

![]()
Við erum 4 í fjölskyldunni okkar,
mamma, pabbi, Erla og ég.
Mamma
Heitir Júlí Ósk Antonsdóttir og er fædd árið 1983. Hún er elst af 4 systrum og er fædd og uppalin á Ólafsfirði, en fór til Akureyrar í Menntaskólann þegar hún var 16 ára og bjó þar á veturnar, en á Ólafsfirði á sumrin. Þegar hún kláraði Menntaskólann 2003 keypti hún sér íbúð á Akureyri og fór í Háskólann þar og lærði lögfræði . Hún útskrifaðist svo með master í lögfræði 14. júní 2008. Hún vinnur sem löglærður fulltrúi hjá sýslumanninum á Selfossi, en er´núna í fæðingarorlofi og er að vonast eftir að fá vinnu á Akureyri.
Pabbi
Heitir Hjörleifur Gauti Hjörleifsson og er fæddur árið 1980. Hann á 2 eldri bræður og eina yngri systur og er fæddur og uppalinn á Ólafsfirði. Þegar hann kláraði gagnfræðaskólann fór hann á sjóinn og var á sjó næstu 3 árin. Hann ákvað svo að hætta á sjónum og mennta sig og fór þá í Verkmenntaskólann að læra Tölvunarfræði og var því á Akureyri á veturna og á sjónum á sumrin. Hann kláraði tölvunarfræðina vorið 2004 og fór svo í Háskólann um haustið til að læra meiri Tölvunarfræði, en hætti svo þar sem þetta var ekki alveg fyrir hann og fór þá aftur á vinnumarkaðinn. Hann fór svo aftur á sjóinn og var á sjó þar til litla prinsessan hans fæddist en þá hætti hann á sjónum til að geta verið meira með litlu dúllunni sinni og skellti sér svo aftur á skólabekk um haustið og útskrifaðist sem rafvirki í desember 2010 og vinnur núna hjá Rafmönnum.
Erla Antonía
Stóra systir mín heitir Erla Antonía og er fædd á páskadag 2007, eða nánar tiltekið þann 8. apríl. Hún er ótrúlega góð stóra systir og er rosalega dugleg að leika við mig og eiginlega bara gera allt fyrir mig. Hún er á leikskólanum Iðavöllum,
Ég
Heiti Daníel Gauti Hjörleifsson og er fæddur 27. ágúst 2010. Ég er ótrúlega rólegur lítill mömmustrákur, en mér finnst langbest að vera hjá mömmu minni og finnst sko miklu meira spennandi að sitja við hliðin á henni í sófanum og fylgjast með þvi sem hún er að gera, heldur en að leika mér á gólfinu. Ég er rosalega brosmildur og kátur, en það eru ekki margir sem fá að njóta þess, þar sme ég vil helst bara vera hjá mömmu, en þar líður mér sko best, enda brosi ég og hlæ af gleði þegar hún kemur og tekur mig upp, mamma er sko best.