

Vá ekki smá sæt ..datt alveg inn á þessa líka flottu síðu ;) algjör gullmoli .;) langaði bara að kvitta fyrir mig.
kv Guðrún Karls (var einu sinni að spila körfu með mömmu þinni í keflavík..
Vá ekkert smá sæt :) enda á hún nú ekki langt að sækja það :). Vonandi sjáumst við aftur í búðinni fljótlega,
Bestu kveðjur,
Kata
Hæ,hæ litla, sæta, ljóshærða stelpa :)
Þú ert alveg rosalega flott klippt. Honum pabba þínum er greinilega margt til lista lagt. Mjög flott !
Hlakka til að sjá ykkur öll.
Stórt knús frá Kollu ömmu
Hæ hó falleró
Nú erum við farin að telja niður í heimsóknina, bara 16 dagar þangað til við verðum nágrannar á Laufásveginum í nokkra daga! Vííí það verður nú gaman, sundferðir, grillmatur og pottapartý:D Hlökkum mikið til.
Familían í Furugerðinu
Alltaf svo gaman að skoða myndir af þér sæta krús :) Þú bara stækkar og stækkar. Knús og kossar :)
Hæhæ þú ert ekkert smá fín og sæt, alltaf gaman að skoða myndir af þér :) Ég læt síðbúnar afmæliskveðjur fylgja með til mömmu þinnar :) Lofa að gleyma þvi aldrei aftur ;)
Kv, Guðbjörg
Alltaf gaman að kíkja á þig elsku frænka, og innilega til hamingju með afmælisdaginn þinn Alda mín. Vonandi áttu góðann dag:)
Til hamingju með litla frændann okkar líka:)
Kveðjur úr Reykjanesbænum
Sigurborg og co.
hæ hæ svakalega ertu myndarleg skvísa : ) við fundum síðuna ykkar fyrir tilviljun en mamma mín og mamma þín voru saman í KHÍ og meira að segja pabbi minn var að vinna með pabba þínum fyrir nokkrum árum svona er heimurinn lítill : ) Skilaðu kveðju til mömmu þinnar. Kveðja Sóley og Sindri Snær
Roslega hefuru stækkað sæta mín.
Vildi bara kvitta fyrir innlitið..
Æ svo fínar myndir! Uppáhaldið mitt er þegar þú ert að borða skóinn, algjör kjánalingur :) Risastórt knús til ykkar allra! Luv Glóa
Hæ Dagný Kara
Gaman að sjá ykkur í tölvunni. Mér finnst gaman að leika við Dagnýju.
Kossaknús
Eyrún Alda
Halló halló Stykkishólmsfamilía:D
Bara komið fullt af nýjum myndum af litlu sætu frænkunni:D Rosa gaman að skoða þær allar. Hlökkum til að sjá ykkur um helgina og vonum að þessi veikindahrina okkar verði liðin hjá. Kossar og knús frá Furugerðisfamilíunni
hæhæ þú ert nú algjör rúsína :) bræðir mann og annan :) það væri nú gaman að fá að hitta þig við tækifæri :)
kveðja Elín Ósk
Ohh sætasta dúllukrútt!!
Hæ
þú ert algjört krútt. Ég á eina skvísu sem heitir líka Kara nema hún heitir Kara Björt og er líka fædd 2006.
Sjáumst örugglega næst á ÍS leik. þú verður að hvetja ömmu okkar fyrir okkur því við erum svo langt í burtu.
kveðja Berglind Ýr, Jasmín Eir, Kara Björt, Heiðdís og Orri
Hæhæ,vildum bara kvitta fyrir komu okkar hér,,mikið rosalega ertu nú dugleg,litla dúlla.Flott stelpa,,,
ÁFRAM SNÆFELL hahahahaha.
kveðjur Hermann Örn og Dagný Ósk
hææææj
ég þekki Öldu og Dagnýju voðalega litið en ég þekki Sigga en rosa krútt sem þig eigið en mig langaði svo að kikja inn á myndir en ég er víst ekki svo nánar til þess að geta skoðað myndir :D en vonandi hittumst við biðjum öll heilsa frá kópavoginum :D
sæl öll sömul, var að fara yfir öll albúmin, hún er náttúrulega bara perla þessi stúlka sem þið eigið. Vona að þið hafið það gott, biðjum að heilsa öllum, kveðja frá Danmörkinni Rut frænka og co.
Ohhh svo fínar myndir! Dagný Kara er nú ekki óheppin með fjölskyldu :) Sakna ykkar voða mikið.
Sigrún sys er að ná í mig núna, er boðið í mat til þeirra - got to go! Hlakka mikið til að knúsa þær og svo auðvitað ykkur á morgun! Luv Glóa
Halló litla krúttbolla!
Mikið ertu nú extra mikið sæt í gallaskokknum og með rauða bandið um hárið! Algjör múskírúskí:D
Hlökkum til að sjá ykkur mæðgurnar á morgun og vonandi verður enginn lasinn þessa vikuna svo við getum hist meira en í síðustu viku;)
Kossar og mikið knús
Sigrún frænka, Eyrún Alda frænka og Kolbrún Ósk frænka
Geggjað að sjá þig í Menorca bolnum sem ég gaf Eyrúnu Öldu á sínum tíma! :)
Var aðeins að kíkja á þig, þú stækkar og stækkar:) Hlakka til að fá þig og mömmu aftur í heimsókn.
Elsku Dagný Kara og mamma og pabbi :)
Nú eru þið mæðgur bara komnar aftur í Stykkishólm.
Til hamingju með 5 mánaða afmælið þitt :)
Ömmu hlakkar mikið til á morgun þegar þú verður búin að fara í skoðun. Kannski þarftu bara að fá meira. Mamma þín er aldeilis búin að vera dugleg að hafa þig á brjósti. Þú ert svo heppin að eiga svo góða mömmu og góðan pabba. Ömmu hlakkar mikið til að hitta ykkur á helginni.
Kossar og stórt 5 mánaða afmælisknús frá Kollu ömmu
Hæ hæ elsku sæta frænka. Takk fyrir fallegu peysuna sem þú (og mamma þín auðvitað) gáfuð mér, hún hefur heldur betur komið sér vel í kuldanum hér í Minnesota. Mér skilst að þú sért voða dugleg að stækka og þroskast eins og ég. Mömmu minni finnst svo gaman að fylgjast með skemmtilegu síðunni þinni og þá getur hún alltaf séð hvað ég verð farin að gera eftir tvo mánuði. Ég hlakka mikið til að hitta þig loksins í sumar.
Bestu kveðjur til mömmu og pabba,
Steinunn Edda
Halló halló ofurkrúttbollan mín
Mikið er hún mamma þín dugleg að setja inn myndir:) Vantar svo mynd af nýja sjónvarpinu híhí.... Hlökkum til að sjá ykkur mæðgur aftur á morgun, þá færðu sko mörg stór knús og kossa frá okkur í Furugerðinu:D
Sigrún og familí
Hæ elsku sæta litla frænka mín!! Var að skoða myndirnar af ykkur fjölskyldunni. Okkur finnst nú alveg ferlegt að hafa ekki náð að hitta ykkur um jólin, vorum nú bara þarna á næsta bæ í Borgarfirðinum.. En hlakka til að fá að leika við þig í sumar þegar við komum. Mamma og pabbi biðja að heilsa ykkur öllum. ( Vorum að setja inn nýjar myndir á síðuna mína..) Kveðja, Hjördís Ylfa
Flottar myndir af þér Dagný Kara...ég las að þú átt frænda sem á afmæli sama dag og ég. Gaman að heyra hvað þú ert dugleg stelpa, enda ekki við öðru að búast svo sem.
**vildi bara kvitta fyrir mig í þetta sinn.
Hafið það sem allra best.
Kv Kristín
Voðalega gaman að heimsækja þessa síðu ykkar. Dagný Kara er algjört krútt.
Kv.
Pálmi