

Til hamingju Egill Kári, með fyrsta afmælið.
Kveðja frá Mývó
Elsku Egill Kári,
til hamingju með fyrsta afmælið þitt.
Ástarkveðja frá ömmu og afa Logafold
Elsku Egill Kári,
til hamingju með 1 árs afmælið!
Þinn frændi,
Baldvin Snær
p.s. elsku Egill - til hamingju með fyrsta afmælið þitt. Þóra og Völli
Hæ frændur! Gaman að hitta ykkur í dag.
Knús,
Baldvin
Hæ, hæ bara að kvitta fyrir innlitið. Ekkert smá flott afmæliskakan hjá herranum(fékk pabbinn svona fína köku líka). Innilegar afmæliskveðjur til pabba. kveðja frrá Mývó
Alltaf gaman að líta hér inn! Innilega til hamingju með drenginn, þeir eru báðir alger yndi :)
Hlakka mikið til að hitta ykkur!!
Bestu kveðjur úr Mosó,
Helga og Kristján Hrafn
til hamingju með afmælin ykkar allir sætu strákar (líka pabbi)
Það er nóg að gera hjá mömmslunni þennan mánuðinn :)
Rosa gaman að hitta hana í skólanum í gær, just like the good old time :) Hlakka til að hittast bráðum
Knús
Til hamingju með afmælið þitt kúturinn okkar,
kossar og knús frá ömmu og afa Logafold
Hæ Dagur Logi og innilegar hamingju óskir með daginn. Bestu kveðjur til ykkar allra frá Mývatni.Koss og knús
Elsku Dagur Logi, innilega til hamingju afmælið, kveðja frá litlu famelíunni
Til hamingju með daginn Dagur minn.
Það er ekkert smá flott kaka sem bíður þín hérna.
Kiss og knús,
Kjallaradýrin
Hæ, Dagur!! Til hamingju með daginn, þú varst að fæðast og ert strax orðinn 7 ára!!!
Afmæliskveðjur úr Selvaðinu
Bjarni, Helena, Aníta Rós og Lilja Rós
Hæ elskurnar.. þvílíkir dúllurassar þessir drengir - Arna mín, léstu klóna hann Sigga þinn?? Þeir eru alveg eins og pabbi sinn, vonum bara að þeir séu alveg eins og mamma sín í sér... mwúuahahahhaha
Til hamingju með flottu strákana ykkar, ég hlakka til að sjá mömmsluna í skólanum. Óska Þóru frænku líka til hamingju með orminn sinn, vonandi gengur allt vel.
Knús, IBB
Hæ frændur! Er farinn að laga degið í afmæliskökuna ógurlegu sem verður enn flottari en í fyrra. Þá var ég heldur ekki með og gat lítið hjálpað til. Annars er allt gott að frétta af mér nema að ég þarf að sofa á vinstri hliðinni þessa dagana svo ég verði ekki uppnefndur Baldvin SKAKKIHAUS þegar ég er orðinn stór.... eða stærri!
Hae hae elskurar bara ad lata ykkur vita ad to madur fari langt langt i burtu ta man madur eftir ad kikja a adal lidid... Vid hofum tad agalega gott her i hitanum algjor brilli vid hingad eh tiima oll saman ekki spurning og husid er aedi kysskyss a ykkur og eg skora a Egil Kara ad vera farinn ad ganga tegar vid komum aftur!! Og arna muna VC sendinguna lattu mig vita tegar tu ert buin ad panta.
Hæ elsku Arna og krúttlega fjölskylda.
Mikið er gaman að geta skoðað myndir af ykkur! Ég mun verða dugleg að líta hér inn :)
Mínar bestu kveðjur til ykkar,
Helga K.
Mikið var nú gaman að hitta strákana aftur eftir að snúið var til baka frá Lanzarote, nú þegar amma heldur út til Indlands og Nepal verður maður duglegur að koma og kíkja á ykkur öll og kannski plata pabba með í golf...
Sælir sætu bræður. Bara að kvitta fyrir innlitið...
Mamman á þessu heimilis sér að hún þarf að skella sér á hlaupabrettið!!! Vissi það svosem fyrir en fékk það staðfest svart á hvítu í ágúst myndaalbúminu, ha, ha,...
kveðja,
skvísurnar úr Selvaðinu
Ekki leiðinlegt að kíkja á ykkur milli stunda á löngum vinnudegi.Kiss og knús og knús og kiss til ykkar beggja.Kveðja amma.
Hæ, hæ. Varð að kvitta fyrir innlitið. Kíkti loksins og það var rétt hjá ykkur, fullt af myndum. kossar og knús frá Mývatni
Hæþið!!! alltaf sami myndarskapurinn á myndavélinni!! Ekki að furða að Dassi fussaði yfir matnum ojj hver býður barninu sínu upp á sporð og haus.... grunar að þetta hafi verið uppstilling eða ég vona það allavega drengjanna vegna... og eitt í viðbót það er agalega gaman að lesa lýsingarnar með myndunum maður er svo mikið inni greinilega snilli þar á ferð!!
Hæ, sætu strákar. Mikið ofsalega eru nú múttan og pabbinn dugleg á myndavélinni :) enda ekki leiðinlegt myndefni þarna á ferð.
Takk fyrir síðast og hittumst sem fyrst aftur
kveðja,
Systurnar í Selvaðinu
Blezzaðir frændur. Haldiði að maður sé ekki svo bráðþroska að kunna orðið að skrifa og lesa og steppa...
Mér finnst þið ekkert smá skemmtilegir og svo er ég bara töff og segi pís!!!
Knús,
Baldvin Snær......... ofur-mús!!!
Þið eruð ekkert smá úber dugleg á myndavélinni nánast alltaf nýjar myndir þegar maður kíkir... fallega fólk sé að það er ein pínu spes af húsbóndanum við eldhúsborðið mæli með því að annaðhvort fari hann úr að ofan eða hneppi skyrtunni vel niður næst við þessa iðju sína:) hehehe
En annars Kyss á ykkur öll Signý svona líka agalegur húmoristi!!
Alltaf sætastir báðir tveir.
Elsku sætu strákarnir mínir,, mikið var nú gaman að heimsækja ykkur í bústaðinn á Flúðum og hitta svo langömmu Svövu.
Koss og knús frá ömmu Ólöfu
Hæ elskurnar leiðinlegt að maður hafi ekki getað gefið sér tíma til að kíkja á ykkur í bústaðinn!! Vonandi að við getum bætt úr því í næstu viku í Öndverðarnesinu:) Vonandi að maturinn hafi verið góður sá að Ásrún og Ástþór hafa mætt með sjálfdauðarvegarollur í paprigano frá kjarnafæði vona að grillið hafi verið í góðu standi eftir það:)
Spurning um að hætta hér og kíkja kannski bara í heimsókn á ykkur í dag vöfflur og kósýheit í rigningunni vá ég hlakka til en enginn pressa samt:)
Kyss kyss Signý
Hæ hæ sætu strákar. Rosalega eruð þið flottir bræður og búnir að fá svona sætan og fínan lítinn frænda. Endilega kyssið litla frænda frá mér og óskið Þóru frænku til hamingju.
Knús og kossar,
Andrea
Hæhæ elskurnar.
Talaði við pabbann í morgunn og hann sagði mér að það væru komnar inn myndir af litla frænda hann er agalega fallegur enda ekki langt að sækja það:) Innilega til hamingju með hann, hélt svo áfram að skoða myndir mér finnst myndirnar af mér líka svona agaaaalega fínar:)
Kyss kyss Signý
Mikið voru þetta fallegar myndir úr fallegu sveitinni okkar, þið hafið greinilega skemmt ykkur vel:)