

Sæl öll þrjú :) :) :)
Það bjargar manni alveg að sjá myndirnar þegar maður saknar ykkar. Gaman að sjá hvað Dagný Kara er dugleg að halda á vasaljósinu. Vonandi sjáumst við fljótlega.
Með ástar- og saknaðarkveðju Kolla amma
hæ hæ Sæta stelpa.
Þú hefur nú barasta stækkað alveg heilan helling síðan ég sá þig síðast. Flottar myndir hjá mömmu og pabba enda ekki hægt annað þegar svona flott stelpa á í hlut :D
Hafið það gott í Hólminum
kveðja frá dk
Hej Dagný, Alda &Siggi.
Tillykke med den lille kønne pige. Nu har anna også fået en islandsk kusine
Hils alle vi kender
Kærlig hilsen Anna,Karen & Martin
Hæ sæta mín! Æ ég er farin að sakna þín svo mikið (og mömmu þinnar!!) Hlakka rosa til að hitta ykkur á fimmtudaginn :) Þú ert æðisleg í skyrtukjólnum! Koss og knús
Vá hvað þú hefur stækkað... Rosalega eru þetta sætar myndir sem að mamma þín tekur af þér..
Bið að heilsa mömmu og pabba.
kv
Vala
Hæææææææ! Helga finnst þetta voooooða fyndið!! hann er núna orðinn svo stór, hættur með snuðið og bleyjuna !! allir rosa stoltir af honum ;) honum hlakkar svo til að fá að leika við dagny köru sætu vinkonu sína !! en svona á djóks þá ætluðum við bara að segja hæ og kasta kveðju á litlu fjölskylduna á Laufásveginum heðan úr íþróttahúsinu :)
kveðja
Unnur og Helgi Litli
Elsku , yndislega Dagný Kara :)
Mikið rosalega er gaman að skoða myndirnar. Og þú í gömlu peysunni. Amma man ekki lengur hver fékk hana fyrst/ -ur. Þú ert alveg orðin svo dugleg og stór. Nú fer amma að sakna þín alltof mikið. Pabbi er aldeilis búinn að standa sig vel í síðustu leikjunum. Vonandi sjáum við ykkur sem fyrst.
Með ástar- og saknaðarkveðjum Kolla amma
Halló sæta krútt
Þú ert nú meiri dúllan, frábærar myndir af þér í gulu peysunni, rauðu buxunum og skónum! Eins og þú sért töluvert eldri en 4ra mánaða. Og hún mamma þín er fyndin að setja þig ofan í skúffu hehhee...
Biðjum að heilsa litlu fjölskyldunni í Hólminum
Stóra fjölskyldan í Furugerði;)
Halló aftur kæra fjölskylda,
Mikið var gaman að fá loks að sjá prinsessuna á laugardaginn - hún er yndisleg :)
Og takk fyrir jólakortið !!!
Kveðja, Halla Þorsteinsdóttir
Hæ elsku litla krúttið mitt og foreldrarnir líka híhí
Mikið var nú ljúft að passa þig um daginn. Fá að knúsa þig í svona klukkutíma, leggja þig svo í vagninn þinn þar sem þú svafst á þínu græna í -5°C þar til mamma þín og pabbi komu heim!! Lúxus pössun hehe. Svo ertu alltaf svo kát þegar þú vaknar og gerir ekkert nema brosa:D
Hlökkum til að sjá ykkur um helgina, kossar og knús frá okkur í Furugerðinu.
Hæ elsku fjölskylda
Mikið var gaman að hitta ykkur á þrettándanum og loksins fá að knúsa litlu dúlluna ykkar :)
Bestu kveðjur í hólminn
Sigurborg og fjölskylda
Hæ hæ lít stundum hingað inn þó ég kvitti ekki alltaf.
Vá hvað þú ert orðin lík pabba þínum!
Bið að heilsa mömmu þinni og seigðu henni að ég fari að heyra í henni f´ljótlega
Gleðileg jól sæta fjölskynda, vonandi hafiði haft það sem allra best. Sá hvað þú varst komin í flotta skó ;) Ekkert smá flott í þeim. Vonandi hafiði það sem allra best um áramótin líka.
Sjáumst hress á nýju ári.
kv.
Vala
Hæ hæ öllsömul
Til hamingju með sigurinn í dag Siggi! Við horfðum öll á leikinn (já sumir lengur en aðrir hehe) og það var svaka spennó að leita að Sigga í sjónvarpinu:) Mikið var svo gaman að sjá nýjar myndir-þú stendur þig vel Alda mín, ég þarf að drífa okkar jólamyndir inn sem fyrst;)
Hlökkum til að sjá ykkur sem fyrst, hafið það sem best á gamlárskvöld.
Sigrún og familí
Komið þið öll sæl og ég þakka ykkur fyrir jólakortið mér þótti mjög vænt um að fá það.Ég óska ykkur til hamingju með skírnina,mér finnst mjög gaman að geta fylgst með ykkur á síðunni þinni sæta frænka, ég og fjölskyldan mín óskum ykkur gleði og gæfu á nýju ári og ég held áfram að kíkja á síðuna.
Góðar kveðjur til ykkar frá Sigurrós frænku á Ísafirði.
Hæhæ elskurnar.Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári...Jólakveðjur ....Hermann Örn og Dagný 'Osk
Hæ krúsu frænkan okkar
Mikið er gaman að kíkja á myndirnar af þér, fullt af nýjum myndum. Og okkur finnst þú svo mikil dúlla:) Auðvitað, hvað annað;)
Knús og kossar
Sigurborg og Kamilla Mist.
Hæ hæ
Ji bara fullt af nýjum myndum! Gaman að því:) Við Eyrún Alda erum heima núna eftir hádegið, henni er búið að vera illt í maganum í allan dag:( En það gengur vonandi fljótlega yfir.
Hlakka til að sjá ykkur sem fyrst, kossar og knús til sætustu frænkunnar
Sigrún frænka
Sæl öll þrjú og takk fyrir sunnudaginn :)
Nú verðið þið farin þegar ég kem heim í dag. Farið vel með ykkur og passið ykkur á umferðinni.
Kossar og knús Kolla amma
Hæ sæta mín þú stækkar og stækkar, knúsaðu mömmu og pabba frá mér og vonandi sé ég þig sem fyrst, knús og koss
Hæ hæ Alda og til hamingju með litlu prinsessuna, algjör rófa. Ég rakst á síðuna þína og sá að Margrét var líka ólétt. Bið að heilsa henni. Gaman að sjá myndir af ykkur, hef ekki séð ykkur í mange mange år. Kveðja Þóra gamla bekkjasystir
Sæl elsku fjölskylda :)
Mikið er sætt hjá ykkur og heimilislegt. Gaman að sjá hilluna þína Alda mín :) Hún kemur að góðum notum sé ég. Þið eruð líka með svo fína hillusamstæðu í stofunni. Nú verð ég að fara að koma í heimsókn.
Ástarkveðja Kolla m+tm+amma
Hæhæ innilega til hamingju með nafnið, fer þér rosa vel.
Hafið það gott litla sæta fjölskylda
Kæra Dagný Kara Sigurðardóttir!!
Mikið ertu heppin að vera búin að eignast svona fallegt nafn. Okkur langaði bara til að óska þér til hamingju með nafnið þitt og fallega skýrnardaginn þinn, vorum að skoða myndirnar :-) Já og svo langaði okkur að nýta þessa síðu til að óska pabba þínum, stórfrænda, til hamingju með afmælisdaginn !!!
Hafið það alltaf gott, kveðja frá okkur norðmönnunum :-)
Hæ hæ og til hamingju með nafnið!
Rosa fínt að geta fylgst með svona á netinu- hún Dagný Kara er að verða svo stór!
Alda þú verður nú að fara að kíkja í heimsókn í miðbæinn með barnið...síðast þegar við sáum þig varstu ennþá með RISA bumbu hehe
knús Svandís og Sólveig
Hæ.Til hamingju með fallega nafnið þitt Dagný Kara.Fallegt eins og þú.Sjáumst á röltinu,,,Kveðjur Hermann Örn og mamma hans Dagný 'Osk
Innilega til hamingju með fallega nafnið þitt elsku Dagný Kara. Vonandi fær maður nú að sjá þig fljótlega..
Knús og kossar úr Njarðvíkinni
Sigurborg og fjölskylda.
Til hamingju með nafnið þitt, Dagný Kara frænka mín. Það er fallegt eins og þú sjálf. Vonast til að geta séð þig fljótlega litla sæta krútt sem stækkar greinilega fljótt. Kveðjur úr Árbænum, Tobba og fjölskylda
Halló Dagný og famelía
Langaði bara að óska þér til hamingju með fallega nafnið þitt. Mamma þín hóar kannski á mig næst þegar hún er í bænum svo að maður fái að máta þig :)
Ástarkveðjur
Stella