, Ronja og Alís
Ég held að þið Jói þurfið að fara að skipta um hlutverk í þessum baðferðum Eddu Júlíönu... náttúrulega gengur ekki að Jói fái vatn í eyrun í öllum þessum hamagangi!!
Gaman að sjá hvað allt gengur vel;)
Hafið það gott
Knús og kossar úr snjónum
Kvitti kvitt :) gaman að sjá nýjar myndir og gott að þið hafið það notalegt í nýju íbúðinni. EJ er nú meiri krúttan alltaf, var að fara í gegnum öll myndböndin og mig langaði bara að panta flug til ykkar núna og fá að knúsa hana (já og ykkur kannski líka, hihi) Vonandi að við getum kíkt eitthvað eftir jólin :*
knús og kram frá familíunni í aarhus
Greinilegt að það fer vel um ykkur í nýju íbúðinni :)
Hafið það sem allra best :*
Kv. Íris, Gunni og Kristín Birta
hæhæ vildi bara kvitta fyrir innlitið.
bestu kveðjur Klara,Hlynur og Þórunn Nadía
Sæl Þórhildur. Ég fann linkinn inná síðuna hennar Eddu Júlíönu inná síðunni hans Tómasar Jökuls og ég má til með að óska ykkur til hamingju með frumburðinn :) Hún er nú meiri krúttboltinn :) Gangi ykkur vel með allt saman.
Kveðja,
Lilja Dögg
jeii gaman að sjá myndbönd! Litla skottan svo fyndin að hlæja! og pabbinn heldur betur sprækur í myndbandinu morgunfjör með pabba:)haha!
Kvitt kvitt. Vonum að þið hafið það gott!!
Kv.Guðrún og Aníta
En gaman að sjá nýju myndirnar af "litlu" frænku. Ég tek undir með Rósu - hún er nú ansi lík mömmu sinni sú stutta!
Gott að vita að allt gengur vel hjá ykkur elskurnar.
Æðislegt að sjá nýjar myndir frá ykkur. Edda er orðin svo stór og virðist líkjast móður sinni með hverjum deginum...sorry Jói. Við Björn vorum að vonast eftir að heyra í ykkur á skype og ætluðum að fá að sjá Eddu Júlíönu í tölvunni!! Verðum bara að gera það fljótlega;0) Knús til ykkar allra Rósa Mjöll og Björn Orri
Fin nýja íbúðin og Edda Júlíana meira krúttið svona brosandi! Jói ánægður með nýja sjónvarpið sem hann fékk loks:) Sigga sagðist halda að Edda Júlíana væri að fá tönn.Hún ætlar að ná Emilíu í þyngd og tannfjölda..nú verður Emilía að taka sig á..hihii! Annars risaknús til ykkar.
Það er gott að litla snúllan er hress með nýju heimkynnin, svakalega á hún sætt bros :) Íbúðin virðist rosa fín. Ég vona bara að þið hafið það sem best þarna úti. Bestu kveðjur
Hæ hæ! Vonandi hafið þið það sæmilegt þarna úti meðan kreppan riður yfir á Íslandi... Ætli maður verði ekki að fresta því að heimsækja ykkur þar til eftir áramót... :(
Hlakka til að sjá nýjar myndir af Eddu Júlíönu
Knús Nanna Ýr
Så fine bilder av engelen.
Fint å se at dere har det bra.
Johannes
Gaman að skoða myndirnar og fylgjast með ykkur. Vonandi gengur allt vel í útlandinu. Bestu kveðjur til ykkar allra.
Oh hún er svo mikil dúlla! Getið þið ekki fengið ódýrt skrepp til dk, hehe, svo maður geti knúsað litlu frænku, nóg pláss hér, knús og gangi ykkur rosa vel úti, Þöll