

Ekkert smá sætar stelpurnar í bleiku fötunum frá ömmu og afa:D Meiri dúllurnar. Hlakka til að sjá ykkur sem fyrst!
Elskurnar mínar :)
Mikið er gaman að sjá nýjar myndir. Æðisleg náttföt sem systurnar hafa fengið frá ömmu og afa í sveitinni.
Hringi seinna í dag.
Með ástarkveðju frá Kollu ömmu/mömmu
Fínar myndir, svo sætar þessar skottur! Svona merino föt eru best :) knús til ykkar
Gaman að sjá allar myndirnar frá jólum og áramótum:D Frábært líka að þið séuð dugleg að skipuleggja hjá ykkur, það veitir víst ekki af skipulaginu þegar þriðja barnið verður komið! Knús í Hólminn:D
Mikið er gaman að skoða myndirnar. Ég var orðin svo spennt að sjá þær. Mjög gott að skoða myndirnar eftir leikinn við Serba, sem tapaðist í jafntefli :( . Hlökkum til að sjá ykkur.
Með ástarkveðju Kolla amma/mamma
Yndislegar myndir :) Virkilega gaman að sjá litlu dúllurnar sínar. Hlakka til að sjá ykkur næst.
Með ástarkveðju Kolla amma
Æðislegt að sjá nýjar myndir!! Kommenta kerfið er í einhverju rugli... þannig að það passar ekki við myndirnar... Og ég sé að húfan nær ekki nógu langt niður á ennið! Ekkert verið að láta mann vita hehe ;) Skottan á inni hjá mér eitthvað sniðugt!
Oooohhh en gaman að sjá nýjar myndir! Var alveg kominn tími á það:D Gaman að sjá afmælismyndirnar og líka tilraunir til jólakortamyndar;) Það verður ennþá meiri "challenge" á næsta ári þegar börnin verða orðin þrjú! Fun times:D
Elsku Elín Eygló okkar :):)
Til hamingju með 1 árs afmælið þitt. Vonandi hefur dagurinn verið skemmtilegur hjá þér. Kolla amma og Jón afi hugsa til ykkar allra.
Með ástarkveðju Kolla amma og Jón afi
Til hamingju með 1.árs afmælið þitt elsku Elín Eygló okkar!!! Ótrúlegt hvað gerist mikið á einu ári hjá svona litlu kríli :) Risaknús frá okkur*
Elsku Elín Eygló
Innilega til hamingju með 1.árs afmælið. Mikið er tíminn fljótur að líða!
Við vonum að þið hafið það gott í dag, hlökkum til að hitta ykkur.
kveðja úr sveitinni
Elsku öll!
Innilega til hamingju með 1 árs afmælið þitt Elín Eygló okkar :D Dagný Kara til hamingju með litlu systur og Alda og Siggi til hamingju með stelpuna ykkar! Fyrsta árið liðið, það er alltaf mikill áfangi fyrir alla:D
Vona að þið hafið það gott öllsömul í dag, hlakka til að heyra í ykkur :D
Knús frá okkur öllum á 8C
Elsku Stykkishólmsfjölskylda :)
Nú er komin 5.desember og ekki nema 3 dagar þar til Elín Eygló verður 1 árs. Eru einhverjar ,,pælingar" í gangi ? Ég sakna litlu prinsessanna :):)
Með ástarkveðju Kolla amma
Ohh sakna ykkar svo mikið! Knús
Alltaf gaman að sjá nýjar myndir af systrunum sætu:D Hlökkum mikið til að sjá ykkur um næstu helgi ;)
Familían á 8C !
Elskurnar mínar allar fjórar :):):):)
Mikið er gaman að sjá nýjar myndir. 'Otrúlegt að 7 tennur séu komnar í gegn.
Hlökkum til að sjá ykkur. Kossar og knús frá Kollu ömmu og Jóni afa
En gaman að sjá nýjar myndir! Svo sætar þessar systur!! :)
Jæja er ekki kominn tími á nýjar myndir og einhverjar fréttir?? :)
Elsku Dagný Kara
Til hamingju með 3ja ára afmælið stóra stelpa.
kv Amma og Afi
Til hamingju með afmælið elsku Dagný Kara! Bara orðin 3 ára! :)
Elsku Dagný Kara og þið öllsömul:D
Innilega til hamingju með daginn! Stóra stelpan bara orðin 3ja ára, aldeilis að tíminn líður. Vonum að dagurinn verði svaka skemmtilegur, ætli Dagný komi ekki með kórónu heim af leikskólanum - það er nú alltaf voða gaman :D Sjáumst svo fljótlega, knús á ykkur öll frá okkur á 8C :D
hæhæ :)
flottar myndir af ykkur! Þið eruð alltaf jafn sætar!
Knús frá Spáni :)
Elsku Stykkishólmsfjölskylda :):):):)
Langaði bara að senda ykkur kveðju. Vonandi verður helgin góð hjá ykkur. Góður matur og góð hvíld. Ekki veitir af elsku Alda Leif mín, því fyrsta vikan í skólanum er nú alltaf svolítið strembin.
Með ástar- og saknaðarkveðju Kolla amma/mamma
Hæ hó öllsömul
Gaman að sjá nýjar myndir af systrunum sætu og allri familíunni auðvitað. Frábærar myndir af ferðinni ykkar á Snæfellsnesinu, stefnum á þann rúnt að ári!
Kossar og knús í Hólminn:D
Svo gaman að sjá myndir Alda mín, dugleg ertu. Ég þarf að koma okkar myndum líka inn á netið;) Bið að heilsa í bili, vonandi að það verði ekki mjög langt þar til við sjáumst;)
Æði að sjá myndir! :)
Sæl öll sömul :):):):)
Við afi vorum að skoða myndirnar. Þær eru alveg meiri háttar. Við erum rosalega stollt af ykkur öllum.
Kossar og knús amma og afi Espigerði
Hæ öllsömul!
Takk fyrir okkur, það var rosa gaman að koma til ykkar:D Kannski getum við komið aftur seinna í sumar þegar Bergrós María er orðin aðeins stærri;) Kolbrún á líka alveg eftir að skoða leikskólann hennar Dagnýjar-henni fannst það vera það eina sem vantaði! Vonumst svo til að sjá ykkur um helgina í sumarbústaðnum hjá ömmu og afa, við hljótum að finna leið til að koma okkur öllum fyrir:D
Dagný Kara nýtur þess vonandi að hafa Simba og Nölu í þessa nokkra daga, hún á eftir að passa þau vel vitum við;)
Kossar og knús
Elsku 4 fjölskylda :):):):)
Myndirnar eru alveg æðislegar. Maður sér stelpurnar vaxa og þroskast. Yndislegt :)
Ég hlakka ótrúlega mikið til að hitta ykkur öll í Háamóa 3, Heiðarbyggð, landi Ásatúns í Hrunamannahreppi.
Kossar og knús Kolla amma
Ég missti mig aðeins við að skrifa við myndir! Það hefur ekki verið hægt áður! En æðislegar myndir :)