

Daníel er mjög hrifinn af Línu langsokk og þar sem hann hefur ekki hár í tvær fléttur, þá setur hann eyrnapinna í eyrun á sér og segist vera Lína Lnagsokkur
júní 2013
---ooo0ooo---
Erla hafði tekið mjög fínt til í herberginu sínu og fór svo til Ólafsfjarðar í heimsókn til ömmu og afa og var ekki kát þegar hún kom heim og sá að það var búið að drasla til. Ég sagði Daníel ða hjálpa mér við tiltektina enda hefði hann draslað til, en hann þóttist alsaklaus svo e´g spurði hver hefði þá draslað til fyrst það var ekki hann
Daníel: Haukur gerði þetta
Haukur er á deildinni hans á leikskólanujm og hefur aldrei komið í heimsókn, s.s. hinn fullkomni blóraböggull að mati Daníels ;) júní 2013
---ooo0ooo---
Ég: Daníel farðu í föt
Daníel: Nei! Ég er Tarzan
Daníel fannst þetta fullkomin afsökun fyrir því að vera bara á brókinni, en þannig virðist hann kunna best við sig, enda var hann alsæll þegar við fórum til Spánar og gat verið á sundbrók allan daginn, átti þa ðmeira segja til ða svipta sér úr bolnum þegar við fórum út að borða á kvöldin og vera bara á bumbunni - júní - júlí 2013
---ooo0ooo---
Daníel: má ég fá meira brauð
Ég: já gjörðu svo vel, það er meira á eldhúsborðinu
Daníel: Nei ég get ekki
Ég: Jú þú getur það víst það er bara á borðinu
Daníel: Nei ég er bara pínulítill!
Strax búinn að uppgötva kosti þess að vera pínulítill, því þá fær maður margfalt betri þjónustu ;)
ágúst 2013